Fleiri fréttir

Breytingar á akstri Strætó um áramótin

Breytingar verða á akstri Strætó bs. um áramót, eins og jafnan á stórhátíðum. Á gamlársdag, laugardaginn 31. desember, verður ekið eins og á laugardegi til kl. u.þ.b. 14, en þá hætta vagnarnir akstri.

Flugeldaþjófar fundnir

Tveir unglingspiltar hafa játað að hafa brotist inn í geymslugám á Akranesi og stolið þaðan flugeldum sem voru í eigu knattspyrnufélags ÍA og Kiwanis á Akranesi. Lögreglunni barst ábending um málið undir hádegi í dag og leiddi það til þess að grunur féll á unglingana, sem samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru undir átján ára aldri. Unglingarnir hafa skilað til lögreglu megninu af því sem stolið var. Einhverju höfðu þeir þó skotið upp og hafa þeir í hyggju að greiða eigendum tjónið hið allra fyrsta.

Hreyfingin beðin um að verja ríkisstjórnina falli

Viðræður ríkisstjórnarinnar og Hreyfingarinnar standa enn yfir samkvæmt heimildum Vísis. Þreifingar hófust fyrir jól, en það voru þingmenn ríkisstjórnarinnar sem komu fyrst að máli við þingmenn Hreyfingarinnar. Í kjölfarið var komið á fundi á milli oddvita ríkisstjórnarinnar og þingmanna Hreyfingarinnar. Fyrsti fundur var á Þorláksmessu. Umræðuefnið var hvort Hreyfingin væri tilbúin að verja ríkisstjórnina falli kæmi til þess.

Dekk sprakk á nefhjóli

Það sprakk dekk á nefhjóli á flugvél í eigu Ernis í lendingu um eittleytið í dag. Flugvélin situr nú föst á flugbrautinni en slökkviliðsbíll var sendur út á brautina til að aðstoða við að koma vélinni út af brautinni. Enginn slasaðist við lendinguna.

Hreyfingin átti í viðræðum við ríkisstjórnina

Þingmenn Hreyfingarinnar hafa undanfarna daga átt í óformlegum viðræðum við oddvita ríkisstjórnarflokkana um helstu áherslumál Hreyfingarinnar í stjórnmálum er lúta að þjóðaratkvæðagreiðslum, persónukjöri og nýrri stjórnarskrá. Þetta kemur fram í tilkynningu frá þingflokki Hreyfingarinnar.

Illfært í Reykjavík sem annarsstaðar

Það er illfært, eða jafnvel ófært, víðar en á höfuðborgarsvæðinu. Vegagerðin segir að hálka sé á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Ófært er á Mosfellsheiði. Á Suðurlandi er hálka á flestum leiðum þó er þæfingur og snjóþekja á fáfarnari leiðum. Snjóþekja og skafrenningur er við Vík.

Stálu flugeldum fyrir hundruð þúsunda

Flugeldum fyrir nokkur hundruð þúsund krónur var stolið úr gámi á Akranesi í fyrrinótt. Flugeldarnir voru í eigu Kiwanisklúbbsins Þyrils og Íþróttabandalags Akraness. Framkvæmdastjóri ÍA segir þjófnaðinn dapurlegan.

Aldrei snjóað jafn mikið á einum degi í desember

Þeir sem muna ekki eftir annarri eins snjókomu í desember, hafa á réttu að standa, en samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands mældist snjódýptin í morgun 33 sentímetrar. Það er semsagt met.

Byrjað að moka í hverfunum

"Ég er að horfa hérna út um gluggann. Það er eiginlega ömurlegt að horfa á þetta,“ segir Þorsteinn Birgisson, yfirmaður þjónustumiðstöðvar Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar. Um 50 gröfur og snjóruðningstæki eru að störfum víðsvegar um borgina vegna mikillar ofankomu. Snjórinn er um 40 sentímetra djúpur.

Össur vill endurnýja forystu Samfylkingarinnar

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, telur að flokkurinn þurfi að endurnýja bæði forystu sína og hugmyndir sínar fyrir næstu kosningar. Þetta segir hann í samtali við Viðskiptablaðið í dag.

Seinkun á innanlandsflugi

Seinkun varð á innanlandsflugi hjá Flugfélagi Íslands í morgun vegna þess að ryðja þurfti snjó af flugbrautinni í Reykjavík. Hjá Flugfélaginu fengust þær upplýsingar að flugáætlun ætti að vera komin í eðlilegt horf um ellefuleytið.

Björgunarsveitir í rúmlega níutíu útköll í nótt

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu hafa í alla nótt aðstoðað ökumenn á höfuðborgarsvæðinu þar sem færð er nú afleit. Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að yfir 90 aðstoðarbeiðnir hafi borist og að í mörgum tilvikum hafi nokkrir bílar verið á bak við hverja tilkynningu.

