Innlent

Breivik grét í dómsal - myndband

Breivik felldi tár í morgun. Hann var svo stoltur af myndbandi sem hann útbjó stuttu fyrir voðaverkin.
Breivik felldi tár í morgun. Hann var svo stoltur af myndbandi sem hann útbjó stuttu fyrir voðaverkin.
Norski fjöldamorðinginn Anders Breivik grét í dómsal í dag en réttarhöldin yfir honum hófust í morgun. Hann felldi ekki tárin vegna samvisku eða eftirsjár vegna fjöldamorðanna í Útey heldur spilaði saksóknarinn í málinu áróðursmyndband sem hann útbjó stuttu fyrir voðaverkin. Norskir fjölmiðlar segja að hann hafi verið svo stoltur af myndbandinu þar sem hann lýsir öfgafullum skoðunum sínum að hann hafi ekki getað haldið aftur tárunum. Breivik lýsti sig sekan um öll 77 morðin en þeim var lýst ítarlega í dómsal í morgun.

Myndband af þessu má sjá á vef norska ríkisútvarpsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×