Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ragnar greiði Árna og Friðriki miskabætur Ragnar Önundarson viðskiptafræðingur var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness til þess að greiða þeim Árna Haukssyni og Friðriki Hallbirni Karlssyni, hvorum fyrir sig, 300 þúsund krónur í miskabætur fyrir að kalla þá í blaðagreinum í Morgunblaðinu á síðasta ári "féfletta". Þá skulu ummælin vera dauð og ómerk. Þá skal Ragnar greiða stefnendum 200 þúsund krónur til að kosta birtingu dómsins í opinuberu blaði. Að auki skal Ragnar greiða þeim Árna og Friðriki 600 þúsund krónur í málskostnað. 18.4.2012 11:38
Sjampóbrúsarnir rugla fíkniefnahundana í ríminu Hluti efnanna sem Pólverjarnir þrír reyndu að smygla hingað til lands á sunnudagsmorgun var falinn í sjampóbrúsum, líkt og 187 grömm af kókaíni sem fundust í Leifsstöð 6. apríl síðastliðinn. 18.4.2012 11:28
Segja Breivik vera ímyndunarveikan Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hefur neitað að svara mörgum spurningum saksóknara í dag á þriðja þegi réttarhaldanna yfir honum. Breivik hefur verið þráspurður um tengsl hans við öfgahópa og fólk með svipaðar skoðanir og hann en hann hefur áður sagst tilheyra hópi manna sem kenni sig við Musterisriddarana. 18.4.2012 11:21
Grunaðir um að hafa smyglað hingað áður Hundurinn Nelson kom upp um smygl á um tíu kílóum af amfetamíni frá Póllandi. Einn mesti fíkniefnafundur í Leifsstöð í langan tíma. Fjórir úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Mennirnir eru taldir hafa smyglað hingað fíkniefnum áður. 18.4.2012 11:00
Gátu ekki keypt Víkingalottómiða Sölukerfið hjá Íslenskri getspá lá niðri um stund í morgun vegna uppfærslu. Að sögn Stefán Konráðssonar, forstjóra Íslenskrar getspá, voru þetta um 15 mínútur sem kerfið lá niðri. Spilarar í Víkingalottóinu gátu því ekki keypt miða en það er allt saman komið í lag núna. Dregið verður út í Víkingalottóinu í kvöld. 18.4.2012 10:57
Landsmönnum fjölgaði um 500 Fjöldi Íslendinga er kominn yfir 320.000 manns. Í lok 1. ársfjórðungs ársins bjuggu 320.060 manns á Íslandi og fjölgaði landsmönnum um 500 á ársfjórðungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 20.950 og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 203.970 manns. Á 1. ársfjórðungi 2012 fæddust 1.060 börn, en 560 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 10 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 130 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 140 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu. 18.4.2012 09:58
Vænn kolmunni á stóru svæði Vænn kolmunni veiðist á stóru svæði en skip HB Granda hafa verið á veiðum syðst í færeysku lögsögunni undanfarna daga. Þangað er um 35 klukkustunda sigling enda er veiðisvæðið 430 sjómílum frá Vopnafirði þar sem skipin landa. 18.4.2012 09:00
Spjallþáttur Assange í loftið Nýr spjallþáttur Julians Assange, stofnanda Wikileaks, var frumsýndur á rússnesku sjónvarpsstöðinni RT í gær. Í fyrsta þættinum ræddi Assange við Hassan Nasrallah, leiðtoga Hezbollah-skæruliðasamtakanna í Líbanon. 18.4.2012 09:00
