Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Asahláka á morgun - brýnt að moka frá niðurföllum Mikill snjór og klaki er víða um land og því er fólk beðið um að tryggja að vatn eigi greiða leið þegar hlýnar í veðri á morgun og um helgina. 5.1.2012 15:22
Humar innkallaður Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur innkallað blandaðan humar frá Humarsölunni ehf vegna að ofnæmis- og óþolsvaldurinn súlfít er ekki merktur á umbúðum vörunnar. Í tilkynningu segir að varan sé skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir súlfíti. Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir súlfíti eru beðnir um að farga henni eða skila til Humarsölunnar ehf., sem er til húsa að Básvegi 1, Reykjanesbæ. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Humarsölunnar ehf. í síma 867 6677. 5.1.2012 15:01
Húsleit í Tækniskólanum ólögmæt Umboðsmaður Alþingis kemst að þeirri niðurstöðu að húsleit í Tækniskólanum í febrúar árið 2010 hafi ekki verið í samræmi við lög. Þá leitaði lögreglan að fíkniefnum í skólanum og notaðist við fíkniefnahunda. Á sama tíma voru útgönguleiðir lokaðar. Yfir þúsund nemendur voru lokaðir inni á meðan. 5.1.2012 14:25
Hörð gagnrýni á ríkisstjórnina hjá formönnum ASÍ Formenn allra félaga og deilda landssambanda innan ASÍ hittust í morgun á fundi þar sem farið var yfir forsendur kjarasamninganna sem undirritaðir voru í vor. Endurskoðun samninganna á að vera lokið þann 20. janúar næstkomandi. 5.1.2012 14:04
Skrifaði ummæli á dv.is um Aratúnsmálið - þarf að borga 500 þúsund Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag konu um sextugt til þess að greiða 500 þúsund krónur vegna ummæla sem hún skrifaði í athugasemdarkerfi á vefnum dv.is. 5.1.2012 13:38
Landsbankinn biður bæjarstjóra Akureyrar velvirðingar "Þetta var yfirsjón af okkar hálfu og við höfum beðist velvirðingar á því,“ segir Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans, en bæjarstjóri Akureyrar, Eiríkur Björn Björgvinsson, var afar ósáttur við að hafa birst í sérstakri áramótaauglýsingu sem birtist í fjölmiðlum um hátíðirnar. 5.1.2012 13:37
Segir óánægju ríkja með stefnu forystumanna VG Megn óánægja ríkir innan Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs vegna þeirrar stefnu sem framlína flokksins hefur tekið, meðal annars í Evrópumálum. Formaður félags VG á Álftanesi útilokar ekki úrsögn sína úr flokknum. 5.1.2012 12:40
Þrjátíu hundsbit í borginni á síðasta ári Þrjátíu hundsbit voru tilkynnt til lögreglu höfuðborgarsvæðisins á síðasta ári og að minnsta kosti fjórir hundar voru aflífaðir í kjölfarið. Um helmingur hundaeigenda í Reykjavík hafa sótt einhvers konar hlýðninámskeið. 5.1.2012 12:27
Auglýsing Landsbankans hugsanlega brotleg við siðareglur Bæjarstjóri Akureyrar, Eiríkur Björn Björgvinsson, segir það forkastanlegt að hann skuli koma fyrir í sjónvarpsauglýsingu Landsbankans. Hann segir í viðtali við blaðið Akureyri Vikublað að hann hafi komið fyrir í auglýsingu bankans, sem var sýnd yfir allar hátíðarnar, en myndskeiðið var tekið upp þegar hann var fundarstjóri á kynningarfundi á vegum bankans fyrir nokkru. 5.1.2012 12:17
