Fái að breyta verðtryggðu í óverðtryggt 20. febrúar 2012 13:24
Neytendasamtökin vilja að heimili sem vilja breyta verðtryggðum lánum í óverðtryggð eigi að fá að gera það með lágum tilkostnaði. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn samtakanna sendi frá sér í dag en þar segir að þessa sé krafist af öllum þeim aðilum sem veiti íbúðarlán, hvort sem lántakendur hafa verið í viðskiptum við viðkomandi eða eru að færa viðskipti sín til annars fjármálafyrirtækis. Stjórnin vill að þetta verði gert með því að: 1) Uppgreiðslugjald á neytendalánum verði bannað. 2) Lántökugjald sé innheimt eingöngu í formi fastrar krónutölu, til að mæta raunverulegum kostnaði vegna umsýslu lánsins, en ekki sem hlutfall af lánsupphæð. 3) Stimpilgjald verði ekki lagt á breytt lán, jafnvel þótt breytingar verði á lánsupphæðum og komi lagabreyting til ef nauðsyn er. „Stjórn Neytendasamtakanna hvetur stjórnvöld til hefja þegar undirbúning á nýju lánakerfi í húsnæðismálum þar sem landsmönnum eru tryggð sambærileg kjör og sem bjóðast í helstu nágrannalöndum Íslendinga. Í því sambandi ber einkum að horfa til Danmerkur," segir í ályktun stjórnar. „Neytendasamtökin leggja á það áherslu að þau fjölmörgu heimili sem eru í greiðsluvanda fái skjóta afgreiðslu þegar þau leita aðstoðar hjá til þess bærum aðilum. Jafnframt eru stjórnvöld hvött til að auka enn frekar vaxtabætur til að mæta erfiðri stöðu heimilanna.„ Neytendasamtökin styðja það úrræði fjármálafyrirtækja að bjóða óverðtryggð lán með föstum vöxtum til íbúðarkaupa. Íbúðalánasjóður er hvattur til þess að bjóða upp á slík lán sem fyrst. Neytendasamtökin leggja áherslu á að lögum eða reglum verði breytt þannig að sett verði þak á mögulega vaxtahækkun slíkra lána sem og á verðtryggðum lánum.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira