Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skíðamaður varð fyrir snjóflóði Skíðamaður dó þegar hann varð fyrir snjóflóði í gær í skíðabrekkum í vesturhluta Kanada. Embættismenn á svæðinu segja að hlýtt veðurfar og blautur snjór skapi aukna hættu á snjóflóðum sem þessum. Maðurinn var um þrítugt. Hann varð fyrir snjóflóði seint í gærkvöldi. Þegar uppvíst varð um slysið var orðið of seint að leggja af stað til að sækja líkið. Myrkur og hætta á frekari snjóflóðum komu í veg fyrir að líkami mannsins væri sóttur í gær. 30.12.2011 16:34
Mest vonbrigðin með Jón og Árna "Þetta eru nú kannski þeir ráðherrar sem ég hef orðið fyrir hvað mestum vonbrigðum með sem eru að víkja,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, um væntanleg ráðherraskipti. Eins og fram hefur komið eru Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, á leið úr ríkisstjórn. Margrét segist ekki treysta sér til að fullyrða um það hvort eitthvað betra komi í staðinn. 30.12.2011 16:29
Sprengjuárás í Nígeríu Sprengja sprakk nærri mosku í borg í norðurhluta Nígeríu fyrr í dag. Sprengjan sprakk rétt eftir að bænagjörð lauk og fólk var að týnast út úr moskunni. "Fólk henti sér í allar áttir svo það myndaðist mikil ringulreið," segir einn íbúi. Talsmaður hersins á svæðinu kennir öfgahópnum Boko Haram um ódæðið. Hópurinn krefst þess að Nígería taki upp ströng lög byggð á siðgæðisboðum múslima. Til að fylgja þeirri kröfu eftir hefur hann staðið fyrir fjölda árása, aðallega í norðausturhluta Nígeríu. Meðal annars stóðu þeir fyrir sprengjuárás á kirkjur á jóladag sem drógu 42 til dauða. 30.12.2011 16:22
Stríðsmenn al Qaeda til Líbíu Leiðtogar Al Qaeda hafa sent reynda stríðsmenn til Líbíu til að safna saman herafla þar. Þetta kemur fram á vef CNN. Einn liðsmanna al Qaeda hefur verið í Líbíu síðan í maí þegar tök Gaddafi á landinu byrjuðu að linast. Á þeim tíma hefur hann hóað saman vopnfærum mönnum og ræður nú um 200 manna liðsafla. Erlendar leyniþjónustur eru meðvitaðar um starfsemi hans í landinu. 30.12.2011 15:56
Ófært í efri byggðum Reykjavíkur Ófært er í Úlfarsárdal sem stendur og eingöngu er haldið haldið opinni strætisvagnaleiðinni. Einkabílar sitja fastir og glórulaus skafhríð er þar nú, samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg. Aðrar leiðir en strætisvagnaleiðir verða opnaðar um leið og færi gefst. 30.12.2011 15:53
Vill ekki horfa á eftir báðum úr ríkisstjórn "Mér finnst það vissulega ótrúlega mikið á okkur skorið hér í kjördæminu ef báðir ráðherrarnir og báðir Kópavogsbúarnir fara út úr ríkisstjórn,“ segir Ýr Gunnlaugsdóttir, formaður Samfylkingarfélagsins í Kópavogi. 30.12.2011 15:43
Suu Kyi býður sig fram í Mjanmar Ríkisstjórn Mjanmar (Búrma) hefur boðað til aukakosninga til að fylla þingsæti sem hafa losnað síðan síðustu kosningar voru haldnar. Þjóðarhetjan og friðarsinnin Aung San Suu Kyi og flokkur hennar hyggjast bjóða sig fram. Slagurinn stendur um 48 þingsæti, sem losnuðu eftir að þingmenn voru gerðir að embættismönnum eða ráðuneytisstarfsmönnum. 30.12.2011 15:15
Kínverjar stefna á geiminn Kínverjar opinberuðu afar metnaðarfulla áætlun um geimferðir og geimrannsóknir í vikunni. Þeir stefna meðal annars að því að skjóta mannfólki til tunglsins. Einnig er markmið þeirra að byggja geimstöðvar, safna sýnishornum af tunglinu og setja upp rannsóknarstöðvar í geimnum. Með þessu vilja þeir koma sjálfum sér á kortið í geimrannsóknum. "Fjárhagslegum framförum fylgir þörfin á framþróun og rannsóknum," sagði prófessor við geimvísindaskóla í Beijing við þetta tilefni. 30.12.2011 14:57
