Íslensk tækni við að þurrka fisk notuð í Tansaníu 17. apríl 2012 19:00
Íslensk tækni sem felst í því að þurrka fisk í sólarofni var nýlega tekin í notkun í Tansaníu. Hún er ódýr í framkvæmd og er talin geta tvöfaldað verðmæti vörunnar. Kigomabúar í Tansaníu hafa hingað til þurrkað fiskinn sinn í sandi eða í grind ofan í jörðu en þannig skemmist hann hæglega í rigningu og dýr komast auðveldlega að, svo ekki sé minnst á sandinn sem neytendur fá ofan í sig. „Það má nú segja að saurkólígerlaskalinn hann sprakk," sagði Margeir Gissurarson, verkefnastjóri hjá Matís. „Þannig að það er greinilega mikið af slæmum gerlum í vörunni." Margeir tók sýni úr fiskinum sem þurrkaður var á gamla mátann. Hann og Sigurjón Arason, yfirverkfræðingur hjá Matís, kynntu fyrir heimamönnum einfalda lausn sem lyftir afurðinni frá jörðu og ver á meðan sólin sér um þurrkunina.„Við erum með dökka járnplötu í stokkum og jarðplatan drekkur í sig hitann," sagði Sigurjón.„Við erum með dökka járnplötu í stokkum og jarðplatan drekkur í sig hitann," sagði Sigurjón Arason, yfirverkfræðingur hjá Matís. „En við höldum utan um upphitað loft sem myndast og það er látið leika umfiskinn í ákveðnum klefa, þurrklefa." Verkefnið, sem var boðið út af Tansaníustjórn, mun skapa talsverða vinnu. Stofnkostnaður er lítill og talið er að verðmæti fisksins tvöfaldist með notkun ofnanna. „Ef við erum að tala um þrjá til fjóra dollara á kílóið þá er þetta að fara upp í sex til átta dollara á kílóið í dag," sagði Sigurjón en hann og Margeir vonast til að geta kynnt tæknina í öllum þeim löndum sem liggja að Viktoríuvatni.Veiðimenn í Tansaníu koma með fullfermi af Dagaa-fiskinum.„Það má áætla að bara úr Viktoríuvatni séu að koma svona 250 þúsund tonn þannig að það er töluvert magn af fiski. Það er mikil búbót ef verðmætin tvöfaldast. Heldur betur, það getur verið mikil hjálp fyrir veiðisamfélagið í heild," sagði Margeir. Tumi Tómasson forstöðumaður Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna hefur stutt vel við verkefnið og mun koma að námskeiðum sem á að halda í Tansaníu. Þá hafa Ráðgarður skiparáðgjöf, VJI verkfræðistofa og GOCA consulting einnig lagt hönd á plóg.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Fleiri fréttir Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Sjá meira