Fleiri fréttir

Rannsaka áhrif bólusetningar

Hópur sérfræðinga á Landspítala og við Læknadeild Háskóla Íslands hefur hlotið stóran styrk til að rannsaka áhrif bólusetningar gegn alvarlegum sýkingarvaldi — bakteríutegund sem veldur algengum sýkingum eins og eyrnabólgum, lífshættulegum blóðsýkingum og heilahimnu- og lungnabólgu.

Margir kannað stöðu barnasparnaðar

„Við höfum fengið mikil og jákvæð viðbrögð við þessari frétt. Fjöldi fólks hefur haft samband og spjallað við okkur um þetta í kjölfarið,“ segir Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri VÍB, eignastýringarþjónustu Íslandsbanka.

Matarlaus í bíl í tvo mánuði í norður Svíþjóð

Sænskur maður sem fannst á föstudag eftir tveggja mánaða dvöl í bíl sínum án matar er á batavegi. Að sögn lækna er hann vakandi og fær um að eiga tjáskipti. Hitastigið utan við bílinn fór lægst niður í -30 gráður og telja læknar að snjórinn utan við bílinn hafi breytt honum í eins konar snjóhús og þar með komið í veg fyrir að maðurinn dæi úr kulda.

Landhelgisgæslan berst gegn sjóræningjaveiðum

Landhelgisgæslunni hefur borist beiðni frá samtökum Mið-Ameríkuríkja um aðstoð vegna baráttu þeirra við ólöglegar fiskveiðar. Beðið er um aðstoð við að útfæra eftirlit og vöktun en vegna sérþekkingar sinnar fær Gæslan reglulega boð víða að úr heiminum þar sem óskað er eftir kennslu og fyrirlestrum varðandi uppbyggingu, skipulag og árangur á eftirlits- og vöktunarkerfum.

Fluguveiði og sleppingar skila sér vel

Vísbendingar eru um að breytt veiðifyrirkomulag í Eyjafjarðará hafi skilað betri seiðabúskap í Eyjafjarðará, einni bestu bleikjuveiðiá landsins.

Atvinnulaust ungt fólk fær starfsreynslu

Vinnumálastofnun og velferðarráðuneyti í samstarfi við Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ, Hafnarfjarðarbæ og Reykjanesbæ kynntu fyrir helgi nýtt vinnumarkaðsúrræði sem er beint að ungu fólki á bótum. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir mikilvægt að koma til móts við þetta fólk sem hafi í mörgum tilfellum aldrei hlotið reynslu af vinnumarkaði.

Möguleikar fyrir sérþekkingu Íslendinga

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra undirritaði fyrir helgi yfirlýsingu um víðtækt samstarf Íslands og Japans á sviði jarðhitanýtingar. Japönsk sendinefnd, þar sem meðal annarra eru þingmenn og fulltrúar frá þarlendum fyrirtækjum og stofnunum, er stödd hér á landi til að kynna sér nýtingu jarðhita, en í Japan standa fyrir dyrum miklar breytingar í orkumálum.

Þingmenn gagnrýna þögn Ólafs Ragnars

Forseti Íslands verður að fara að gefa upp hvort hann ætli að gefa kost á sér til endurkjörs í sumar eða ekki. Þetta er mat Kristján Þórs Júlíussonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, og Róberts Marshall, þingmanns Samfylkingar. Framboðsfrestur rennur út þann 26. maí næstkomandi.

Tíðni fyrir 4G boðin út í ár

Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) stefnir að því að bjóða út tíðnir fyrir fjórðu kynslóð farsímaþjónustu (4G) síðar á árinu. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar.

Kafbátanjósnastöðin var eitt mesta hernaðarleyndarmálið

Svæði á Suðurnesjum, sem áður geymdi njósnastöð og eitt helsta hernaðarleyndarmál kalda stríðsins, er nú orðið aðgengilegt almenningi. Friðþór Eydal, fyrrverandi upplýsingafulltrúi Varnarliðsins, er að skrifa bók þar sem hann hyggst upplýsa um ýmis mál sem Íslendingar hafa til þessa haft litla vitneskju um.

Hættuástand þegar fjórtán manna fiskiskip varð stjórnvana

Fiskiskipið Páll-Jónsson GK-007 varð stjórnvana um fimmleytið í dag þegar skipið var í innsiglingu út frá Grindavík með 14 í áhöfn. Þó var hægt að stýra skipinu að einhverju leyti með hliðarskrúfum. Óskað var eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar og varðstjórar í stjórnstöð kölluðu strax út með mesta forgang björgunarskip Slysvarnarfélagsins Landsbjargar, Odd V. Gíslason og björgunarsveitina í Grindavík. Þá var þyrla LHG einnig kölluð út á mesta forgang.

Farþegi réðst á leigubílstjóra

Farþegi réðst á leigubílstjóra á höfuðborgarsvæðinu á þriðja tímanum í dag á meðan bílstjórinn var að keyra. Bílstjórinn náði að gera leigubílastöðinni viðvart og komst hann að lögreglustöðinni við Dalveg í Kópavogi þar sem árásarmaðurinn var handtekinn. Hann mun vera undir áhrifum lyfja eða fíkniefna og var færður í fangageymslu. Skýrsla verður tekin af honum þegar rennur af honum.

Fundað með Samtökum fjármálafyrirtækja um vaxtadóm

Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, gerir ráð fyrir að nefndin muni funda með Samtökum fjármálafyrirtækja í fyrramálið til að fara yfir stöðu mála eftir vaxtadóminn sem Hæstiréttur kvað upp á miðvikudag. Samkvæmt dómnum máttu lánastofnanir ekki rukka lántaka um seðlabankavexti fyrir gengistryggð lán fyrir þann tíma sem liðinn var áður en lánin voru dæmd ólögleg.

Íran stöðvar olíusölu til Breta og Frakka

Íran hefur stöðvað sölu á olíu til breskra og franskra fyrirtækja. Olíumálaráðherra Írans tilkynnti þetta í dag. Aðildarríki Evrópusambandsins höfðu áður samþykkt að hætta að flytja inn olíu frá Íran frá og með 1. júlí næstkomandi. Sú ákvörðun Evrópusambandsins er tekin til þess að þrýsta á Írani að hætta tilraunum með úraníum. Slíkt efni er hægt að nota í friðsamlegum tilgangi en líka til þess að hana gereyðingarvopn. Kjarnorkustofnun Sameinuðu þjóðanna telur sig hafa upplýsingar um að Íran sé að þróa slík vopn en írönsk stjórnvöld segja að allar þróanir með úraníum séu í friðsamlegum tilgangi.

Obama ætlar að vinna kosningar með Facebook

Facebook mun skipta sköpum í kosningabaráttu Baracks Obama, forseta Bandaríkjanna, í forsetakosningum sem fram fara síðar á þessu ári. Kerfisfræðingar á vegum kosningastjórnar Obama eru nú að byggja umfangsmikinn gagnagrunn sem virkar þannig að hægt verður að safna upplýsingum um milljónir kjósenda í gegnum Facebook. Þannig býst kosningastjórnin við því að hægt verði að ná til kjósenda eftir leiðum sem hafa ekki verið farnar aftur.

Braut upp útidyrahurð hjá fyrrverandi unnustu

Karlmaður braut upp útidyrahurð hjá fyrrverandi kærustu sinni á Laugavegi á fimmta tímanum í nótt. Hann vildi eitthvað ræða við konuna en að sögn lögreglu var hún ekki eins áfjáð um að eiga samræður við hann og kallaði því til lögreglu sem vísaði manninum frá. Kallað var til smiðs sem sá um að dyrunum væri lokað.

Björgunarbátar könnuðu ástands báts við Garðskaga

Tveir björgunarbátar Landsbjargar frá Hafnarfirði voru sendir af stað um hálfníuleytið í gær þegar sjálfvirkar staðsetningar báts sem staddur var um 20 milur norður af Gaðskaga hættu að skila sér. Reynt var að ná sambandi við bátinn eftir öllum mögulegum fjarskiptaleiðum og farsíma án árangurs. Hægt var þó að kalla fram staðsetningu á handvirkan hátt frá staðsetningartækjum bátsins

Whitney borin til grafar í dag

Poppstjarnan Whitney Houston verður jarðsett í dag við hlið föður síns í Fairview kirkjugarðinum í Westfield. Fjögurra klukkustunda löng minningarathöfn um hana fór fram í New Hope Baptistakirkjunni í New Jersey í gær. Cissy móðir hennar og Bobbi Kristina dóttir hennar hágrétu þegar kista Whitney var borin út úr kirkjunni eftir að athöfninni lauk. Athöfnin var ákaflega falleg en þó bar þann skugga á að Bobby Brown, fyrrverandi eiginmaður Whitney, stormaði út úr kirkjunni áður en athöfnin hófst. Hann mun hafa verið ósáttur við sætaskipan í kirkjunni.