Refsiaðgerðirnar bíta á stjórn Assads Alain Juppe, utanríkisráðherra Frakklands, segir refsiaðgerðir alþjóðasamfélagsins gagnvart sýrlenskum stjórnvöldum hafa borið ávöxt. 18.4.2012 08:30
Orðnir þreyttir á Fucking nafni Íbúar smábæjarins Fucking í Austurríki eru orðnir þreyttir á gríni á sinn kostnað og íhuga að breyta nafni bæjarins. 18.4.2012 08:30
Ný aðferðafræði við eldi í sjó lofar góðu Fjarðalax slátrar tíu til tólf tonnum af laxi á viku úr fyrstu kynslóð seiða í Tálknafirði. Fyrirtækið hyggst framleiða 10.000 tonn af laxi á ári. Forsvarsmenn óttast að stjórnsýslan meðtaki ekki rök þeirra fyrir nýju eldismódeli. 18.4.2012 08:00
Níu mál tengd Landsbanka til rannsóknar Embætti sérstaks saksóknara framkvæmdi húsleitir á þremur stöðum í Lúxemborg í gær í tengslum við rannsókn embættisins á meintri markaðsmisnotkun og umboðssvikum innan gamla Landsbankans fyrir bankahrun. Sex manns frá embættinu flugu utan í gærmorgun og nutu aðstoðar 24 starfsmanna rannsóknarlögreglunnar í Lúxemborg við húsleitirnar. Fréttastofa Stöðvar 2 skýrði fyrst frá málinu í gærkvöldi. 18.4.2012 08:00
Samstaða vill ljúka viðræðunum um aðild að ESB Stjórn Samstöðu, flokks lýðræðis og velferðar í Reykjavík fer fram á að ríkisstjórnin ljúki viðræðum um aðild Íslands á Evrópusambandinu fyrir fyrsta ágúst. 18.4.2012 07:38
Munu hvetja ráðherrann til umbóta Falun Gong eru væntanlegir hingað til lands vegna komu forsætisráðherra Kína á föstudag. Forsætisráðherranum verður ekki mótmælt heldur hvattur til umbóta. Þórdís Hauksdóttir, framhaldsskólakennari og iðkandi, ræddi um Falun Gong, mannréttindabrot og umbætur í Kína í samtali við Þórunni Elísabetu Bogadóttur. 18.4.2012 07:30
Laugin opnuð aftur á morgun Laugardalslaugin verður opnuð aftur fyrir sundlaugargestum á morgun, sumardaginn fyrsta, eftir að hafa verið lokuð í nokkra daga vegna endurbóta. 18.4.2012 07:30
Herjólfur siglir til Landeyjahafnar í dag Herjólfur siglir til Landeyjahafnar í dag miðvikudag fulla áætlun eða fjórar ferðir. 18.4.2012 07:26
Snjókoma á Akureyri í nótt Jörð gránaði af snjó á Akureyri í nótt og víðar var éljagangur á Noðrausturlandi. Þá var hiti við frostmark í Reykjavík undir morgun. 18.4.2012 07:21
Eldur í ruslageymslu fjölbýlishúss Slökkviliðinu var tilkynnt um eld í ruslageymslu í Fjölbýlishúsi við Engihjalla í Kópavogi um klukkan hálf níu í gærkvöldi. Hann var staðbundinn í einni tunnu og var slökktur á svipstundu. 18.4.2012 07:20
Ítalskri konu sleppt úr haldi al-kaída Hryðjuverkasamtökin al-kaída í Alsír hafa sleppt ítalskri konu, Mariu Mariani, úr haldi en hún var búin að vera fangi þeirra síðustu 14 mánuði. 18.4.2012 07:16
Þrír menn í Norrænu báðu um hæli á Íslandi Þrír karlmenn, sem tollverðir höfðu afskipti af við komu Norrænu til Seyðisfjarðar í gær, gátu ekki framvísað neinum gildum skilríkjum. 18.4.2012 07:12
Eldgos hafið í grennd við Mexíkóborg Yfirvöld í Mexíkó hafa gefið út viðvörun vegna þess að eldgos virðist hafið í eldfjallinu Popocatepetl sem er í um 70 kílómetra fjarlægð frá Mexíkóborg. 18.4.2012 07:07
Vændishneykslið í Kólombíu vindur upp á sig Hneykslið í kringum vændiskaup liðsmanna bandarísku leyniþjónustunnar í Kólombíu heldur áfram að vinda upp á sig. 18.4.2012 07:03