iPad fyrir apa Órangútanar í dýragarðinum í Milwaukee hafa undanfarið fengið að leika sér með iPad spjaldtölvur. Þeir gætu fljótlega orðið þess megnugir að hringja myndsímtöl í loðna félaga sína annars staðar í heiminum. Richard Zimmerman sem rekur griðarstaðinn Orangutan Outreach stendur fyrir þessari nýlundu. "Við vildum gefa þeim færi á að vera eins og lítil börn," sagði Zimmerman. 30.12.2011 14:26
Steingrímur í atvinnuvegaráðuneytið - Samfylkingin fær fjármálaráðuneytið Gangi áform forystumanna ríkisstjórnarinnar eftir verður Steingrímur J. Sigfússon nýr atvinnuvegaráðherra með verkefni úr þremur ráðuneytum og Samfylkingin fær fjármálaráðuneytið. Umhverfisráðuneytið fær til sín verkefni frá iðnaðarráðuneyti í nýju umhverfis- og auðlindaráðuneyti. 30.12.2011 12:00
Ekkert lát á snjóhreinsun um áramótin Starfsmenn sem sinna snjóhreinsun og sorphirðu hafa átt langa vinnudaga að undanförnu og ekki verður mikil hvíld um áramótin. Vinna við snjóhreinsun hefst klukkan fjögur að morgni gamlársdags og verður unnið fram eftir degi. Þá eru einnig vaktir á nýársdag og aukamannskapur verður ræstur út eftir þörfum. Undanfarna daga hefur verið unnið í öllum hverfum borgarinnar. Um 70 starfsmenn á vegum borgarinnar og verktaka á hennar vegum er í vinnu við snjóhreinsun og hafa þeir 50 tæki til verksins, 39 gröfur og 11 vörubíla. Eins og Fréttablaðið greindi frá var gærdagurinn snjóþyngsti dagur í áratugi. Og snjóhreinsun stefnir í að verða afar kostnaðarsöm fyrir Vegagerðina og borgina. 30.12.2011 15:26
Varað við grýlukertum í miðbænum Lögreglan beinir þeim tilmælum til fólks á höfuðborgarsvæðinu að huga að grýlukertum og snjóhengjum sem lafa fram af húsþökum því af þeim getur stafað töluverð hætta. Tilmælunum er ekki síst beint til verslunar- og/eða húseigenda á stöðum þar sem mikið er um gangandi vegfarendur. Þetta á meðal annars. við um Laugaveg og nærliggjandi götur í miðborginni. Mælst er til þess að fólk kanni með hús sín og grípi til viðeigandi ráðstafana áður en slys hlýst af. 30.12.2011 14:20
Átök í Sýrlandi Átök brutust út í Sýrlandi í dag þegar öryggissveitir vörpuðu naglasprengjum og táragasi á um 70.000 mótmælendur sem kröfðust þess að endir yrði bundinn á ofbeldið í landinu og föngum sleppt úr haldi. Blásið var til mótmælanna í dag sökum þess að eftirlitsmenn Arababandalagsins áttu að taka út ástandið í landinu í dag og heimsækja mestu átakastaðina. Mótmælendur hafa krafist þess að eftirlitsmenn bandalagsins hafi sig á brott úr landinu. Þeir telja nærveru þeirra til þess fallna að kaupa Bashar al-Assad, forseta landsins, aukinn tíma og skjóta honum undan alþjóðlegum þrýstingi. 30.12.2011 13:45
Mörg hundruð þúsund snakkpokar í verslanir 200.000 pokar af stjörnusnakki hafa verið sendir í verslanir. Salan í ár stefnir í algert met, en í fyrra voru um 140.000 stjörnusnakkpokar seldir á sama tíma. Iðnmark sem framleiðir stjörnusnakk hefur 35% markaðshlutdeild á snakkmarkaðnum. Miðað við þær tölur má ímynda sér að allt í allt seljist rúmir 570.000 snakkpokar fyrir áramótin í ár. Það eru tæpir tveir pokar á mann. Því lítur út fyrir að Íslendingar muni hafa nóg að gera í nýjum og gömlum líkamsræktarstöðvum eftir áramótin. "Desember er stærsti snakkmánuðurinn og milli jóla og nýárs er aðal aksjónið," segir Sigurjón Dagbjartsson, framkvæmdastjóri Iðnmark, og efast ekki um að þessir 200.000 snakkpokar seljist allir sem einn. Tímabilið sem um ræðir er frá 10. desember og fram yfir áramót. 30.12.2011 12:57