Stöðvuðu unglingasamkvæmi á Eiðistorgi

Mjög ölvaður ökumaður ók bíl á staur á Gullinbrú við Grafarvog á þriðja tímanum í nótt. Ekki vildi betur til en svo að eldur kviknaði í bílnum en leigubílstjóri sem átti leið hjá náði að slökkva hann með handslökkvitæki. Ökumanninn sakaði ekki, en hann var handtekinn og gisti fangageymslur í nótt. Bíllinn er ónýtur og staurinn skemmdur.

Eldfjall fékk flest verðlaun

Kvikmyndin Eldfjall fékk flest verðlaun á Edduhátíðinni í kvöld, en myndin var valin besta kvikmynd ársins, Theodór Júlíusson fékk verðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki, Rúnar Rúnarsson var valinn leikstjóri ársins og myndin fékk verðlaun fyrir besta handrit.

Skaði er stuttmynd ársins

Stuttmyndin Skaði var valin stuttmynd ársins á Eddunni sem fram fer í kvöld. Það voru þeir Sigurjón Kjartansson og Óskar Jónasson sem afhentu verðlaunin. Verðlaunin verða svo afhent þegar líður á kvöldið. Landinn var valinn frétta- eða viðtalsþáttur ársins.

Höfðu efasemdir um að Whitney væri sú rétta

Kevin Costner mótleikari Whitney Houston í Bodyguard hélt hjartnæma ræðu við útför hennar í dag. Hann sagði að framleiðendur myndarinnar hefðu upphaflega haft verulegar efasemdir um að Whitney væri rétta manneskjan í hlutverkið. Þá hefði alls ekki staðið til að lagið I will always love you væri í myndinni.

Whitney borin til grafar - bein útsending

Útför söngkonunnar Whitney Houston fer fram nú í kvöld og hófst hún klukkan fimm að íslenskum tíma. Búist var við að um 1500 manns, vinir og ættingjar yrðu viðstaddir, en milljónir manna fylgjast með útsendingunni á Netinu. Stevie Wonder syngur við jarðarförina og Kevin Costner, sem lék á móti henni í kvikmyndinni Bodyguard flytur minningarorð. Útförin fór fram í kirkju í Newark þar sem Whitney söng í bernsku. Whitney Houston lést á hóteli í Beverly Hills um síðustu helgi. Grunur leikur á að hún hafi látist af völdum lyfjaneyslu en beðið er niðurstaðna úr eiturefnaprófi til að staðfesta það.

Líst vel á að stjórnlagaráð komi aftur saman

Gísla Tryggvasyni, lögfræðingi og stjórnlagaráðsfulltrúa, líst vel á hugmyndir meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis þess efnis að stjórnlagaráð komi saman á fjögurra daga fundi í byrjun mars. Tilgangur fundarins verður að fara yfir spurningar og tillögur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að mögulegum breytingum á frumvarpinu. Gísli vill jafnframt að stjórnlagaráð fái frekara tækifæri til að kynna sjónarmið sín fyrir almenningi, svo sem í sjónvarpi.

Safnasafnið fékk Eyrarrósina

Safnasafnið - Alþýðulistasafn Íslands á Svalbarðsströnd fékk afhenta Eyrarrósina við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Aðstandendur safnsins fengu veglegan verðlaunagrip sem hannaður er af Steinunni Þórarinsdóttur listamanni og 1,5 milljónir króna í verðlaunafé. Önnur verkefni sem voru tilnefnd eru Sjóræningjahúsið við Patreksfjörð og Tónlistarhátíðin Við Djúpið á Ísafirði.

Biðja um frið fyrir Frosta snjókall

Snjókarlinn Frosti á Ráðhústorgi á Akureyri hefur tekið gleði sína á ný því nefið hans, sem hvarf á dögunum, er fundið. Ekki nóg með það því annað nef sem hvarf af honum fyrr í vikunni fannst einnig og hafði því verið dröslað til Dalvíkur.

Stungin til bana í miðborg Malmö

Kona á fertugsaldri var stungin til bana á götu úti í miðborg Malmö í Svíþjóð í gær. Fjöldi vegfarenda varð vitni að morðinu, þar á meðal tvær ungar dætur konunnar, en verknaðurinn átti sér stað á háannartíma. Lögreglan handtók stuttu síðar karlmann nálægt morðvettvangi útataðan í blóði. Fórnarlambið og árásarmaðurinn eru talin hafa átt í ástarsambandi fyrir einhverju síðan en lögreglan segir að morðið megi rekja til forræðisdeilu þeirra.

Katrín Jakobsdóttir setur háskóladaginn

Háskóladagurinn fer fram í dag og því má búast við margmenni í húsakynnum Háskóla Íslands og húsakynnum annarra háskóla á landinu þegar líður á daginn. Á þessum degi kynna háskólar nám sitt og starfsemi með fjölbreyttum og skemmtilegum hætti. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra mun setja daginn í Háskólanum í Reykjavík klukkan tólf á hádegi. Þar verða rektorar allra skólanna saman komnir. Á eftir því mun ráðherra afhenda verðlaun vegna Hugmyndasamkeppni HR. Þá mun hún opna Vísindasmiðju Háskóla Íslands með formlegum hætti í Háskólabíói klukkan eitt.

Lögreglan stöðvaði par með þvottavél

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók par sem var að bera þvottavél úr fjölbýlishúsi um klukkan hálfþrjú í nótt. Maðurinn hljóp af vettvangi áður en lögregla kom en gaf sig síðar fram við lögreglu. Parið var vistað í fangageymslu og verður þar þangað til hægt verður að ræða við þau.

Pétur Jóhann mætti á Edduna í hlébarðabúningi

Pétur Jóhann Sigfússon skemmtikraftur stal senunni á Eddunni í kvöld þegar að hann afhenti bestu leikkonu ársins verðlaun ásamt Þorsteini Guðmundssyni leikara. Pétur fetaði þannig í fótspor Bjarnheiðar Hannesdóttur sem vakti gríðarlega athygli í fyrra þegar hún afhenti verðlaun fyrir vin sinn í þessum sama galla á Eddunni. "Bjarnheiður Hannesdóttir sá sér ekki fært að mæta þannig að ég hringdi í hana,“ sagði Pétur Jóhann og tók fram að hann teldi nú að gallinn hefði farið betur á Bjarnheiði en honum sjálfum. "Því er er ekki að neita,“ sagði hann.

Grunaður um að hafa ætlað að ráðast á þinghúsið

Karlmaður var handtekinn í gær nærri þinghúsinu í Washington í Bandaríkjunum vegna gruns um að hann hafi ætlað að fremja hryðjuverk. Maðurinn er 29 ára gamall og er sagður vera ólöglegur innflytjandi frá Marokkó. Yfirvöld í Washington telja að maðurinn hafi ætlað að sprengja sig í loft upp við þinghúsið. Alríkislögreglan, FBI, og öryggisverðir i þinghúsinu segja að fylgst hafi verið með manninum vikum saman. Yfirvöld segja að almenningi hafi ekki stafað hætta af manninum.

Skipar 22 nýja kardínála í dag

Benedikt sextándi páfi mun skipa 22 nýja kardínála við hátíðlega athöfn í Péturskirkjunni í Róm í dag. Kardínálar eru æðstu embættismenn páfans. Nýir og gamlir kardínálar hittust á lokuðum fundi í gær til að ræða hvernig hægt væri að auka trú almennings, en hún þykir fara þverrandi víðs vegar um heim. Eftir athöfnina í dag munu kardínálar í kaþólsku kirkjunni verða alls 213 talsins. Þar af eru 125 undir áttatíu ára aldri. Það eru þeir sem munu taka þátt í vali á nýjum páfa þegar Benedikt sextándi fellur frá.

