Níu mál tengd Landsbanka til rannsóknar 18. apríl 2012 08:00 Ólafur Þór Hauksson var einn þeirra sex frá embættinu sem fóru utan til að taka þátt í aðgerðunum. fréttablaðið/stefán
Embætti sérstaks saksóknara framkvæmdi húsleitir á þremur stöðum í Lúxemborg í gær í tengslum við rannsókn embættisins á meintri markaðsmisnotkun og umboðssvikum innan gamla Landsbankans fyrir bankahrun. Sex manns frá embættinu flugu utan í gærmorgun og nutu aðstoðar 24 starfsmanna rannsóknarlögreglunnar í Lúxemborg við húsleitirnar. Fréttastofa Stöðvar 2 skýrði fyrst frá málinu í gærkvöldi. Að sögn Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks saksóknara, var leitað á skrifstofum tveggja fyrirtækja og á skrifstofu þrotabús Landsbankans. Leit á skrifstofum þrotabúsins stóð enn yfir þegar Fréttablaðið fór í prentun en leit á hinum tveimur stöðunum var lokið. Enginn var handtekinn í tengslum við aðgerðirnar. Þær tengjast alls níu mismunandi málum og byggja á þremur réttarbeiðnum sem lagðar voru fram sumarið 2011. Á meðal þeirra mála eru fjögur mál sem lágu til grundvallar húsleitum og handtökum hérlendis í janúar 2011. Þau mál eru: 1) meint markaðsmisnotkun Landsbanka Íslands með hlutabréf útgefin af bankanum, 2) lánveitingar til félaganna Hunslow S.A., Bruce Assets Limited, Pro-Invest Partners Corp og Sigurðar Bollasonar ehf. til kaupa á hlutabréfum í Landsbankanum, 3) kaup Landsbankans á lánasafni Landsbankans í Lúxemborg og 4) kaup á hlutabréfum í bankanum af hálfu félaga sem héldu um kauprétti starfsmanna Landsbankans og lánveitingar til þeirra félaga.-þsj
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira