Fleiri fréttir

Milljarður í áætlun sem óvissa ríkir um

Unnið hefur verið að rammaáætlun síðan árið 1999. Þremur verkefnisstjórnum og nokkrum skýrslum síðar er enn deilt um útkomu hennar og það sem meira er; sjálfar forsendurnar fyrir henni. Stjórnarflokkunum gengur illa að koma sér niður á endanlega flokkun náttúrusvæða og málið gæti reynst þeim erfitt.

Ísland gerir ekki nóg til að fyrirbyggja kynþáttafordóma

Talsvert er enn óunnið í baráttunni gegn kynþáttafordómum á Íslandi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Kynþáttafordómanefndar Evrópuráðs (ECRI) um Ísland sem kynnt verður í dag. Í skýrslunni eru lagðar fram nokkrar tillögur til úrbóta og mælist ECRI til þess að íslensk stjórnvöld setji þrjú mál í sérstakan forgang.

Tvöfalt fleiri kaupa á netinu

Tvöfalt fleiri farmiðar og strætókort voru seld á netinu í janúar en á sama tíma í fyrra. Þá hefur heimsóknum á vef Strætó fjölgað um 45 prósent eftir að nýtt rauntímakort var þar tekið í notkun. Á rauntímakortinu er staðsetning vagna uppfærð á tíu sekúndna fresti fyrir tilstilli GPS-búnaðar í vögnunum.

Telja uppruna frekar skipta máli

Framhaldsskólanemar sem eiga foreldra frá öðru landi en Íslandi eru líklegri til að telja menningu sína og uppruna mikilvæga en börn sem eiga bara íslenska foreldra.

Sökkti fljótandi skemmtistað

Risavaxnar íshellur sem borist hafa niður eftir Dóná í Serbíu hafa valdið talsverðu tjóni á bátum og bryggjum. Hundruð báta hafa skemmst og fljótandi skemmtistaður sem var þekkt kennileiti í Belgrad sökk eftir að íshrönglið lenti á honum.

Saksóknari vill dauðarefsingu

Saksóknari í máli Hosní Múbarak, fyrrverandi forseta Egyptalands, krafðist þess í lokaræðu sinni við réttarhöldin að hann verði dæmdur til dauða fyrir að fyrirskipa lögreglu og öryggissveitum að beita vopnum gegn mótmælendum.

Rauði krossinn reynir að koma á vopnahléi

Stjórnvöld í Sýrlandi hafa sent liðsauka að borginni Homs, sem verið hefur höfuðvígi uppreisnarmanna í landinu undanfarna mánuði. Það þykir benda til þess að linnulausum sprengjuárásum á borgina verði fylgt eftir með innrás hersins, á sama tíma og Rauði krossinn reynir að koma á vopnahléi í landinu.

Boðar stórfellda vígvæðingu

Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, lofar því að kaupa ógrynnin öll af nýjum vopnum fyrir rússneska herinn verði hann kosinn forseti landsins á ný.

Andófsmaður verður forseti

Joachim Gauck, 72 ára fyrrverandi prestur og fyrrverandi austur-þýskur andófsmaður, tekur við af Christian Wulff sem forseti Þýskalands.

The Simpsons nær sögulegum áfanga

Sjónvarpsþátturinn The Simpsons skráði sig endanlega í sögubækurnar á sunnudaginn þegar 500. þátturinn var frumsýndur. Aðgerðarsinninn Julian Assange var gestaleikari.

"Myndasprengjan" heyrir sögunni til

Flestir hafa lent í því þegar óvelkomnir einstaklingar ganga inn í ljósmyndaranna þegar mynd er tekin. Sænskt fyrirtæki hefur hannað smáforrit sem kemur í veg fyrir þetta með því að eyða viðkomandi úr rammanum.

Fimm ára gömul og föst í líkama drengs

Zach Avery var þriggja ára þegar hann áttaði sig á að hann væri stúlka föst í líkama drengs. Heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi hafa staðfest að Zach þjáist af kynáttunarvanda.

"Blettaskallinn hvatti mig áfram"

Hjólreiðakonan Joanna Rowsell ákvað að sleppa hárkollunni þegar hún tók við gullverðlaunum í Róm um helgina. Joanna þjáist af blettaskalla og hefur þurft að fela heilkennið fyrir umheiminum.