Íslensk rannsókn: Horfur sjúklinga batna stórlega Horfur sjúklinga með nýrnafrumukrabbamein hafa stórlega batnað samkvæmt nýrri íslenskri rannsókn sem birtist í virtu bandarísku læknatímariti í dag. Ástæðan er rakin til aukinnar notkunar á myndrannsóknum á öðrum sjúkdómum. 5.1.2012 12:05
Hver ætti að setjast að á Bessastöðum í vor? - Frábær þátttaka í könnun Lesendur Vísis eiga enn kost á að segja sína skoðun á þeim einstaklingum sem nefndir hafa verið til að taka við af Ólafi Ragnari Grímssyni forseta í vor. Forsetinn gaf það út í Nýársávarpi sínu að hann hyggist ekki sækjast eftir endurkjöri og því eru allar líkur á því að nýr bóndi taki við búinu á Bessastöðum. Vísir tók því saman lista með nokkrum nöfnum einstaklinga sem oft hafa verið nefndir í því sambandi. Gríðarlega góð þáttaka hefur verið í könnuninni sem hófst í gær en henni lýkur klukkan tvö í dag. Takið þátt með því að smella hér. 5.1.2012 11:48
Leigjendaaðstoðin fékk yfir þúsund fyrirspurnir á síðasta ári Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna fékk alls 1048 fyrirspurnir frá leigjendum á síðasta ári samkvæmt ársskýrslu Leigjendaaðstoðarinnar. 5.1.2012 11:20
Braust inn í bíl og stal gjöfum Brotist var inn í tvær bifreiðar í Skerjafirði í morgun og stolið gjöfum úr annarri þeirra. Þá var einnig brotist inn í bifreið í Breiðholti og þaðan stolið verkfærum. 5.1.2012 11:10
Leonard-þjófur dæmdur Karlmaður á átjánda aldursári var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi í þrjú ár í Héraðsdómi Reykjaness í dag. 5.1.2012 11:04
Eitt naut enn úti í haga eftir nautaat í Skagafirði "Við náðum ekki síðasta nautinu," segir einn smalinn sem lenti í nautaati í Steinstaðahverfi, skammt frá Varmahlíð í Skagafirði, í fyrradag. Hann naut liðsinnis fjögurra björgunarsveitarmanna Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð. Alls voru þeir sex við smalamennskuna. 5.1.2012 10:22
Með riffil, hnúajárn og vasahníf á skemmtistað í miðborginni Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur höfðað mál gegn karlmanni á fertugsaldri fyrir fjölda fíkniefna, vopna- og umferðarlagabrota. 5.1.2012 10:07
Ikea innkallar barnastólabelti IKEA biður vinsamlega þá viðskiptavini sem eiga ANTILOP háan barnastól frá framleiðanda númer 17389 og með framleiðsludagsetningar 0607-0911 að hafa samband við þjónustuver IKEA (http://www.ikea.is/thjonusta). 5.1.2012 09:25
Gefa varð trippum í Gæsadal næringu í æð Trippin tvö, sem hafa verið innikróuð nyrst í Gæsadal vikum saman, voru orðin svo veikburða að gefa þurfti þeim næringu í æð á leið til byggða, samkvæmt upplýsingum Matvælastofnunar. 5.1.2012 08:30
Björgunarsveitarmenn í nautaati fyrir norðan Fimm björgunarsveitarmenn á vélsleðum lentu í svæsnu nautaati í Steinstaðahverfi, skammt frá Varmahlíð í Skagafirði í fyrradag, en höfðu betur eftir þriggja klukkustunda viðureign. 5.1.2012 07:59
Brotist inn í tvo veitingastaði Brotist var inn í tvo veitingastaði í Reykjavík í gærkvöldi og áfengi og verðmætum stolið. 5.1.2012 07:50
Tólf loðnuskip í hnapp á miðunum Tólf loðnuskip eru nú í hnapp , um það bil 60 sjómílur aust- norðaustur af Langanesi og fleiri eru á leiðinni þangað. 5.1.2012 07:48
Mótmæla lokun sjúkrahússins í Neskaupstað Hollvinasamtök fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað mótmæla harðlega áformum um að loka sjúkrahúsinu í sex til átt vikur í sumar, enda sé það eina bráðasjúkrahúsið á Austurlandi. 5.1.2012 07:47
Konur mega loks afgreiða nærföt í verslunum í Saudi Arabíu Konungur Saudi Arabíu hefur loksins samþykkt reglugerð sem leyfir konum að starfa sem afgreiðslukonur í kvennnærfataverslunum landsins. 5.1.2012 07:28
Blóðug átök kostuðu 31 fanga lífið í Mexíkó Blóðug átök tveggja glæpagengja í fangelsi í norðurhluta Mexíkó kostuðu 31 fanga lífið og að minnsta kosti 13 liggja særðir á eftir. 5.1.2012 07:26
John McCain styður Mitt Romney John McCain fyrrum forsetaefni Repúblikanaflokksins styður Mitt Romney í baráttu hans við að ná útnefningu flokksins fyrir komandi forsetakosningar í landinu. Gaf McCain yfirlýsingu um það í gærkvöldi. 5.1.2012 07:25
Ferðamaður og tveggja ára dóttir hans myrt í Róm Ránstilraun endaði á hrottalegan hátt þegar kínverskur ferðamaður og tveggja ára dóttir hans voru skotin til bana á götu úti í Róm síðdegis í gær. 5.1.2012 07:22
ESB bannar innflutning á olíu frá Íran Evrópusambandið hefur ákveðið að banna innflutning á hráolíu frá Íran til aðildarlanda sinna. 5.1.2012 07:19
Hitaveita lögð til Skagastrandar Sveitarstjórn Skagastrandar hefur samþykkt samning við Rarik um lagningu hitaveitu í bæinn. Gert er ráð fyrir að fyrstu hús tengist hitaveitunni haustið 2013 og að öll hús hafi möguleika á tengingu haustið 2014. 5.1.2012 07:00
Hrottaleg líkamsárás í Árbæjarhverfi Þrír karlmenn spörkuðu upp hurð að íbúð í fjölbýlishúsi í Árbæjarhverfi í Reykjavík rétt fyrir miðnætti, ruddust þar inn og gengu í skrokk á húsráðanda. 5.1.2012 06:54
Bóndi í Vigur segir bannið ógna búskap „Er þetta ekki eignaupptaka, ég spyr. Við missum töluverðan hluta af okkar tekjum sem gerir erfiðara fyrir okkur að halda áfram búskap hér í eynni. Virði jarðarinnar rýrnar svo ofan í kaupið,“ segir Salvar Baldursson, hlunnindabóndi í Vigur í Ísafjarðardjúpi. 5.1.2012 06:00
Jólatrén sótt í flestum sveitarfélögum Reykjavíkurborg mun ekki hirða jólatré í ár, frekar en síðustu ár. Hins vegar bjóða einhver íþróttafélög upp á að hirða jólatré fyrir borgarbúa gegn gjaldi. Þá hafa Skógræktarfélag Reykjavíkur og Gámaþjónustan hafið samstarf um að hirða jólatré auk þess sem Íslenska gámafélagið sækir jólatré. 5.1.2012 06:00
Skeljungur þagði um ósöluhæfan áburð Skeljungi, jafnt sem Matvælastofnun, var ljóst á vormánuðum að áburður sem kominn var til landsins var ósöluhæfur. Þrátt fyrir það var tekin ákvörðun um selja áburðinn. Eins og bbl.is greindi frá í desember og fréttastofa Rúv á þriðjudag, var kadmíummagn í áburði sem Skeljungur flytur inn ríflega tvöfalt það sem leyfilegt er. 5.1.2012 04:00
Ættleidd börn í meiri hættu Börnum sem eru ættleidd eftir átján mánaða aldur er hættara við tilfinninga- og hegðunarvanda en öðrum börnum. Niðurstöður nýrrar íslenskrar rannsóknar benda til þessa. 5.1.2012 04:00
Telur að þyngja eigi refsinguna Ríkissaksóknari hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í skattahluta Baugsmálsins til Hæstaréttar. Hann krefst þyngri refsingar yfir ákærðu í þeim ákæruliðum þar sem sakfellt var, og þess að Hæstiréttur snúi dómi héraðsdóms í þeim ákæruliðum þar sem sýknað var. 5.1.2012 03:15
