Innlent

Bílvelta í Flóanum

Mynd/MHH - dfs.is
Bíll með tvo innanborðs fór út af veginum í Flóanum í hádeginu, við bæinn Kjartansstaði. Bíllinn lenti í krapa og við það missti ökumaðurinn stjórnina með þeim afleiðingum að bíllinn valt. Frá þessu er greint á sunnlenska fréttamiðlinum dfs.is. Um erlenda ferðamenn á bílaleigubíl var að ræða og þurfti að beita klippum til þess að ná ökumanninum út. Farþeginn komst út úr bílnum af eigin sjálfsdáðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×