Innlent

Hópur ungmenna réðist á mann vegna fíkniefnaskuldar

Hópur ungmenna réðst á ungan mann fyrir utan verslun við Arnarbakka í Reykjavík í gærkvöldi og veitti honum áverka.

Hópurinn var flúinn af vettvangi þegar lögregla kom á staðinn, en þolandinn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar, en mun þó ekki vera alvarlega meiddur.

Að sögn lögreglunnar munu unglingarnir hafa ætlað að innheimta fíkniefnaskuld af þolandanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×