Öll heimsbyggðin mun geta fylgst með útför Whitney

Gert er ráð fyrir að öll veröldin muni geta fylgst með þegar Whitney Houston verður borin til grafar í dag klukkan fimm í dag að íslenskum tíma. Blaðið Los Angeles Times segir að einungis fjölskylda og vinir verði viðstaddir útförina en AP fréttastofan ætlar að sýna hana á Netinu. Þeir em verða viðstaddir útförina eru Bobby Brown, fyrrverandi eiginmaður hennar, Kevin Costner mótleikari hennar úr Bodyguard, Dionne Warwick, Alicia Keys og fleiri frægir.

Vilja aðstoða uppreisnarmenn

Sýrlenski herinn hélt áfram þungum sprengjuárásum á íbúa borgarinnar Homs í gær, daginn eftir að Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti harðorða ályktun þar sem krafist er afsagnar Bashars al-Assads Sýrlandsforseta.

Skipaður fiskimálaráðherra

Leo Johannesen, lögmaður Færeyja, hefur skipað Jacob Westergaard í embætti fiskimálaráðherra. Johannesen leysti Jákup Mikkelsen úr embættinu því að hann þótti of tengdur aðilum í sjávarútvegi. Til dæmis er mágur hans umsvifamikill útgerðarmaður.

Segist ekki njóta trausts

Christian Wulff, forseti Þýskalands, sagði af sér eftir að saksóknari fór fram á að hann yrði sviptur friðhelgi svo hægt verði að rannsaka grun um spillingarmál. Angela Merkel leitar nú að arftaka.

Þörf á breyttri stefnu gagnvart arabalöndunum

Áhrif Vesturlanda í arabalöndum eru sífellt að dvína að mati Jordi Vaquer i Fanes, forstöðumanns alþjóðamálastofnunar háskólans í Barcelona, sem hélt nýlega fyrirlestur í Háskóla Íslands um stefnu og stöðu Evrópusambandsins í heimshlutanum í kjölfar arabíska vorsins. Stefnubreytingar sé því þörf.

Vinna verkefnisstjórnar gildi

Samorka – samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi, samþykkti ályktun á aðalfundi sínum í gær þar sem vonbrigðum er lýst af stöðu rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Samorka vill að stuðst verði við faglega röðun verkefnisstjórnar frá því í júní 2011.

Jarðakaup Kínverja dæmd ólögmæt

Dómstóll á Nýja-Sjálandi hefur komist að þeirri niðurstöðu að kínverskum fjárfestum sé óheimilt að kaupa þarlendar bújarðir í stórum stíl.

Trufla starfsemi Leitarstöðvar

Konur með aðrar silíkonfyllingar en hina umdeildu PIP púða leita nú í auknum mæli til Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins eftir ómskoðun, segir yfirlæknir á stöðinni.

Vilja að ráðherra hlutist til

Hópur foreldra barna í Hamra- og Húsaskóla í Grafarvogi óskaði eftir því við Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra á fimmtudag að hún skoði sameiningu skólanna. Unglingadeildir skólanna eiga að sameinast Foldaskóla í haust.

Takmarkanir hafa lítil áhrif á RÚV

Meðallengd sjónvarpsauglýsinga hjá Ríkisútvarpinu er mun styttri en þær takmarkanir sem eru í nýju frumvarpi. Ráðherra segir frumvarpið geta breyst ef athugasemdir gefa tilefni til þess. Það verður lagt fram í byrjun mars.

Rök Íslands skynsamleg

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að Íslendingar hafi sett fram skynsamleg rök í nýafstöðnum viðræðum við Noreg og ESB um makrílveiðar.

Reiðubúin að opna Skálafell

Borgarráð hefur samþykkt að verja 2,5 milljónum króna til að unnt sé að opna skíðasvæðið í Skálafelli út veturinn. Tilskilið er þó að hin sveitarfélögin, sem hlut eiga að máli, setji einnig fé í verkefnið.

Mun fleiri nota hjól eingöngu

Mikil aukning hefur orðið á hjólreiðum í Reykjavík, samkvæmt nýrri og viðamikilli ferðavenjukönnun. 3,8% aðspurðra fara allra ferða sinna á reiðhjóli, en aðeins 0,8% svöruðu á þennan veg árið 2002 þegar sambærileg könnun var gerð.

Sjá næstu 50 fréttir