Skráarskipti nú löggild trú í Svíþjóð Yfirvöld í Svíþjóð hafa loks skráð trúarkerfið Kópíisma sem raunverulegt trúarfélag. Það er stór hópur internetnotenda sem stendur að baki trúarfélaginu en þau tilbiðja skráarskipti milli einstaklinga. Barátta hópsins fyrir viðurkenningu sænska ríkisins hefur staðið yfir í tvö ár. 4.1.2012 23:53
Svartborgari í tilefni af endurútgáfu Stjörnustríðsmyndanna Nýjasti hamborgarinn á matseðli franska skyndibitastaðarins Quick er svartur. Er þetta gert í tilefni af frumsýningu kvikmyndarinnar Stjörnustríð: Skuggaógnin en hún verður nú sýnd í þrívídd. 4.1.2012 22:47
Hugmyndaríkir Finnar rugla áhorfendur í ríminu Myndband sem tekið var undir ísilögðu stöðuvatni í Finnlandi hefur vakið mikla athygli á veraldarvefnum. Kafararnir virðast dorga og ganga neðansjávar en þegar tekið er eftir stefnu loftbólanna tekur málið að skýrast. 4.1.2012 23:24
Breytingar við ritstjórn Eiðfaxa Trausti Þór Guðmundsson, ritstjóri Eiðfaxa, lét af því starfi um áramótin. Hann hefur ritstýrt blaðinu í fimm ár. Nú tekur ritnefnd við útgáfu blaðsins, en formaður hennar er Telma Tómasson fréttamaður og tamningamaður. Fjórir sitja með henni í ritnefnd en það eru þau: 4.1.2012 23:06
Vann 38 milljónir í Víkingalottóinu Einn Íslendingur var svo heppinn að hreppa hinn alíslenska bónusvinning í Víkingalottóinu þegar dregið var í kvöld. Sá hinn sami fær tæpar 38,6 milljónir í sinn hlut. Það voru hins vegar þrír Norðmenn og einn finni sem skiptu með sér 1. vinningi í Víkingalottóinu, en hver þeirra fær í sinn hlut 66 milljónir króna. 4.1.2012 22:29
Flugmaður sá hákarl í 7.000 feta hæð Flugmaður í Nýja-Sjálandi kom auga á fljúgandi hákarl stuttu áður en hann átti að lenda flugvélinni í Christchurch. Hákarlinn reyndist vera uppblásanlegt leikfang. 4.1.2012 22:13
Mikill fengur í þátttöku Íslands í New York Þrjú íslensk verk verða sýnd á kynningu á íslenskum sviðslistum í New York um næstu helgi. Leiklistarsamband Íslands stendur fyrir kynningunni í samstarfi við hin Norðurlöndin. 4.1.2012 22:00
Enn skerpt á aðgreiningu ritstjórnarefnis og auglýsinga Skipulagsbreyting hefur verið ákveðin hjá 365 miðlum. Breytingin felur í sér að þeir starfsmenn ritstjórnar Fréttablaðsins sem hafa haft með höndum skrif í kynningarblöð sem fylgt hafa blaðinu færast yfir til sölu- og þjónustusviðs 365 miðla. 4.1.2012 21:37
Ósáttur við að ráðherra skyldi þurfa álit frá Umboðsmanni Formaður sambands íslenskra framhaldsskólanema gagnrýnir að þurft hafi álit frá umboðsmanni Alþingis til að menntamálaráðherra hlustaði á nemendur. Hann segir það ánægjuefni ef hverfaskipting vegna innskráningar verður afnumin. 4.1.2012 21:31
Landlæknir vill upplýsingar um brjóstastækkanir Landlæknir sendi í dag bréf til allra lýtalækna þar sem óskað er upplýsinga um þær sílíkonaðgerðir sem þeir hafa gert á brjóstum. Þá munu í fyrsta sinn liggja fyrir gögn um aldursdreifngu kvenna með sílíkonbrjóst og þróun á fjölda aðgerða eftir árum. 4.1.2012 21:22
Notaði iPad sem vegabréf Kanadískur maður fékk inngöngu í Bandaríkjunum án þess að sýna vegabréf. Það dugði landamæravörðum að skoða skannaðar myndir af vegabréfinu i iPad spjaldtölvu mannsins. 4.1.2012 21:15