Borgarafundur í Háskólabíói í kvöld 23. janúar 2012 10:34 Karl Sigfússon er á meðal framsögumanna á fundinum.
Boðað hefur verið til borgarafundar í Háskólabíóí í kvöld þar sem staða lánþega verður í brennidepli. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og stendur í tvo tíma. Auk reynslusagna verður farið í það hvernig verðtryggingin virkar og bent á lausnir. Fundurinn er sjálfstætt framhald fjölmenns fundar sem haldinn var á sama stað síðastliðið haust. Fundarstjórar verða þau Eiríkur S. Svavarsson og Rakel Sigurgeirsdóttir. „Framsögumenn eru allt þekktir bloggara og/eða greinahöfundar sem hafa látið málefni lánþega til sín taka. Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, arkitekt, skrifaði þó nokkrar greinar á visir.is síðastliðið sumar. Karl Sigfússon, verkfræðingur, skrifaði greinina: Ég er kúgaður millistéttarauli sem vakti gríðarlega athygli. Þessi segja sögu sína á fundinum en setjast þá í pallborð með Sverri Bollasyni, skipulagsverkfræðingi sem er meðal þeirra sem standa á bak við Fésbókarsíðuna: „Skuldabyrði ungs fólks".“ „Áherslan á seinni hluta fundarins beinist að lausnum og því hvernig verðtryggingin virkar. Framsögumenn í þeim hluta eru: Marinó G. Njálsson, ráðgjafi, sem er vel þekktur fyrir skelegg og skýr bloggskrif um málefni lánþega gagnvart bönkunum. Guðbjörn Jónsson, fyrrverandi ráðgjafi, er ekki síður skeleggur bloggari en hann hefur líka gert fræðslumyndband í þremur hlutum um verðtrygginguna sem er aðgengilegt inni á You Tube.“ segir í tilkynningu. „Með þessum tveimur í pallborði verða: Andrea J. Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, sem allir ættu að þekkja af einarði baráttu í þágu heimilanna í landinu og Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR, sem er sennilega best þekktur fyrir að ylja stjórnarmönnum lífeyrissjóðanna undir uggum með beinskeyttum bloggskrifum,“ segir ennfremur.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Sjá meira