Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Franskir þingmenn ræða búrkubann Franska þingið ræðir í dag hvort banna eigi svokallaðar búrkur eða slæður sem hylja allan líkama múslimskra kvenna. Nái frumvarpið um bann fram að ganga verður konum bannað að klæðast slíkum flíkum á opinberum stöðum um allt Frakkland og gerir lögreglu kleift að sekta konur um 22 þúsund krónur. 6.7.2010 08:57
Öngþveiti í Toronto Bruni í spennuvirki í kanadísku borginni Toronto olli í gærkvöldi rafmagnsleysi í stórum hluta borgarinnar. Um 250 þúsund manns voru án rafmagns og urðu gríðarlegar tafir í neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar og á götum hennar þar sem rafmagnið fór af á háannatíma þegar fólk var á leið heim frá vinnu. 6.7.2010 08:52
Leikreglunum breytt eftir á? Breyting á frumvarpi iðnaðarráðherra um nýtingu vatnsafls og jarðvarma vekur spurningar um hvort stór svæði hafi verið útilokuð með tilliti til framtíðarorkunýtingar. Samkvæmt frumvarpinu mun verndar- og nýtingaráætlun ekki ná til svæða sem njóta nú þegar friðlýsingar nema það sé þegar heimilt samkvæmt skilmálum friðlýsingar viðkomandi svæðis. 6.7.2010 08:00
Jesústyttan sýnileg á ný Hin fræga Jesústytta í Rio de Janeiro í Brasilíu er nú aðgengileg ferðamönnum á ný. 6.7.2010 07:30
Boða til mótmæla við stjórnarráðið Hópur fólks ætlar að efna til mótmæla fyrir utan stjórnarráðið við Lækjargötu klukkan hálf tíu, eða rétt áður en ríkisstjórnarfundur hefst þar. 6.7.2010 07:19
Hundrað handteknir á Hróarskeldu Hróarskelduhátíðin þykir hafa farið friðsamlega fram í ár þrátt fyrir að lögregla hafi handtekið tvöfalt fleiri en í fyrra. 6.7.2010 07:00
Komu fjallgöngukonu til bjargar Björgunarsveitarmenn í Vestmannaeyjum komu erlendri göngukonu til hjálpar í gærkvöldi eftir að hana hafði borið af leið á fjalli ofan við Herjólfsdal á Heimaey. Þar er snarbratt og þegar hún áttaði sig á að hún var komin í vandræði, hringdi hún á gistiheimilið, þar sem hún bjó, og þaðan var kallað eftir aðstoð. Leiðangurinn gekk vel og kom konan heil til byggða. 6.7.2010 06:59
Segja til um líkur á langlífi Bandarískir vísindamenn segjast hafa þróað leið til að segja til um líkurnar á því að manneskja lifi í meira en 100 ár. 6.7.2010 06:45
Þingmenn gagnrýna skort á undirbúningi Með tilmælum Seðlabanka og Fjármálaeftirlits til fjármálafyrirtækja vegna dóms Hæstaréttar um gengistryggingu lána er verið að hvetja almenning til að greiða fé inn í fyrirtæki sem standa sum mjög tæpt og gætu orðið gjaldþrota, segir Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. Ljóst er að tilmælin eru hvorki skuldbindandi fyrir fyrirtækin eða almenning. Eygló gagnrýnir harðlega að þau hafi verið sett fram án nægilegs undirbúnings. Niðurstaða Hæstaréttar hafi komið stjórnsýslunni í opna skjöldu. 6.7.2010 06:30
Breyting útilokar orkukosti „Þetta kann að hafa þau áhrif að allt Torfajökulssvæðið standi utan rammaáætlunarinnar. Þá erum við að tala um einn þriðja af öllum nýtanlegum jarðhita sem eftir er í landinu að mati Orkustofnunar," segir Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku. 6.7.2010 06:00
Mun betri veiði en búist var við Veiðum frystitogara HB Granda á úthafskarfa á djúpslóð er lokið á þessari vertíð. Fjögur frystiskip stunduðu veiðarnar og varð afli þeirra alls um 4.600 tonn. Á heimasíðu fyrirtækisins segir að mun betur hafi gengið að veiða kvótann en menn áttu von á. Gefur það fyrirheit um að staða karfastofnsins á Reykjaneshryggnum sé betri en talið hefur verið lengi vel. 6.7.2010 06:00
