Leigjendaaðstoðin fékk yfir þúsund fyrirspurnir á síðasta ári 5. janúar 2012 11:20 Meðal annars vildi leigusali hækka leigu ella skyldi leigjandi flytja út.
Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna fékk alls 1048 fyrirspurnir frá leigjendum á síðasta ári samkvæmt ársskýrslu Leigjendaaðstoðarinnar. Vorið 2011 var gerður þjónustusamningur milli Neytendasamtakanna og velferðarráðuneytisins en samningurinn tók gildi 1. maí sl. og gildir til eins árs. Samningurinn felur í sér að Neytendasamtökin taka að sér rekstur sérstakrar leigjendaaðstoðar, þar sem leigjendur íbúðarhúsnæðis geti m.a. fengið upplýsingar um lagalega stöðu sína auk aðstoðar eða milligöngu komi upp ágreiningur milli leigjanda og leigusala. Af þessum rúmlega þúsund fyrirspurnum snéri meirihlutinn að viðhaldi og ástandi eignarinnar. Næst flestir vildu vita um uppsagnir á leiguhúsnæði. Í ársskýrslunni má finna nokkur erindi sem bárust leigjendaaðstoðinni. Meðal annar hafði leigjandi samband þar sem leigusali vildi hækka leiguna án fyrirvara og að leigjandinn flytti úr íbúðinni ef hann samþykkti ekki hækkunina. Á milli aðila var ekki í gildi skriflegur samningur heldur aðeins munnlegur. Í slíkum tilfellum þarf leigusali að sanna hver leigufjárhæðin er og hvað leigjandinn hefur samþykkt að greiða í leigu. Uppsagnarfrestur á munnlegum leigusamningum er 6 mánuðir, enda teljast þeir ótímabundnir, og því gat leigusali ekki hækkað leiguna frá því sem samið hafði verið um. Annar leigjandi hafði samband og spurðist fyrir um það hvenær leigusali ætti að skila tryggingarfé sem hann hafði greitt við upphaf leigutíma. Þegar leigjandi hefur skilað íbúð af sér ber leigusala að skila honum tryggingarfénu án ástæðulauss dráttar. Eftir að leigjandi hefur skilað íbúð ber leigusala að kanna ástand hennar svo fljótt sem verða má og taka afstöðu til þess hvort hann geri kröfu í tryggingarféð. Leigusali má aldrei halda tryggingarfé lengur en í tvo mánuði eftir skil íbúðar, nema hann geri skriflega kröfu til fjárins. Skýrsluna má finna hér í heild sinni.
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Sjá meira