Innlent

Fiskikar féll á brjóstkassa manns

Þorlákshöfn
Þorlákshöfn
Maður slasaðist á brjóstkassa eftir að hann fékk fiskikar yfir sig sem var verið að hífa upp úr lest báts í Þorlákshöfn á níunda tímanum í morgun. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala í Fossvogi en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi liggur ekki fyrir hve alvarlega hann er slasaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×