Strandblakvellir fullir öll kvöld Mikill uppgangur er í strandblaki um þessar mundir. „Við erum að slá þátttökumet á hverju móti. Það má segja að fjöldi liða hafi tvöfaldast í sumar,“ segir Karl Sigurðsson, formaður strandblaksnefndar Blaksambands Íslands. 6.7.2010 05:15
Krefjast 60 milljóna í bætur fyrir skítalykt Hvalfjarðarsveit hefur verið stefnt fyrir Héraðsdóm Vesturlands til að greiða eigendum jarðarinnar Melaleitis sextíu milljónir króna í skaðabætur fyrir meinta rýrnun á verðmæti jarðarinnar í kjölfar útgáfu byggingarleyfis fyrir svínabú Stjörnugríss á Melum. 6.7.2010 05:00
Askan hafði áhrif á tíunda hvern Svía Aska úr eldgosinu í Eyjafjallajökli breytti áætlunum 42 prósenta sænskra ferðalanga, og hafði einhver áhrif á 11 prósent allra Svía. 6.7.2010 04:30
Bæjarstjóralaun eru 850 þúsund „Starf bæjarstjóra er gríðarlega umfangsmikið og undarlegt að minnihlutinn skuli sjá ofsjónum yfir því að það séu greidd þokkaleg laun fyrir það,“ segir Guðmundur Þór Guðjónsson, formaður bæjarráðs Hveragerðis, sem kveður umræðu minnihlutans í bæjarstjórn um laun bæjarstjórans vera villandi. 6.7.2010 04:00
Netnotkun í símum lítil hér Íslendingar sækja minna af gögnum í gegnum farsíma og netlykla en hinar Norðurlandaþjóðirnar. Áskrifendur að gagnaflutningi um breiðband eru að sama skapi fæstir hér en útbreiðsla á DSL-nettengingum er mest á Íslandi. Talið er að helsta ástæða þessa sé að 3G símaþjónusta hefur skemur verið í boði hér á landi. 6.7.2010 03:00
Íbúar Djúpavogs geta drukkið rennandi vatn á ný Nú geta íbúar Djúpavogs drukkið rennandi vatn á nýjan leik eftir að skemmdir urðu á vatnsveitunni fyrir helgi þegar að aurskriða féll á hana. Starfsmönnum hreppsins tókst að gera við skemmdirnar í gær og segir sveitarstjórinn skemmdirnar umtalsverðar í samtali við Austurgluggann. 5.7.2010 23:10
Reif úr sér tennur með naglbít - hélt að það væri hlerunarbúnaður í þeim Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur að karlmaður skuli vera vistaður nauðugur á sjúkrahúsi. Það var dómsmálaráðuneytið sem tók ákvörðunina en maðurinn kærði hana til dómstóla og var málið tekið fyrir 30. júní síðastliðinn. 5.7.2010 22:57
Ari nýr framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins „Þetta leggst bara mjög vel í mig, þetta er mjög spennandi starf og mikil örgrun,“ segir Ari Matthíasson nýr framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins. Starfið var auglýst til umsóknar í lok maímánaðar og rann umsóknarfrestur út þann 14. júní síðastliðinn. Tuttugu og fimm umsóknir bárust og mun Ari hefjast störf þegar leikhúsið tekur aftur til starfa að loknu sumarleyfi. 5.7.2010 21:37
Endaði sársvangur upp á slysó eftir eltingaleik við kött í íbúð sinni „Ég reyndi að króa köttinn af með Vuvuzela-lúðri sem ég fann hérna inn í stofu, en hann vildi ekki fara út,“ segir Andri Snær Njarðarson, íbúi í kjallaraíbúð í Múlunum í Reykjavík. Þegar hann kom heim til sín í hádegishléi í vinnu í dag, til að fá sér að borða, heyrði hann bjölluhljóð inn í herbergi hjá sér. Hann áttaði sig fljótlega á því að köttur úr nágrenninu hafði komist inn í íbúðina. Eftir mikinn eltingaleik við köttinn endaði hann á því að bíta og klóra Andra Snæ sem þurfti að fara upp á slysadeild og fá stífkrampasprautu. Kötturinn pissaði í rúmið hans og braut nokkra muni inn í stofu hjá honum. 5.7.2010 20:19
Ætla að bjóða ríkisstjórnina velkomna í fyrramálið „Við ætlum að vera fyrir framan stjórnarráðið klukkan hálf tíu í fyrramálið og bjóða ríkisstjórnina velkomna," segir Kristín Snæfells Arnþórsdóttir mótmælandi en ríkisstjórnin mun halda ríkisstjórnarfund klukkan tíu. „Við eigum eftir að ákveða hvort við munum hafa hátt," segir hún. 5.7.2010 21:47