Nýárskveðja til forseta með morsskeyti Skátahöfðingi mun á morgun senda forseta Íslands nýárskveðju með áhugaverður hætti, þ.e. morsskeyti, til að marka upphaf aldarafmælis skátastarfs á Íslandi. Á gamlársdag árið 1961 sendi þáverandi skátahöfðingi þáverandi forseta Íslands nýárskveðju með morsskeyti sem sent var með ljósum yfir Skerjafjörð. Þá var tilefnið 50 ára afmæli skátastarfs á Íslandi. Nú stendur til að endurtaka leikinn vegna aldarafmælisins. Forseti Íslands mun veita kveðju skátahöfðingja viðtöku að Bessastöðum kl: 9:00 á gamlársdag þ.e. hálfri klukkustund áður en ríkisráðsfundur hefst. 30.12.2011 12:08
Starfsfólk LSH leggur meira á sig en skyldan býður Starfsfólk Landspítalans bauð eldri konu aðstoð heima fyrir yfir hátíðarnar eftir að eiginmaður hennar var lagður inn á spítalann. Eftir að eiginmaður Hildar Jónsdóttur var lagður inn á spítala með sýkingu yfir hátíðirnar og hún var ein eftir í íbúð sinni hringdi hjúkrunarkona af Landspítalanum í hana að eigin frumkvæði. Hún athugaði hvort hún þyrfti á nokkurri aðstoð að halda við hitt og þetta heima fyrir og bauð henni að hringja í sig ef hún gæti nokkuð hjálpað. 30.12.2011 11:42
Segja Steingrím beita valdníðslu Stjórnir Svæðisfélaga Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Húnavatnssýslu og Skagafirði mótmæla harðlega aðför Samfylkingarinnar að samstarfsflokki sínum í ríkisstjórn. Í yfirlýsingu er harmað það sem þau kalla valdníðslu formanns VG, Steingríms J. Sigfússonar, vegna áforma um að leggja niður ráðuneyti Sjávarútvegs- og landbúnaðar vegna eindreginnar andstöðu ráðherra við aðildarumsókn að Evrópusambandinu. 30.12.2011 11:34
Hægt að taka strætó frá Reykjavík til Hafnar í Hornafirði Hægt verður að ferðast um Suðurland með strætó, allt frá Reykjavík og austur á Höfn í Hornafirði frá og með 2. janúar næstkomandi. Þetta er liður í stórfelldri stækkun þjónustusvæðis Strætó bs. í samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Eitt samtengt leiðakerfi verður allt frá Höfn í Hornafirði og til Reykjavíkur, um uppsveitir Árnessýslu, niður í Þorlákshöfn og Landeyjahöfn. Þessi breyting felur m.a. í sér að fleiri Sunnlendingar eiga möguleika á að sækja vinnu til höfuðborgarsvæðisins og gagnkvæmt. 30.12.2011 11:31
Geitungaárás í desember Það þykir heyra til tíðinda ef menn verða fyrir flugnaárásum á Íslandi á síðustu dögum í desember. Það kom þó fyrir Nikulás Helga Nikulásson, starfsmann Trefja í Hafnarfirði, í gær þegar hann var að vinna við smíði báts þar. Hann vissi ekki hvaðan á hann stóð veðrið þegar hann fór allt í einu að finna fyrir stungunum á líkamanum, en hann heldur að flugan hafi stungið hann fimm eða sex sinnum. Nikulás segir að um geitung hafi verið að ræða. 30.12.2011 11:05
Örn innkallar Breiðholt og Kópavog Flugeldasala Arnar Árnasonar, Bomba.is, neyðist til að innkalla tvær gerðir af skottertum sem hafa verið í sölu fyrir áramótin. Terturnar sem um ræðir kallast Kópavogur og Breiðholt. "Þessar tertur springa hraðar en æskilegt er. Það fer allt á fullt og eflaust mikil ljósadýrð og fyndið og skemmtilegt," segir Örn. "En ég vil ekki taka neina sénsa. Þetta gæti verið hættulegt og ég vil vera ábyrgur flugeldasali. Ég stend og fell með mínum vörum." 30.12.2011 10:48
Ríkisráð fundar í fyrramálið Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur kvatt Ríkisráð Íslands saman klukkan hálftíu í fyrramálið. Hefð er fyrir því að ríkisráðið komi saman þennan dag, en í því situr forsetinn auk allrar ríkisstjórnarinnar. Eins og greint var frá í fjölmiðlum í gær má búast við því formlega verði gerðar breytingar á ríkisstjórninni á ríkisráðsfundi á morgun, með því að Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, víki úr stjórninni. 30.12.2011 10:44
Megn óánægja á meðal frjálslyndra jafnaðarmanna Megn óánægja ríkir á meðal frjálslyndra jafnaðarmanna, það er að segja þeirra hægrisinnuðustu í Samfylkingunni, með þá ákvörðun leiðtoga ríkisstjórnarinnar, þeirra Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar, að víkja Árna Páli Árnasyni úr embætti efnahags- og viðskiptaráðherra. 30.12.2011 10:11
Engar breytingar í vændum í Norður Kóreu Heimsbyggðin skal ekki búast við því að breytinga sé að vænta í Norður Kóreu þrátt fyrir fráfall leiðtogans Kim Jon Il og komu sonar hans Kim Jong Un á stóra sviðið. Þetta segir í skeyti sem flutt var í ríkisfjölmiðlum landsins í nótt og talið er skrifað í umboði Varnarmálaefndarinnar þar í landi, sem ku vera eitt valdamesta stjórnsýslubákn landsins. "Hinir heimskulegu leiðtogar heimsins, þar með talið leiksopparnir í Suður-Kóreu, ættu ekki að láta sig dreyma um neinar breytingar frá Norður Kóreu í bráð," segir í yfirlýsingunni. 30.12.2011 10:07
Völd leiðtogans treyst "Hinn virti félagi Kim Jong-un er æðsti leiðtogi flokks okkar, hers og lands og hefur hlotið í arf hugmyndafræði, forystu, skapgerð, dyggðir, kjark og hugrekki hins mikla félaga, Kim Jong-il,“ sagði Kim Yong-nam, formaður forsætisnefnar norður-kóreska þjóðþingsins, í ræðu sem hann flutti á minningarathöfn um Kim Jong-il í gær. 30.12.2011 10:00
Lokað í Bláfjöllum - opið á Norðurlandi Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður lokað í dag vegna veðurs. Mikið fjúk er á svæðinu eins og stendur og gert ráð fyrir slæmu veðri fram eftir degi. Einnig verður lokað á svæðinu á morgun, en starfsmenn svæðisins stefna að því að opna á Nýársdag. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli við Akureyri verður aftur á móti opið í dag frá tíu til sjö. Þar er logn og aðstæður eins og best verður á kosið. Þá verður einnig opið í Böggvisstaðarfjalli við Dalvík í dag sem og í Tindastóli við Sauðárkrók, en þar er mikill og góður snjór og "lífið bara dásamlegt" að sögn starfsmanna. 30.12.2011 09:32
Heppinn að slasast ekki meira Bílvelta var á Reykjanesbraut við Dalveg í Kópavogi um klukkan hálftólf í gærkvöldi. Bílinn staðnæmdist á hliðinni upp við ljósastaur og þurfti að kalla tækjabíl slökkiliðsins á vettvang. Töluverðan tíma tók að ná manninum út en það tókst að lokum og voru klippur notaðar við aðgerðina. Að sögn vaktstjóra hjá slökkviliðinu var maðurinn heppinn að slasast ekki meira en raunin varð. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. 30.12.2011 09:00
Mest lesið á Vísi árið 2011 - Innlendar fréttir 2011 var viðburðaríkt og kenndi ýmissa grasa. Hér fylgir listi yfir fimm mest lesnu fréttir ársins 2011 í flokknum innlendar fréttir á Vísi. 30.12.2011 06:00
Isavia leyft að svara til um fangaflug CIA Isavia hefur fengið heimild til að svara fyrirspurn um flug sem talið var á vegum CIA með fanga. Tvenn mannréttindasamtök birtu nýverið áfangaskýrslu þar sem Evrópulönd eru sökuð um að hylma yfir með pyntingum. 30.12.2011 02:30
Eyjalögreglan rannsakar banvæna árás á á "Ég kom að fjárhúsinu upp úr hádegi og þar lá hún ein með opið sár á hálsi. Hún var á lífi en var að blæða út," segir Ólafur Týr Guðjónsson, bóndi í Vestmannaeyjum, sem var að gefa kindum kunningja síns á bænum Látrum í gær þegar hann kom að helsærðri á. Hann kallaði á lögregluna, sem kom á staðinn og aflífaði hana. "Ég get auðvitað ekki fullyrt að þetta hafi verið dýrbítur, því það fennir í öll spor," segir Ólafur. Hann lýsir sárinu sem stórri holu vinstra megin á hálsi ærinnar, sem náði alveg inn í öndunarveg. Ekkert hafi verið rifið í kringum sárið. "Þegar ég tók í hana fann ég að það var allt laust inni í hálsinum, eins og holrúm," segir Ólafur. 30.12.2011 02:00
