Allir þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps 20. febrúar 2012 12:08 Lögreglan gerði mikla leit í Bryggjuhverfinu í nóvember í fyrra. mynd/ egill.
Þrír menn hafa verið ákærðir fyrir tilraun til manndráps en þeir er sakaðir um hafa staðið að skotárás við Bryggjuhverfið í Reykjavík í nóvember í fyrra. Sakborningarnir þrír, karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri, fengu ákærurnar í hendurnar nú fyrir helgi. Árásin sem þeir eru ákærðir fyrir á rætur sínar að rekja til skuldauppgjörs tveggja manna. Fundur sem þeir og nokkrir til viðbótar áttu um málið, við bílastæði í bryggjuhverfinu, endaði hins vegar með því að upp úr sauð og þá mun einn hinna ákærðu hafa tekið upp haglabyssu og skotið í átt að fólksbíl þar sem í sátu tveir menn. Fyrra skotið hæfði ekki. Mennirnir sem voru í bílnum, sem skotið var á, sluppu ómeiddir og reyndu að komast undan. Árásarmennirnir þrír veittu þeim hins vegar eftirför á öðrum bíl og á hringtorgi skammt frá skutu þeir öðru sinni úr haglabyssunni, út um glugga bílsins sem þeir voru á, og hæfðu bílinn sem þeir voru að elta með þeim afleiðingum að afturrúða brotnaði og miklar skemmdir urðu auk þess sem brot úr hagli hafnaði í baki vinstra aftursætis bílsins. Mennirnir tveir sem skotið var á komust undan ómeiddir. Lögreglan handtók svo árásarmennina þrjá og voru þeir úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þótt einn og sami maðurinn hafi í bæði skiptin skotið af haglabyssunni eru allir þrír í hans hópi ákærðir fyrir tilraun til manndráps.
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira