Gefa varð trippum í Gæsadal næringu í æð 5. janúar 2012 08:30 Björgunarmenn ásamt trippunum tveimur.
Trippin tvö, sem hafa verið innikróuð nyrst í Gæsadal vikum saman, voru orðin svo veikburða að gefa þurfti þeim næringu í æð á leið til byggða, samkvæmt upplýsingum Matvælastofnunar. Gerður var út leiðangur björgunarsveitarmanna frá björgunarsveitinni Ægi á Grenivík í fyrradag, undir forustu Þórarins Péturssonar, bónda á Grýtubakka, í fylgd héraðsdýralæknis, til að sækja trippin tvö á snjótroðara Kaldbaksferða. Auk héraðsdýralæknis voru með í för dýralæknir og aðstoðarmaður á vegum eiganda trippanna. Björgunarsveitarmenn á þremur sérútbúnum vélsleðum aðstoðuðu bílstjóra snjótroðarans við að finna hentuga leið, en hvítt var yfir öllu og mjög blindað. Um tvo tíma tók að komast til trippanna og um þrjá tíma til baka. Aðstæður voru mjög erfiðar, víða laus snjór og brattlent. Ógerningur var að reyna að reka trippin til byggða sökum fannfergis, auk bágs ástands þeirra. Trippin, sem eru hryssur, önnur veturgömul og hin tveggja vetra, voru mjög þreytt eftir ferðalagið. Þau hafa verið innikróuð í fjöllunum líklegast vikum saman en fundust fyrir tilviljun 28. desember. Síðan hefur þeim verið fært hey samkvæmt fyrirskipun búfjáreftirlitsins sem hafði gefið eigandanum frest til vikuloka að koma trippunum til byggða. Þegar Ólafur Jónsson, héraðsdýralæknir Norðausturumdæmis, fékk vitneskju um málið greip hann þar inn í og fyrirskipaði að þau skyldu sótt strax. Útlit er fyrir að litlu hryssurnar nái sér að fullu. Héraðsdýralæknir mun óska eftir því að lögregla skoði þátt eiganda trippanna í þessu máli. Hann hafði saknað hrossanna frá mánaðamótum október og nóvember.- jss
Mest lesið Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Fleiri fréttir Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Sjá meira