Hlutafé Olís lækkað og hækkað aftur Samherji og félag Kaupfélags Skagfirðinga hafa lagt fé inn í viðskiptabanka Olís sem verður breytt í nýtt hlutafé samþykki Samkeppniseftirlitið aðkomu þeirra að Olís. Búið er að skrifa niður hlutafé núverandi eigenda um 75%. 18.4.2012 07:00
Fréttablaðið heldur sterkri stöðu Lestur á Fréttablaðinu og Morgunblaðinu eykst lítillega á fyrsta fjórðungi ársins samanborið við síðasta fjórðung ársins 2011 samkvæmt nýrri prentmiðlakönnun Capacent Gallup. Lestur á DV dregst talsvert saman milli ársfjórðunga. 18.4.2012 07:00
Flúðasveppir vítamínbættir Hefja á tilraunaræktun á D-vítamínríkum matsveppum hjá Flúðasveppum. 18.4.2012 07:00
Lífshættulegur bandormur fannst í ref á Jótlandi Lífshættulegur bandormur hefur fundist í ref sem veiddur var á Jótlandi nýlega. Ormur þessi getur borist í fólk og veldur þá ólæknandi lifrarsjúkdómi sem yfirleitt dregur viðkomandi til dauða. 18.4.2012 06:57
Lítil fis flugvél brotlenti á Hólmsheiði Tveir menn sluppu ómeiddir þegar lítil fis flugvél þeirra brotlenti á flugvellinum á Hólmsheiði, ofan við Geitháls, í gærkvöldi. 18.4.2012 06:51
Bankastræti núll verði sýningarsalur „Það hafa komið listamenn til okkar og óskað eftir að fá að sýna í þessu rými,“ segir Jón Halldór Jónasson, upplýsingafulltrúi á framkvæmda- og eignasviði sem spyrst nú fyrir um það hjá byggingarfulltrúa hvort innrétta megi sýningarsal í kvennasnyrtingunni í Bankastræti núll. 18.4.2012 06:30
Brátt gengið frá sölu á Actavis Viðræður um sölu á Actavis til bandaríska lyfjafyrirtækisins Watson eru langt komnar. Samkvæmt frétt Reuters um málið er ráðgert að tilkynnt verði um kaupin í lok þessa mánaðar. 18.4.2012 06:30
Árni Páll styður ekki fækkun ráðuneyta Tekist var á um fyrirhugaða fækkun ráðuneyta á Alþingi í gær. Árni Páll Árnason er á móti því að leggja niður efnahags- og viðskiptaráðuneytið. Forsætisráðherra vonast eftir stuðningi út fyrir raðir þingmanna ríkisstjórnarinnar. 18.4.2012 06:00
Atvinnulausum fækkaði í mars Atvinnulausum fækkaði í mars miðað við febrúar. Skráð atvinnuleysi var 7,1 prósent í mánuðinum og lækkaði um 0,2 prósentustig á milli mánaða. Þetta kemur fram í nýjum tölum Vinnumálastofnunar. 18.4.2012 06:00
Klámmyndastjarna lést eftir að hafa verið skotinn með rafbyssu Klámmyndaleikarinn Marland Anderson, einnig þekktur sem Sledge Hammer, lést í Lost Angeles í Bandaríkjunum í gær eftir að hafa verið yfirbugaður af lögreglu. 17.4.2012 23:10
Stjórnvöld mótmæla afskiptum ESB að Icesave-deilunni Íslensk stjórnvöld hafa mótmælt afskiptum Evrópusambandsins af Icesace-deilunni fyrir EFTA dómstólnum. Þetta kom fram úr kvöldfréttum RÚV í kvöld. 17.4.2012 22:15
Ráðherrann lagðist gegn veiðigjaldi þá en segir aðstæður nú breyttar Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, segir að aðstæður í sjávarútvegi hafi breyst verulega síðan hann lagðist gegn álagningu veiðigjalds og rökstuddi það í tíu liðum sem óbreyttur þingmaður en nú sem ráðherra leggur hann til að 70 prósent af arði í sjávarútvegi renni til ríkisins. 17.4.2012 20:30