Bardot fékk á sig brot - Steve Irwin til hjálpar

Brigitte Bardot, skip náttúruverndarsamtakanna Sea Shepherd, fékk á sig brotsjó í suðurhöfum þar sem það var að reyna að trufla veiðar japanskra hvalbáta. Gat kom á skipið en um tíu eru í áhöfnninni. Flaggskip Sea Shephard, Steve Irwin, er á leið til bjargar en reiknað er með því að það gæti tekið Irwin allt að tuttugu tíma að ná til Bardot.

Opið víða á skíðasvæðum landsins

Hlíðarfjall á Akureyri er opið í dag. Þar er fínt veður og færi, sjö gráðu frost og logn. Opið verður í fjallinu frá klukkan tíu til sjö í kvöld.

Vilja að gistináttaskatti verði frestað eða hann afnuminn

Samtök ferðaþjónustunnar skora á ríkisstjórn Íslands að beita sér fyrir því að fallið verði frá eða frestað gildistöku gistináttaskatts þar til raunhæfari lausn finnst. Þetta kemur fram í bréfi frá samtökunum sem hefur verið sent ríkisstjórninni.

Óvenju mikið um sjúkraflutninga

Óvenjumikið hefur verið að gera í sjúkraflutningum hjá slökkviliðið höfuðborgarsvæðisins frá því í gærkvöld. Frá því klukkan hálfátta í gærkvöld hefur verið farið í 35 sjúkraflutninga í borginni en á sólarhring er meðaltalið um 65 flutningar. Útköllin hafa flest verið vegna veikinda og tengjast ekkert hálku eða ófærðinni í borginni. Hún gerir sjúkraflutningamönnum hinsvegar erfitt fyrir eins og gefur að skilja.

Mesti snjóþungi í áratugi

Mikill snjóþungi tók á móti Reykvíkingum í morgun og gerði mörgum erfitt fyrir. Bílar sátu fastir á víð og dreif um borgina og þurftu björgunarsveitarmenn að sinna yfir hundrað útköllum. Stöðumælaverðir og póstburðarmenn fóru ekki varhluta af ástandinu. Fréttastofa Stöðvar 2 tók púlsinn á borgarbúum.

Forystumenn stýrðu viðræðum og hluti ríkisstjórnar vissi ekkert

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, stýrðu viðræðum við þingmenn Hreyfingarinnar. Fundirnir voru flestir í stjórnarráðshúsinu og hluti ríkisstjórnarinnar vissi ekkert og þingflokkarnir ekki heldur.

Ráðherrabreytingar í bígerð

Tillaga um breytingar á ráðherraliði ríkisstjórnarinnar verður lögð fram á þingflokksfundum stjórnarflokkanna á morgun. Helst er rætt um Árna Pál Árnason og Jón Bjarnason en bæði þingflokkar og stjórnir flokkanna þurfa að samþykkja breytingarnar. Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa rætt um það undanfarna daga hvort gera eigi breytingar á ráðherraskipan. Á gamlársdag verður haldinn ríkisráðsfundur, samkvæmt venju, en ráðherraskipti eru jafnan ákveðin formlega á slíkum fundum. Samkvæmt heimildum fréttastofu hyggjast því forystumenn stjórnarflokkana ráðast í breytingarnar á gamlársdag ef af þeim verður. Slíkar breytingar eru þó háðar samþykki þingflokka og flokksstjórna.

Pósturinn tefst í dag

Pósturinn biður íbúa að moka frá bréfalúgum og póstkössum svo að hægt sé að koma póstinum örugglega til skila í þessari færð sem er í dag.

Kvartar til Persónuverndar vegna dagbókar

Móðir unglingsstúlku hefur lagt fram kvörtun til Persónuverndar vegna birtingar dagbókar stúlkunnar í Héraðsdómi Norðurlands vestra. Dóttir konunnar kærði lögreglumann á Blönduósi fyrir að hafa káfað á sér innanklæða í fyrra, þegar hún var 15 ára.

Snjóamet slegið í höfuðborginni

Snjór hefur nú legið yfir höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess samfleytt frá 26. nóvember. Aldrei áður frá upphafi mælinga hefur snjór verið samfleytt svo lengi á fyrri hluta vetrar, segir Trausti Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.

Íslenskur arkitekt þéttir danska byggð

Íslensk-danskt framlag fór með sigur úr býtum í samkeppni um endurskipulag 50 hektara svæðis í sveitarfélaginu Allerød í Danmörku, skammt norður af Kaupmannahöfn. Keppnin er haldin annað hvert ár undir merkjum Europan, en að henni standa 20 Evrópulönd. Þátt geta tekið arkitektar undir 40 ára aldri. Löndin leggja fram svæði sem þarfnast endurskipulagningar og leggja ungir arkitektar fram tillögur um úrvinnslu þeirra.

Blaðakassar teknir niður

Fréttablaðskassar verða teknir niður fyrir áramót og settir upp aftur á nýju ári. Þetta er gert til að koma í veg fyrir skemmdarverk, en undanfarin ár hefur borið á því að kassar séu sprengdir upp.

