Innlent

Þingmenn gagnrýna skort á undirbúningi

Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra, Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, komu á fund viðskiptanefndar og efnahags- og skattanefndar Alþingis í gærmorgun.Fréttablaðið/Anton
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra, Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, komu á fund viðskiptanefndar og efnahags- og skattanefndar Alþingis í gærmorgun.Fréttablaðið/Anton
Með tilmælum Seðlabanka og Fjármálaeftirlits til fjármála­fyrirtækja vegna dóms Hæstaréttar um gengistryggingu lána er verið að hvetja almenning til að greiða fé inn í fyrirtæki sem standa sum mjög tæpt og gætu orðið gjaldþrota, segir Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.

Ljóst er að tilmælin eru hvorki skuldbindandi fyrir fyrirtækin eða almenning. Eygló gagnrýnir harðlega að þau hafi verið sett fram án nægilegs undirbúnings. Niðurstaða Hæstaréttar hafi komið stjórnsýslunni í opna skjöldu.

Viðskiptanefnd og efnahags- og skattanefnd Alþingis héldu í gær sameiginlegan fund um hin umdeildu tilmæli vegna lánasamninga sem innihalda gengisviðmið gagnvart erlendri mynt. Fulltrúar Seðlabanka, FME og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins komu á fund nefndarmanna, auk Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra, Gísla Tryggvasonar, talsmanns neytenda, og fulltrúa frá Hagsmunasamtökum heimilanna.

Eygló segir að eftir fundinn sé ljóst að ríkisstjórnin, Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið hafi ekki nauðsynlega yfirsýn yfir áhrif dóms Hæstaréttar. Undirbúningur fyrir útgáfu tilmælanna hafi verið óvandaður og ófullnægjandi. Yfirlýsingar viðskiptaráðherra, Seðlabanka og Fjármálaeftirlits um áhrif dóms Hæstaréttar á fjármálastöðugleika hafi ekki byggst á neinum sérstökum útreikningum. Enn sé ekki búið að kortleggja efnahagsleg áhrif dómsins og takmörkuð lögfræðiálit virðist hafa legið fyrir.

Nefndarmenn óskuðu eftir því í gær að lögð yrðu fram þær matsgerðir og þau minnisblöð lögmanna sem tilmæli Seðlabankans og FME byggðust á. Stefán Jóhann Stefánsson, talsmaður Seðlabankans, sagði í gær við Fréttablaðið að lögfræðingar á vegum bankans og FME hefðu komið að gerð tilmælanna en sameiginlegt lögfræðiálit lægi ekki fyrir með þeim hætti að það verði gert opinbert.

Eygló segir að þingmenn stjórnarandstöðunnar séu reiðubúnir til að fara strax í það verkefni að setja ný lög um flýtimeðferð mála sem tengjast gengislánum, setja lög um hópmálsóknir og fleira sem ekki megi dragast frekar en orðið er. Ríkisstjórnin hafi frá því í febrúar daufheyrst við viðvörunum um þá stöðu sem nú er komin fram. Líklega þurfi að dæma í fimm til sex prófmálum áður en öllum vafa hefur verið eytt í kjölfar dóms Hæstaréttar.

peturg@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×