Vísar því á bug að netsamband Íslands við umheiminn hafi verið í hættu Forstjóri Farice vísar því á bug að netsamband við umheiminn hafi verið hættu vegna lausafjárvanda fyrirtækisins. Ríkissjóður þurfti að greiða afborgun af láni Farice upp á þriðja hundrað milljónir króna fyrr í þessum mánuði þar sem fyrirtækið átti ekkert laust fé. 17.4.2012 20:15
Samstaða stofnuð í Kraganum Birgir Örn Guðjónsson var kosinn formaður Samstöðu, flokks lýðræðis og velferðar, í Kraganum í gærkvöld. 17.4.2012 19:51
Þrjátíu manna teymi framkvæmdi húsleitir í Lúxemborg vegna Landsbankans Þrjátíu manna teymi á vegum sérstaks saksóknara og rannsóknarlögreglunnar í Lúxemborg framkvæmdi í dag húsleitir á þremur stöðum í Lúxemborg vegna rannsóknar meintri markaðsmisnotkun gamla Landsbankans fyrir hrunið. 17.4.2012 19:16
Ákall til Alþingis um Dýrafjarðargöng Vestfirðingar safna nú undirskriftum undir ákall til stjórnvalda um að Dýrafjarðargöng fái forgang og fram fyrir Vaðlaheiðargöng og Norðfjarðargöng. Bíll komst yfir Hrafnseyrarheiði í dag í fyrsta sinn í fjóra mánuði. Ákall um Dýrafjarðargöng er yfirskriftin sem lýsir vel hve heitt samgöngumálin brenna á Vestfirðingum. 17.4.2012 19:15
Íslensk tækni við að þurrka fisk notuð í Tansaníu Íslensk tækni sem felst í því að þurrka fisk í sólarofni var nýlega tekin í notkun í Tansaníu. Hún er ódýr í framkvæmd og er talin geta tvöfaldað verðmæti vörunnar. 17.4.2012 19:00
Götuvirði amfetamínsíns 250 milljónir króna Hluti af þeim tæpu tíu kílóum af amfetamíni sem þrír Pólverjar reyndu að smygla hingað til lands um helgina var komið fyrir í sjampóbrúsum. Á föstudag var annar aðili tekinn með kókaín sem falið var í sjampóbrúsa en fleiri aðilar eru taldir tengjast því máli. 17.4.2012 18:30
Ný meðferð við blöðruhálskrabbameini vekur athygli Eiríkur Jónsson, yfirlæknir á þvagfæraskurðlækningadeild LSH, var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann ræddi við þáttastjórnendur um blöðruhálskirtilkrabbamein og nýja aðferð við meðhöndlun sjúkdómsins. 17.4.2012 17:32
Dómsuppsagan í beinni á Vísi Dómsuppsaga í Landsdómsmálinu verður sýnd í beinni útsendingu en dómur verður kveðinn upp klukkan tvö á mánudaginn. Landsdómur hefur orðið við beiðni Stöðvar 2 og RÚV um að sýna beint frá dómsuppkvaðningunni. Báðir fjölmiðlarnir þurfa þó að koma sér saman um tæknilegar hliðar útsendingarinnar þar sem aðeins ein myndavél má vera í salnum og einn ómerktur hljóðnemi hjá forseta Landsdóms. 17.4.2012 16:49
Fórst Íslendingur með Titanic? Svo gæti verið að Íslendingur hafi farist með farþegaskipinu Titanic árið 1912. Þetta segir Ólafur Hannibalsson, sem vinnur að ritun Djúpmannatals. 17.4.2012 15:55
Vöðvatröll brotlegt - enginn á sterkasta mann Íslands Neytendastofa hefur fundið Hjalta "Úrsus“ Árnason brotlegan gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu þegar hann hótaði fyrirtækjum málssókn vegna notkunar aflraunarmannsins Magnúsar Ver á á vörumerkinu "Sterkasti maður Íslands“. 17.4.2012 15:50
Nýjar vísbendingar um hvarf McCann - stúlkunnar leitað á Spáni Lögreglan í Portúgal, auk lögreglunnar á Spáni, leita nú að Madeleine McCann nærri Malaga á Norður-Spáni. Samkvæmt frétt Daily mail fékk lögreglan ábendingu um að stúlka lík McCann hefði sést nærri borginni, sem er vinsæll ferðamannastaður á Spáni. 17.4.2012 15:16