Eldur kviknaði í beinaverksmiðjunni í Grundarfirði Eldur kviknaðir í plaströrum í gömlu beinaverksmiðjunni í Grundarfirði um sjö leytið í kvöld. Vel gekk að slökkva eldinn sem var ekki mikill, að sögn Valgeirs Þórs Magnússonar slökkviliðsstjóra í Grundarfirði. „Þetta var aðalega reykur, mikill reykur," sagði hann í samtali við Vísi. 5.7.2010 20:40
Styrmir Þór einnig ákærður fyrir peningaþvætti Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi forstjóri MP banka, er ekki aðeins ákærður fyrir hlutdeild í umboðssvikum því hann er einnig ákærður fyrir peningaþvætti. Fyrstu ákærur sérstaks saksóknara verða þingfestar á morgun. 5.7.2010 18:45
Lilja Mósesdóttir: Fólki ekki skylt að greiða af lánum sínum Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar og stjórnarþingmaður, segir fólki ekki skylt að greiða af lánum sínum í samræmi við tilmæli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins. Þetta er þvert á skoðun ráðherra í ríkisstjórn, sem sagði tilmælin sanngjörn. 5.7.2010 18:44
Landsbankinn mun þurfa að afskrifa nokkur hundruð milljónir Landsbankinn mun þurfa að afskrifa nokkur hundruð milljónir króna vegna sölu á dreifingarfyrirtækinu Parlogis. Bankinn lánaði fyrrverandi eigendum félagsins nær allt kaupverð þess og tók það svo yfir þegar móðurfélagið varð gjaldþrota á síðasta ári. 5.7.2010 18:33
Síminn ekki ríkisstyrktur að mati sérfræðinga Fjarskiptasjóður óskaði eftir umsögn fjármálaráðuneytisins til að taka allan vafa um að útboð sjóðsins, á háhraðanettengingum, gæti hugsanlega stangast á við ríkisstyrkjareglur ESB. Í tilkynningu frá Fjarskiptasjóði segir að það hafi verið álit sérfræðinga fjármálaráðuneytisins á sviði ríkisstyrkja að svo væri ekki. 5.7.2010 17:45
Grafir hafa áður verið opnaðar Engin fordæmi eru fyrir því að gröf sé opnuð eftir dómsúrskurð líkt og gert var í nótt með gröf Bobbys Fischer. Þórsteinn Ragnarsson, 5.7.2010 15:06
Viðburðarík mótmæli við Seðlabankann - myndir Það voru um fjögur hundruð manns sem mótmæltu tilmælum Seðlabankans og FME um seðlabankavexti á gengistryggðum lánum. Einn var handtekinn auk þess sem kona kastaði grjóti í áttina að lögreglunni. 5.7.2010 15:03
Vara við hvassviðri á morgun Veðurstofa Íslands varar við austan hvassviðri við suðurströndina og á Suðausturlandi á morgun. Seinni partinn á morgun mun djúp lægð nálgast úr suðri og því er spáð vaxandi austan- og norðaustanátt á öllu landinu. Annað kvöld er búist við austanhvassviðri við suðurströndina, frá Eyjafjöllum til Öræfa, og meðalvindi 15 - 20 m/s með vindkviðum allt að 40 m/s. 5.7.2010 17:35
Össur fer til Ungverjalands og Króatíu Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra heldur í dag til Króatíu og Ungverjalands í opinbera heimsókn. Hann mun eiga viðræður við æðstu ráðamenn beggja ríkja auk þess sem hann kynnir sér verkefni sem íslensk fyrirtæki standa að í báðum löndum. 5.7.2010 17:02
500 milljónum veitt til átaksverkefna í atvinnumálum í Reykjavík Borgarráð samþykkti tillögur nýs meirihluta borgarstjórnar að breytingum á framkvæmdaáætlun Reykjavíkurborgar á aukafundi sínum rétt í þessu. 5.7.2010 16:06
Ísland fær undanþágur frá reglum um hvíldartíma bílstjóra Yfirstjórn ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, hefur samþykkt undanþágur fyrir Ísland frá nokkrum ákvæðum reglna um aksturs- og hvíldartíma atvinnubílstjóra í farmflutningum. Undanþágurnar gilda tímabundið frá 30. október næstkomandi til 15. apríl 2011. 5.7.2010 16:28