Íslenskur piltur lést í umferðarslysi í Tansaníu

Íslenskur maður lést í alvarlegu umferðarslysi á laugardaginn í Tansaníu. Utanríkisráðuneytið staðfesti í samtali við Vísi að maðurinn hefði látist en vildi ekki gefa upp nánari upplýsingar um málið.

Dýrasti hamborgari heims mun ekki kom í veg fyrir hungursneyð

"Þetta er meira gert til skemmtunar og til þess að sækja nýja þekkingu frekar en til þess að fæða okkur,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag, um dýrasta hamborgara heimsins, sem hollenskir vísindamenn bjuggu til.

NASA birtir myndir af skýstrók á sólinni

Geimferðastofnun Bandaríkjanna hefur birt myndir af skýstrók sem gekk yfir yfirborð sólarinnar. Skýstrókurinn var stærri en Jörðin og teygði anga sína þúsundir kílómetra út í geiminn.

Makríll stuðlar að húsasmíði á Suðurnesjum

Makrílveiðar valda því að eitt af sjávarútvegsfyrirtækjum Suðurnesja stendur í þrjúhundruð milljóna króna framkvæmdum og sést byggingarkrani nú á hreyfingu í Garðinum.

Vegagerð innan við 10 prósent af því sem áður var

Samningar um nýframkvæmdir í vegagerð á Íslandi hafa undanfarin þrjú ár fallið niður í að vera innan við einn fimmti af því sem áður var að meðaltali og á síðasta ári voru þær innan við einn tíundi af því sem áður tíðkaðist, eða aðeins upp á 871 milljón króna, þegar meðaltalið var áður yfir 10 milljarðar króna á ári.

Nauðungarsölu ekki frestað þrátt fyrir hæstaréttardóm

Sýslumannsembættið í Reykjavík hefur ekki tekið ákvörðun um að fresta nauðungarsölum á fasteignum vegna óvissu um gengislán. Allajafna er það undir bönkunum komið hvort fólk geti fengið frest á nauðungarsölum. Skuldara var, að eigin sögn, neitað um frestun á nauðungarsölu eftir að Hæstaréttardómurinn féll.

Rauði Krossinn biður um vopnahlé í Sýrlandi

Alþjóðanefnd Rauða Krossins hefur hafið samningaviðræður við stjórnvöld og andspyrnuhópa í Sýrlandi. Samtökin vonast til þess að vopnahléi verði komið á svo að hægt verði að koma neyðargögnum til landsins.

Jafnmargir dópaðir og fullir

Alls voru átján ökumenn teknir fyrir að keyra undir áhrifum áfengis eða fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Níu voru ölvaðir undir stýri, átta karlar og ein kona.Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og þrír hafa aldrei öðlast ökuréttindi. Þá voru einnig níu sem keyrðu undir áhrifum fíkniefna, en það voru allt karlar. Einn þeirra hefur aldrei öðlast ökuréttindi og annar reyndist vera á stolnum bíl, segir í tilkynningu frá lögreglu.

Rannsókn gengur vel og lýkur í vikunni

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á tveimur nauðgunarkærum á hendur Agli Einarssyni, betur þekktum sem Gillzenegger, miðar vel og verður að öllum líkindum send til ákærusviðs lögreglunnar á næstu dögum. Þetta segir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar í samtali við fréttastofu. Kærurnar verða svo sendar saman til ríkissaksóknara sem tekur ákvörðun um hvort að ákært verði í málinu. Egill var kærður ásamt unnustu sinni í lok nóvember í fyrra fyrir nauðgun á heimili þeirra í Kópavogi. Hann var svo aftur kærður fyrir nauðgun í janúar á þessu ári.

Fjarlægðu skráningarnúmer af hundrað bílum

Skárninganúmer voru fjarlægð af rúmlega eitt hundrað ökutækjum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en þau voru ýmist ótryggð eða óskoðuð, og jafnvel hvorutveggja.

Fiskikar féll á brjóstkassa manns

Maður slasaðist á brjóstkassa eftir að hann fékk fiskikar yfir sig sem var verið að hífa upp úr lest báts í Þorlákshöfn á níunda tímanum í morgun. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala í Fossvogi en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi liggur ekki fyrir hve alvarlega hann er slasaður.

Buster fann kannabis í nærbuxunum á 16 ára pilti

Lögreglumenn á Selfossi höfðu afskipti af nokkrum ungmennum á föstudagskvöld en bifreið sem þau var stöðvuð í þeim tilgangi að kanna ástand ökumanns. Hann reyndist í lagi en út úr bifreiðinni lagði sterka kannabislykt og var því fíkniefnahundurinn Buster kallaður til.