Snjóþyngsti dagur síðan mælingar hófust í myndum Ljósmyndarinn Gunnar V. Andrésson brá sér á kreik á þessum snjóþyngsta degi í manna minnum hér í borginni. Hann myndaði átök fólks við snjóskafla, slabb og fasta bíla, en líka nokkur ósvikin bros og fallega jólakyrrð. 29.12.2011 21:49
Chavez telur Bandaríkin dreifa krabbameini Hinn yfirlýsingaglaði Hugo Chavez hélt því fram í ræðu í gær að Bandaríkin væru ábyrg fyrir því að leiðtogar Suður-Ameríku hafa hver á fætur öðrum greinst með krabbamein. Hann velti því upp að Bandaríkin "gætu hafa fundið upp tækni sem dreyfir krabbameini" og varaði leiðtoga annarra ríkja við því að þeir gætu orðið næstu skotmörk. Chavez hefur sjálfur greinst með krabbamein, en getgátur hans núna koma í kjölfar þess að forseti Argentínu tilkynnti á þriðjudaginn síðastliðinn að hún hefði greinst með krabbamein. Auk þeirra hafa leiðtogar Brasilíu og Paragvæ einnig greinst með krabbamein. Þessi umdeilanlega kenning hans er ekki til þess fallin að bæta samskipti Venesúela og Bandaríkjanna, sem eru töluvert stirð fyrir. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur þegar látið málið sig varða. Victoria Nuland, talsmaður ráðuneytistins, sagði yfirlýsingar Chavez "hræðilegar og vítaverðar" og sagði þær ekki verðskulda frekari athygli. 29.12.2011 23:54
Bílvelta á Reykjanesbraut Ökumaður velti bíl sínum, rétt við Dalveg, nú á tólfta tímanum í kvöld. Erfiðlega gengur að ná manni úr bílnum sem valt og hafa tveir tækjabílar á vegum slökkviliðsins og þrír sjúkrabílar verið sendir á staðinn. 29.12.2011 23:53
Snjóhús Guðs í Bæjaralandi Snjókirkja var opnuð fyrir almenning í bænum Mitterfirmiansreut í Þýskalandi í gær. Bæjarbúar reistu kirkjuna til að minnast byggingar svipaðrar kirkju sem reist var fyrir 100 árum. 29.12.2011 23:46
Hafnfirðingar tóku forskot á sæluna Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast undanfarna daga við að hjálpa fólki sem hefur setið fast í snjó hér og þar á höfuðborgarsvæðinu og víðar á landinu. En björgunarsveitir hafa líka haft í nógu að snúast við að selja flugelda, sem er helsta fjáröflunarleið sveitanna. Björgunarsveitin í Hafnarfirði tók svo forskot á sæluna í kvöld og sló upp feyknafallegri flugeldasýningu. Egill Aðalsteinsson myndatökumaður á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis var að sjálfsögðu á staðnum. Smelltu á "Horfa á myndskeið með frétt“ til að sjá flugeldasýninguna. 29.12.2011 22:49
Jarðarför Kim Jong-Il - Ljósmyndir lagfærðar og risi meðal syrgjenda Hundruðir þúsunda Norður-Kóreubúa voru samankomnir í Pyongyang til að fylgjast með útför fyrrverandi leiðtoga landsins, Kim Jong-Il. Athöfnin var skipulögð af hernaðarlegri nákvæmni. Svo mikil var nákvæmnin að fréttastofa Norður-Kóreu þurfti að fjarlægja nokkra blaðamenn af opinberum ljósmyndum. 29.12.2011 22:31
Ráðherrabeytingarnar allherjar farsi "Þetta er náttúrlega bara einn allsherjar farsi miðað við fréttir síðustu daga," segir Kristján Þór Júlíusson um fyrirhugaðar tilfæringar í ráðherraliði ríkisstjórnarinnar. Fyrr í dag var fullyrt á vefmiðlinum www.smugan.is að Árni Páll og Jón Bjarnason myndu hverfa úr ríkisstjórn á morgun. Þá hefur og komið fram að síðustu daga hafi ríkisstjórnin átt viðræður við þingflokk Hreyfingarinnar til að leita eftir auknum styrk og stuðningi. 29.12.2011 21:35
