Innlent

"Líkamlegt atgervi hefur mest að segja í málum sem þessum"

Bíllinn sem maðurinn var grafinn í.
Bíllinn sem maðurinn var grafinn í. mynd/AFP
„Þetta er mjög sérstakt mál og óvenjulegt," sagði Guðmundur Björnsson endurhæfingarlæknir um mál sænska mannsins sem lá grafinn í bíl sínum í tvo mánuði.

Guðmundur var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í dag.

Talið er að hitastigið fyrir utan bílinn hafi farið niður í -30 gráður. Björgunarmenn þurftu að grafa sig í gegnum metra af snjó áður en þeir sáu manninn.

„Líkamlegt atgervi hefur mest að segja í þessum málum," sagði Guðmundur. "Orku- og fitubirgðir spila einnig inn í. Þetta er samspil þessa tveggja þátta. Þegar líkamshiti er kominn niður fyrir 25 til 30 gráður fara alvarlegar hjartsláttartruflanir að gera vart við sig sem verður fólki að bana."

Guðmundur telur að margt sé enn á huldu um málið en það sé þó ljóst að um einstakan atburð sé um að ræða.

Guðmundur bendir á að einstaklingar séu misvel búnir undir slíka þolraun. Í því samhengi bendir hann á sjósund Guðlaugs Friðþórssonar en hann synti 6 kílómetra úr sökkvandi skipi árið 1984.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×