Stefnan samhengislaus

Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður Teits Atlasonar bloggara, sagði í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að í staðinn fyrir að reyna ná sáttum í meiðyrðamáli sem Gunnlaugur M. Sigmundsson höfðaði gegn bloggaranum hefði Gunnlaugur frekar ákveðið að senda honum nafnlaus SMS. Lögmaður Gunnlaugs sagði SMS-skilaboðin hafa verið saklaus og að þau ættu ekkert erindi í málflutning málsins.

Bílvelta í Flóanum

Bíll með tvo innanborðs fór út af veginum í Flóanum í hádeginu, við bæinn Kjartansstaði. Bíllinn lenti í krapa og við það missti ökumaðurinn stjórnina með þeim afleiðingum að bíllinn valt. Frá þessu er greint á sunnlenska fréttamiðlinum dfs.is. Um erlenda ferðamenn á bílaleigubíl var að ræða og þurfti að beita klippum til þess að ná ökumanninum út. Farþeginn komst út úr bílnum af eigin sjálfsdáðum.

Fái að breyta verðtryggðu í óverðtryggt

Neytendasamtökin vilja að heimili sem vilja breyta verðtryggðum lánum í óverðtryggð eigi að fá að gera það með lágum tilkostnaði. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn samtakanna sendi frá sér í dag en þar segir að þessa sé krafist af öllum þeim aðilum sem veiti íbúðarlán, hvort sem lántakendur hafa verið í viðskiptum við viðkomandi eða eru að færa viðskipti sín til annars fjármálafyrirtækis.

Rafmagnstengill brann yfir

Allt tiltækt slökkvilið var sent að Klettagörðum á tólfta tímanum í dag þegar tilkynnt var um reyk í Sendibílastöðinni hf. Þegar slökkvilið mætti á svæðið kom í ljós að enginn eldur var laus. Rafmagnstengill hafði ofhitnað og við það fór að rjúka úr honum. Lítil hætta var því á ferðum.

Eftirlitsmenn komnir til Írans

Eftirlitsmenn Alþjóðakjarnorkumálastofnunar komu til Íran í dag. Er þetta í annað skiptið í mánuðinum sem eftirlitsmenn heimsækja Íran en þeir munu halda áfram rannsókn sinni á kjarnorkuáætlun landsins.

Mikill reykur í Klettagörðum

Allt tiltækt slökkvilið var kallað að Klettagörðum 1 þar sem mikill reykur gaus upp fyrir stundu. Óljóst er hvort eldur logi en húsið hefur ekki verið rýmt. Sendibílastöðin hf er þar til húsa.

Solla er besti hráfæðiskokkur í heimi

Hráfæðiskokkurinn Sólveig Eiríksdóttir fór með sigur af hólmi í keppni hráfæðismatreiðslumanna en úrslitin hafa nú verið kunngjörð. Sólveig, eða Solla eins og hún er kölluð var tilnefnd í tveimur flokkum, "BEST of RAW Gourmet Chef“ og líka í "Best RAW Simple Chef“ og sigraði hún báða flokkana. Valið fór fram á netinu en úrslitin voru kunngjörð við hátíðlega athöfn í San Franciso. Solla greinir frá úrslitunum á Facebook síðu sinni í dag.

Þakhýsi dæmt niður en komið upp aftur

„Það þarf ekki síst að vekja athygli á þessum yfirgangi hjá borginni,“ segir Arngunnur R. Jónsdóttir, sem enn á ný glímir við þakhýsi sem nágrannar höfðu áður fjarlægt eftir dóm Hæstaréttar en hafa nú sett upp aftur í kjölfar breytinga á deiliskipulagi í Húsahverfi í Grafarvogi.

Ökumaður í tómu tjóni

Ökumaður, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði við eftirlit í gær, reyndist í meira lagi brotlegur.

Joachim Gauck verður forseti Þýskalands

Angela Merkel kanslari Þýskalands tilkynnti í gærkvöldi að Joachim Gauck yrði næsti forseta Þýskalands. Gauk tekur við embættinu af Christian Wulff sem sagði af sér fyrir helgina vegna lánahneykslis.

Santorum er á miklu skriði

Rick Santorum er á miklu skriði í baráttunni um að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum.

Sjá næstu 50 fréttir