Fleiri fréttir

Lítið var laust á hótelum yfir hátíðarnar

Áætlað er að ríflega 4.000 ferðamenn hafi heimsótt Reykjavík nú um áramótin. Í fyrra er talið að um 3.500 ferðamenn hafi sótt borgina heim, að mati Höfuðborgarstofu.

Fjöldi nýnema mætir aldrei

Brottfall 1. árs nema við Háskóla Íslands er of hátt. Hafi skráningarhlutfall ekki breyst eftir hrun hafa 1.500 stúdentar ekki mætt, hætt snemma eða fallið á prófi. Stöðupróf eru íhuguð til að mæta brottfalli.

Hægt að fylgjast með ferðum strætó á vefnum

Með nýju rauntímakorti á vef Strætó bs. er nú hægt að fylgjast með ferðum strætisvagna í rauntíma. Þannig geta strætófarþegar með hjálp nýjustu tækni séð hvar vagninn sem þeir ætla að taka sér far með er staddur á hverjum tíma.

Norðurpóllinn á þunnum ís

Bráðnun íssins við Norðurpólinn er mun meiri en áður var talið. Ísinn hefur minnkað um allt að 75% á síðastliðnum 100 árum.

Aðeins helmingur flugferða á réttum tíma

Aðeins um helmingur véla Icelandair og Iceland Express frá landinu var á réttum tíma seinnihluta desember. Álíka hlutfall af ferðum Icelandair til Keflavíkur stóðst hinsvegar áætlun. Þetta kemur fram á vefsíðunni túristi.is.

Frummatsskýrsla um snjóflóðavarnir kynnt

Frummatsskýrsla um "ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla á Ísafirði“ hefur verið lögð til athugunar og kynningar hjá Skipulagsstofnun. Skýrslan fer í auglýsingu rétt fyrir eða eftir áramót og hefst þá formlega kynningarferlið. Skýrsluna er hægt að nálgast á vef Náttúrufræðistofnunar Vestfjarðar ásamt teikningum og fylgiskjölum.

Rýmdu og lokuðu skemmtistað í Kópavogi í nótt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rýmdi og lokaði skemmtistað í Kópavogi upp úr klukkan fimm í morgun, þar sem skemmtanahald var í fullum gangi og að minnsta kosti 50 gestir innandyra.

Íkveikjur á fjórum stöðum

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu þurfti að slökkva í fjórum ruslagámum í gærkvöldi og í nótt, en hvergi hlaust alvarlegft tjón af.

Brennuvargar herja á borgarbúa í Los Angeles

Slökkviliðið í Los Angeles hefur þurft að glíma við yfir 40 íkveikjur í heimahúsum og bílum um áramótin og hefur fjöldi slíkra útkalla á einni helgi ekki verið meiri í borginni síðan í óeirðunum þar árið 1992.

Útsölur hefjast víða í dag

Útsölur hefjast víða í dag, meðal annars í mörgum verslunum í Kringlunni og Smáralind, en sumstaðar hófust þær fyrir áramót.

Myndir frá nýársmóttöku forsetans

Eftir að ávarpa íslensku þjóðina og veita ellefu Íslendingum heiðursverðlaun hélt forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, árvissa nýársmóttöku þar sem ráðherrum, hæstaréttardómurum, alþingismönnum, sendiherrum og fleirum var boðið til Bessastaða til samkvæmis. Ljósmyndari fréttastofu var á staðnum og smellti af þegar gestirnir mættu á staðinn. Meðal þeirra voru Vigdís Finnbogadóttir, Geir H. Haarde, Jón Bjarnason, Karl Sigurbjörnsson og fleiri.

Fyrrverandi meðlimur japanskrar trúarreglu gefur sig fram

Fyrrverandi meðlimur trúarreglunnar Aum Shinrikyo í Japan hefur gefið sig fram eftir að hafa verið eftirlýstur í 17 ár. Söfnuðurinn stóð að baki efnavopnaárás í neðanjarðarlestarstöð í Tókýó árið 1995. 13 létust í árásinni og rúmlega 6.000 særðust.

Krókódíla-hrekkur endar með skelfingu

Þjálfari ruðningsliðs í Bandaríkjunum langaði aðeins að hrekkja liðsmenn sína og pumpa upp andann fyrir komandi leiktíð. Af því tilefni leigði hann lifandi krókódíl, kom með hann á æfingu og fékk krókódílatemjara til að klæða sig upp sem ruðningsmann og glíma við dýrið. Það fór þó ekki betur en svo að krókódílatemjarinn rann og datt í átökunum við dýrið og á svipstundu hafði krókódíllinn læst sig um lærið á honum. Ruðningsliðið fylgdist með í fullkominni skelfingu.

Fann giftingarhringinn á gulrót eftir 16 ára leit

Sænsk kona er skýjunum eftir að hún fann giftingarhring sem hún glataði fyrir 16 árum. Hringurinn fannst í matjurtargarði konunnar en hann var fastur utanum gulrót sem konan hafði beðið með að taka upp þangað til nú.

Hreystimenni hófu árið á sjósundi

Fjöldi manns hóf nýtt ár í ísköldum sjónum í Nauthólsvíkinni í morgun. Vont en það venst sagði einn prúðbúinn sjósundsnagli. Ískaldur sjór hefur væntanlega ekki verið það fyrsta sem allir hugsuðu um þegar augun voru opnuð á fyrsta degi ársins tvöþúsund og tólf í morgun. Margir hafa að öllum líkindum verið frekar lúnir eftir eftir áramótafögnuð næturinnar, en þó eru Íslendingar harðir af sér og skelltu tæplega þrjúhundruð manns sér í sjóinn í Nauthólsvíkinni. Fallegar konur í sínu fínasta pússi, herramenn með slaufu í hárinu og svona mætti lengi telja. Einn harðasti sjósundsmaður landsins lét sig að sjálfsögðu ekki vanta frekar en fyrri daginn.

Pólsk hjón eignuðust fyrsta barnið

Pólsk hjón eignuðust fyrsta barnið sem fæddist á Íslandi árið 2012. Þau hafa búið hér í tvö ár og lofa mjög heilbrigðisþjónustuna á Íslandi. Það var myndarlegur drengur sem kom í heiminn þegar fimm mínútur voru liðnar af nýja árinu. Hann er þrettán merkur og fimmtíu sentimetrar. Fæðingin gekk vel og voru foreldrarnir að tygja sig heim þegar við hittum þau skömmu eftir hádegið í dag.

Banvæn fagnaðarlæti á Ítalíu

Ekki hafa allar þjóðir sömu gæfu að fagna og Íslendingar, sem sluppu gegnum áramótin að mestu leyti stórslysalaust. Á Ítalíu dóu tveir og 561 maður slösuðust þegar gamla árið var sprengt burt með þúsundum tonna af ólöglegum flugeldum. Af þeim sem særðust voru 76 börn undir tólf ára aldri. Sprengjugleði Ítala á gamlárskvöld virðist eiga sér lítil takmörk, en þar, líkt og hér, er hefð að sprengja flugelda á gamlárskvöld. Um 2.000 þorp og bæir höfðu bannað flugelda í ár, en engu að síður gerði lögreglan þúsundir tonna af flugeldum upptæk, þar á meðal yfir þúsund sprengivörpur.

Dansandi augnabrúnir slá í gegn

Myndband af stúlku sem hreyfir á sér augnabrúnirnar í takt við tónlist hefur vakið gífurlega lukku á youtube. Myndbandið var sett inn 29. desember síðastliðinn. Á þremur dögum hafa tæpar átta milljónir manna skoðað það. Stelpan er 13 ára og kemur frá Sydney í Ástralíu. Hún hefur aðdáunarverða stjórn á andlitsvöðvum sínum. Myndbandið kallast the girl with the funny talent, eða stúlkan með grínlegu hæfileikana. Það má skoða hér.

Cameron fær sérhannað smáforrit fyrir iPad

Forsætisráðherrann David Cameron mun notast við sérstaka útgáfu af iPad spjaldtölvunni til að fylgjast með stöðu mála í Bretlandi. Cameron mun hafa aðgang að nýjustu fréttum ásamt upplýsingum um atvinnuleysi, glæpatíðni og fleira.

Árið fer skart af stað hjá lögreglu

Nýja árið heilsar lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu með önnum. Upp úr hádegi var karlmaður handtekinn í Kópavogi en hans hefur verið leitað. Hann er eftirlýstur vegna vangoldinna sekta. Mun hann þurfa að dvelja í fangelsi eitthvað frameftir á nýju ári. Um hálf tvö var tilkynnt um skemmdarverk í Hólabrekkuskóla. Þar hafði rúða verið brotin með einhverskonar sprengju. Ekki er vitað um gerendur.

Áramótin á myndskeiði

Baldur Hrafnkell, myndatökumaður Stöðvar 2, brá sér á kreik í gærkvöldi og filmaði kveðjur Íslendinga til liðins árs og sprengjuæðið sem mætti hinu nýja þegar það gekk í garð. Þar má sjá Hallgrímskirkjuturn í marglitu neistaregni, börn með stjörnuljós, fólk að brosa og fólk með vín í flöktandi bjarma áramótabrennu. Yfir öllu saman glymur svo gamalkunnugt skátalag og gleðin er við völd.

Yfirvöld í Norður-Kóreu boða hagsæld í áramótaávarpi

Þegnar Norður-Kóreu eru hvattir til að sameinast og vernda nýskipaðann leiðtoga landsins, Kim Jong-Un. Í áramótaávarpi yfirvalda í Norður-Kóreu kemur fram að stjórnvöld þar í landi muni stemma stigum við matarskorti í landinu ásamt því að auka umsvif hersins.

Ekkert banaslys á sjónum

Nú við áramót hefur þeim merka áfanga verið náð í annað sinn í sögunni að ekkert banaslys hefur orðið meðal íslenskra sjómanna á árinu sem er að líða. Síðast gerðist það árið 2008. Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að ljóst sé að öryggi íslenskra sjómanna hafi aukist til mikilla muna sem og öryggisvitund þeirra, sem hafa tekið miklum stakkaskiptum á síðustu áratugum. Má með sanni segja að starf Slysavarnaskóla sjómanna í fræðslu til sjómanna um öryggismál hafi þar en og aftur sannað mikilvægi sitt.

Embætti forseta nú virkt afl í íslenskum stjórnmálum

Gunnar Helgi Kristinsson, stjórnmálafræðingur hjá Háskóla Íands, segir að embættistíð Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, muni hafa varanlegar breytingar í för með sér. Hann segir að Ólafur Ragnar hafi aukið völd forsetans til muna og gert embættið að virku afli í íslenskum stjórnmálum. Ekki sé hægt að útiloka það að næstu forsetar lýðveldisins muni beyta synjunarvaldinu á sama máta og Ólafur hefur gert.

Slapp við varanlegan augnskaða

Sjö ára drengur sem brenndist í nótt þegar hann fékk flugeld í andlitið hefur verið útskrifaður af Landspítalanum. Hann hlaut ekki varanlega áverka á augum, en brenndist nokkuð illa í andliti. Óhappið varð þegar hann og móðir hans stóðu álengdar og horfðu á aðra skjóta upp rakettum. Einn flugeldurinn fór ekki á loft heldur sprakk á jörðinni og drengurinn fékk glæður af honum í andlitið. Strákurinn var ekki með öryggisgleraugu. Af þessu óhappi má því draga þann lærdóm að jafnvel þó maður sjái ekki sjálfur um að kveikja í flugeldunum heldur standi til hliðar og fylgist með sé engu að síður vissara að hafa öryggisgleraugu á sér.

Ellefu Íslendingar sæmdir Fálkaorðu

Forseti Íslands sæmdi ellefu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Hér að neðan er listi yfir þá sem hlutu orðuna í dag. 1. Arnar Jónsson leikari, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar. 2. Eymundur Magnússon bóndi, Vallanesi, riddarakross fyrir frumkvæði á sviði búskaparhátta og matvælamenningar.

Biskup segir landsdómsákæruna þjóðarsmán

"Gata hefnda og haturs er blindgata," sagði biskup Íslands, séra Karl Sigurbjörnsson í prédikun sinni í dómkirkjunni í morgun, og sagði að Landsdómsákæran "gegn einum manni væri vottur þess" að þjóðin hefði leiðst inn á slíkar ófærur. Hann sagði mikilvægt að lögsækja vegna afbrota og dæma hina seku, en þótti hins vegar umhugsunarvert ef menn væru "dæmdir" án dóms og laga með ofsafenginni og óvæginni umræðu. Hann bað fólk að huga að orðum sínum og láta af gífuryrðum og illmælgi á fréttamiðlum og bloggum.

Skotterta sprakk við jörðu í Breiðholti í gær

Íbúar í Vesturbergi í Breiðholti áttu fótum sínum fjör að launa í gærkvöldi þegar flugeldar skottertu sprungu án þess að takast á loft. Íbúi í Vesturbergi segir sprenginguna hafa verið ótrúlega sjón. Framkvæmdarstjóri Landsbjargar bendir fólki á að tilkynna slík atvik.

Ólafur telur ríkisvaldið of umsvifamikið

Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson ávarpaði þjóð sína frá Bessastöðum í dag. Þar fór hann í stuttu máli yfir atburði liðins árs. Í upphafi komandi árs telur hann Ísland betur statt en ýmsar nágrannaþjóðir sínar sökum þess að Íslendingar gætu treyst á ríkulegar auðlindir.. "Ísland er að vissu leyti komið í var," sagði hann. "Þjóðin getur því átt í vændum betri kjör. Þá þurfum við að halda vel á málum, muna mistök okkar og draga af þeim lærdóm og loks hafa hugrekki til að feta nýja braut af ábyrgð."

Ólafur hyggst ekki bjóða sig fram aftur

Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, tilkynnti í nýársávarpi sínu að hann hyggðist ekki bjóða sig fram í næstu forsetakosningum. "Þó árin hafi liðið hratt er samt liðinn langur tími frá því ég ávarpaði ykkur fyrst úr þessum sal," sagði Ólafur og kvaðst hafa leitast við að sinna forsetaembættinu eftir bestu samvisku. Þær ákvarðanir sem hann hefur sem forseti þurft að taka hafa verið erfiðar, en jafnframt veitt honum mikla gleði.

Páfi fjallar um siðferðilegt uppeldi

Benedikt páfi gerði siðferðilegt uppeldi barna og heimsfrið í framtíðinni að umtalsefni í nýársprédikun sinni. "Mig langar til að minna á að það að innræta ungu fólki virðingu á sannleikanum og þekkingu á grundvallar gildum og dygðum þýðir í raun að horfa björtum augum til framtíðar," sagði hann í messunni og undirstrikaði mikilvægi þess að ungt fólk lærði "list friðsamlegrar sambúðar og gagnkvæma virðingu" en heimurinn sem það lifði í gæti kennt þeim að hegða sér á annan hátt.

Sjá næstu 50 fréttir