Skákborð úr heimsmeistaraeinvíginu 1972 til sölu Sérsmíðað skákborð sem notað var í heimsmeistaraeinvígi Bobby Fischer og Boris Spassky er nú til sölu. Það er stórblaðið New York Times sem greinir frá þessu - á sama degi og fréttir af uppgreftri af líki Bobby Fischer eru í heimsfréttunum. 5.7.2010 15:34
Fischer frábitinn svona meðferð Einar S. Einarsson, einn af forsvarsmönnum RJF hópsins, gagnrýnir uppgröftinn á líki skákmeistarans Bobby Fischer. Hann segir að eðlilegra hefði verið að leita fyrst að lífsýnum í íbúð Fischer, það hafi hins vegar ekki verið gert. 5.7.2010 14:47
Grjótkastarinn íhugar að keyra inn á Alþingi „Það er ekki þér að þakka að við fengum ekki grjótið í andlitið,“ hreytti lögreglumaður í Aðalheiði Gunnlaugsdóttur þegar blaðamaður ræddi við hana fyrir utan Seðlabankann í hádeginu í dag. Aðalheiður játaði að hafa kastað grjóti í áttina að lögreglunni en minnstu munaði að það hefði farið í höfuðið á einum lögreglumanninum sem blaðamaður ræddi við. 5.7.2010 14:30
Medvedev hughreystir Obama Dmitry Medvedev forseti Rússlands hefur fullvissað Barack Obama um að handtaka ellefu Rússa fyrir njósnir muni ekki hafa neikvæð áhrif á samband ríkjanna. 5.7.2010 14:09
Miðaldra kona grýtti lögreglumenn Grjóti var kastað í átt að lögreglunni á mótmælunum við Seðlabankann nú fyrir skömmu. Kona á miðjum aldri játaði að hafa kastað steininum og sagði það hennar skilaboð til stjórnvalda. Lögreglan hefur yfirgefið vettvanginn. 5.7.2010 14:05
Ráðherrar reknir fyrir bruðl Tveir franskir ráðherrar hafa sagt af sér eftir að hafa orðið uppvísir að því að bruðla með opinbert fé. 5.7.2010 13:34
Mótmæli við Seðlabankann - einn handtekinn Einn hefur verið handtekinn í mótmælunum við Seðlabankann. Átök brutust út nú fyrir skömmu þar sem lögreglan yfirbugaði einn mótmælandann. Lögreglan er klædd í hlífðarvesti og hefur aukin harka færst í mótmælin. 5.7.2010 13:20
Seðlabankinn læstur af öryggisástæðum „Mér sýnist að menn séu búnir að segja sitt og séu að fara," segir Stefán Jóhann Stefánsson, starfsmaður Seðlabankans. Dyrum Seðlabankans var lokað í öryggisskini vegna mótmælanna en ekki gripið til frekari aðgerða. 5.7.2010 13:04
Mótmælandi keyrði vélhjól á hurð Seðlabankans Bifhjólamaður sem tók þátt í mótmælum við Seðlabanka Íslands ók hjóli sínu fjórum til fimm sinnum á hurð bankans. 5.7.2010 12:59
Tyrkir hóta stjórnmálaslitum við Ísrael Tyrkir hafa í fyrsta skipti hótað að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael. Utanríkisráðherra Tyrklands sagði í dag að ef Ísraelar ekki annaðhvort bæðust afsökunar á árásinni á hjálparskipin til Gaza eða sættu sig við niðurstöðu alþjóðlegrar rannsóknarnefndar yrði stjórnmálasambandi slitið. 5.7.2010 12:42
Kristján Loftsson: Fréttaflutningur af útflutningi „njósnastarfsemi“ Um ellefu hundruð tonn af hvalaafurðum sem Hvalur hf. hefur veitt eru í frystigeymslu, en það er tæpur fjórðungur af því sem fyrirtækið veiddi í heild sinni á síðasta ári. Kristján Loftsson segir útilokað að losa þúsund tonn á Japansmarkað á einu bretti og því sé þetta í frystigeymslu. 5.7.2010 12:15
Kvartað til Umboðsmanns vegna tilmæla SÍ og FME Umboðsmaður Alþingis hefur fengið formlega kvörtun frá gengislánaskuldara vegna tilmælanna sem Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið sendu frá sér í síðustu viku um hvernig skyldi greiða af ólöglegum gengislánum þar til Hæstiréttur sker úr um vaxtakjör. 5.7.2010 12:14
Rektor vill ekki gefa upp nöfn umsækjenda Hjálmar Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands, vill ekki gefa upp nöfn þeirra sem sóttu um stöðu prófessors í leiklist við skólann. 5.7.2010 12:08