Norskir þáttastjórnendur í ruglinu - WTF? Þáttastjórnendur á norsku sjónvarpsstöðinni NRK upplýstu landa sína óviljandi um internet slangur á meðan þau fjölluðu um sjónaðgerðir eftirlaunaþega. 29.12.2011 21:29
Krísa í Hollywood Hollywood virðist hafa glatað sjarmanum á þessu ári. Ekki hafa færri heimsótt kvikmyndahús í Bandaríkjunum í 16 ár. 29.12.2011 21:15
Erfið færð á flestum vegum landsins Hálka og snjóþekja er á flestum vegum landsins um þessar mundir. Vegagerðin ræður fólki eindregið frá því að ráðast í ferðalög seint á kvöldin við svona aðstæður enda má búast við að flestir vegir teppist þegar líða tekur á kvöldið. Þjónusta er á ákveðnum vegum alla nóttina, til að mynda eru Reykjanesbrautin og Hellisheiðin ruddar reglulega. Þjónusta á öðrum vegum kann að leggjast niður yfir nóttina. 29.12.2011 20:52
Búast við norðurljósasýningu á næstu dögum Í kjölfar mikillar virkni á yfirborði sólarinnar er talið að fjarskiptakerfi jarðar verði fyrir röskunum á næstu dögum. Einnig má búast við norðurljósasýningu á norðurhveli jarðar. 29.12.2011 20:30
Rólegt hjá björgunarsveitum þrátt fyrir snjóinn Þó borgarbúar hafi mátt kljást við óvenju mikið fannfergi í dag og fólk setið pikkfast í sköflum víða var lítið um að vera hjá björgunarsveitum höfuðborgarsvæðisins þrátt fyrir það. Björgunarsveitarmenn voru kallaðir í eitt útkall niður í Neðstaleiti til að hreinsa af gömlum bílskúrsþökum sem voru við það að gefa sig undan snjóþunga. Annars leið dagurinn tíðindalaust. 29.12.2011 20:08
Aldrei of varlega farið með flugelda Ríflega fjörtíu manns, börn og fullorðnir, leituðu á bráðamóttöku Landspítalans síðustu nýársnótt eftir flugeldaslys. Yfirlæknir segir dæmi um að fólk hafi misst sjón og jafnvel augu. Mikilvægt sé að fólk hafi í huga að um eldfim sprengiefni sé að ræða sem þurfi að umgangast með virðingu. Gamlárskvöld er jafnan rólegt framan af á bráðamóttökunni en um leið og áramótaskaupið klárast byrjar fólk að leita á deildina með áverka eftir flugelda. Síðustu nýársnótt leituð að meðaltali fimm á klukkustund á deildina með slíka áverka. 29.12.2011 20:00
Langþráður áramótageisladiskur gefinn út Yfir hundrað og fjörutíu listamenn tóku þátt í að gera plötu sem inniheldur þekkt þrettánda- og áramótalög þjóðarinnar. Gamall draumur að rætast segir útgefandinn. Sigríði Önnu Einarsdóttur hefur lengi dreymt um að eiga áramóta og þrettándadisk til að hlusta á á þessum árstíma. Eftir nokkra bið eftir slíkum disk ákvað hún fyrir tveimur árum að ráðast í þetta verkefni sjálf og fékk yfir hundrað og fjörtíu manns í lið með sér til að gera drauminn að veruleika. 29.12.2011 19:38
RÚV skilar hagnaði Hagnaður varð af rekstri Ríkisútvarpsins ohf. á síðasta rekstrarári. Hagnaðurinn var 16 milljónir króna. Fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var hagnaðurinn metinn 553 milljónir. Þetta er annað rekstrarárið í röð sem rekstur RÚV skilar hagnaði. Þegar rekstrarforminu var breytt árið 2007 var sett að markmiði að ná jafnvægi í rekstri innan tveggja ára. Það markmið náðist og nú er haldið áfram á sömu braut. 29.12.2011 19:09
Kim Jong-un hylltur - myndband Kim Jong-un var miðpunktur allrar athygli á minningarathöfn sem fram fór í Norður Kóreu í dag vegna dauða föður hans. Athöfnin virtist í raun vera táknræn stund þar sem sonurinn tók við völdum, enda var hann hylltur sem "hinn stórkostlegi leiðtogi flokksins, ríkisins og hersins". 29.12.2011 17:47