Fæstar friðlýsingar eru á náttúruverndaráætlun

Sjö svæði voru friðlýst á árinu 2011. Aðeins tvö þeirra voru á náttúruverndaráætlun sem samþykkt er af Alþingi. Sveitarfélög og landeigendur eiga frumkvæði að öðrum friðlýsingum. Til skoðunar er að breyta ferli friðlýsinga.

Minni umferð um Víkurskarð

Meðalumferð um Víkurskarð verður líklega 1.173 bílar á sólarhring á þessu ári, samkvæmt áætlun Vegagerðarinnar.

Suðurstrandarvegur ruddur tvisvar í viku

Nýr Suðurstrandarvegur hefur í nokkur skipti verið ófær síðan hann var opnaður í haust. Að sögn Vegagerðarinnar er það að hluta til vegna þess að menn voru ekki undir það búnir að þörf væri á mikilli vetrarþjónustu. Vegurinn hefur ekki verið inni á vetrarþjónustuáætlun Vegagerðarinnar til þessa en nú hefur verið bætt þar úr.

Borga tæknifrjóvgun fullu verði

Hætt verður að niðurgreiða fyrstu tæknifrjóvgun barnlausra para og einhleypra kvenna um áramót. Þá verður alfarið hætt að niðurgreiða tæknifrjóvgunarmeðferðir fyrir fólk sem á barn fyrir, en þátttaka Sjúkratrygginga í þeim tilvikum hefur verið 15 prósent af kostnaði.

Skorinn með flösku á hálsi

Ráðist var á mann á dansleik á skemmtistaðnum Mælifelli á Sauðárkróki annan dag jóla, að því er fréttavefurinn Feykir greinir frá.

Látnir lausir úr gæsluvarðhaldi

Þrír menn, sem setið hafa í varðhaldi í Svíþjóð grunaðir um að hafa ætlað að myrða teiknara, voru látnir lausir í gær.

Kreppa, hamfarir, byltingar og mótmæli

Erlendar fréttir ársins 2011 hafa markast af náttúruhamförum, efnahagserfiðleikum og þjóðfélagsólgu, bæði í ríkjum arabaheimsins og kreppulöndum Vesturheims, eins og sjá má á myndum frá nokkrum helstu viðburðum ársins.

Danir sáttir við kóngafólkið sitt

Mikill meirihluti Dana er hlynntur því að landið verði áfram konungsríki. Könnun sem sagt er frá í Politiken leiðir í ljós að 77 prósent segjast fylgjandi núverandi stjórnarfyrirkomulagi, en aðeins sextán prósent eru fylgjandi því að landið verði lýðveldi.

Þúsundir mæta til að syrgja leiðtogann

Norður-Kórea Arftakinn Kim Jong-un var í fararbroddi syrgjenda við útför föður síns í Pjongjang, höfuðborg Norður-Kóreu. Hann gekk við líkbifreiðina, með aðra hönd á bílnum en notaði hina til að heilsa fólki.

Þúsundir enn án rafmagns

Enn eru um 2.500 heimili án rafmagns í Norður-Noregi eftir að stormurinn Dagmar reið yfir landið um jólin.

Samóar halda áramótin snemma

Þegar íbúar á Samóaeyjum í Kyrrahafinu, vakna á föstudaginn, munu þeir halda upp á áramótin sama kvöld. Ástæðan er sú að þeir hafa ákveðið að sleppa 30. desember.

Konur með PIP brjóst fá bréf

Allar konu sem hafa fengið PIP-brjóstafyllingar eftir árið 2000 munu á næstunni fá bréf með nánari upplýsingum og leiðbeiningum um það hvernig skal bregðast við vegna fyllingarinnar, sem hefur valdið talsverðum óróa hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn félags íslenskra lýtalækna (FÍL).

Saltið að klárast í Reykjavík

Einungis um nokkurra daga skammtur af salti er nú eftir í saltgeymslum Reykjavíkur eftir vetrarhörkur desembermánaðar. Samtals eru um sjö þúsund og fimmhundruð tonnum af salti stráð á götur borgarinnar á ári hverju.

Tveir Danir og Svíi höfðu heppnina með sér í kvöld.

Þrír norðurlandabúar urðu milljónamæringar í kvöld eftir að þeir fengu alla rétta í Víkingalottói. Vinningurinn var alls fjórir milljarðar. Vinningshafarnir þrír skipta hinsvegar með sér tæplega þrjúhundruð milljónum hver. Tveir Danir og Svíi höfðu heppnina með sér í kvöld.

Fólk lagt inn á spitala vegna tannsýkinga

Þeim fjölgar sem leggja þarf inn á spítala vegna tannsýkinga. Ein af ástæðum sýkinganna er léleg tannheilsa en dæmi eru um að fólk hafi ekki farið til tannlæknis í áratug.

Sjá næstu 50 fréttir