Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lík breska byssumannsins fundið Búið er að finna lík af manni sem talinn er hafa skotið að minnsta kosti fimm til bana í Cumbria héraði í Bretlandi í dag. 2.6.2010 13:42
Kyrrsetning eigna Skarphéðins Bergs felld úr gildi Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í dag úr gildi ákvörðun sýslumanns um kyrrsetningu eigna Skarphéðins Bergs Steinarssonar. Um miðjan síðasta mánuð fór skattrannsóknarstjóri fram á að eignir Skarphéðins, Jóns Ásgeir Jóhannessonar, Jóns Sigurðssonar og Hannesar Smárasonar yrðu kyrrsettar. Þeir voru allir í forsvari fyrir FL Group á árunum 2006 og 2007 og grunaðir um refsiverða háttsemi í tengslum við brot félagsins á lögum um virðisaukaskatt. 2.6.2010 13:13
Borgarstjórn: Ólafur getur sjálfur óskað eftir lögreglurannsókn Borgarfulltrúar Framsóknarflokks, Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna segja engar vísbendingar vera uppi um að flokkarnir hafi með neinum hætti brotið lög eða gengið gegn skyldum þeirra til að upplýsa um fjármál sín. Vilji Ólafur að fram fari lögreglurannsókn á styrkjum til flokkanna getur hann óskað eftir því á eigin ábyrgð, að mati borgarfulltrúanna. 2.6.2010 13:11
Katrín afhenti Foreldraverðlaunin Foreldraverðlaun Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, voru afhent í 15. sinn í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti verðlaunin. 2.6.2010 12:53
Einhleypar konur og samkynhneigð pör geta fengið egg og sæði Einhleypum konum og samkynhneigðum jafnt sem gagnkynhneigðum pörum, sem búa við skerta frjósemi beggja maka, er nú heimilt að nota bæði gjafaegg og gjafasæði við glasafrjóvgun. Lög þess efnis voru samþykkt á Alþingi í gær. 2.6.2010 12:46
Mikil leit gerð að leigubílstjóra eftir skotárás á Englandi Breska lögreglan leitar nú manns sem grunaður er um að hafa skotið fjölda fólks í Cumbria héraði á Englandi í morgun. Staðfest hefur verið að nokkir hafi látist í árásinni og telja breskir miðlar að fjórir hið minnsta liggi í valnum, meðal annars í bænum Whitehaven. Hinn grunaði, leigubílstjórinn Derrick Bird, 52 ára, er talinn hafa ekið um í bifreið sinni og skotið á fólk af handahófi. 2.6.2010 12:40
Ábendingar almennings hafa áhrif á viðræðurnar Á fjórða hundrað hugmynda hafa borist frá almenningi inn á vefsíðuna Betrireykjavik.is sem Samfylkingin og Besti flokkurinn stofnuðu vegna meirihlutaviðræðna í borgarstjórn. Einar Örn Benediktsson segir að Besti flokkurinn ætli ekki að flýta sér. 2.6.2010 12:37
Hestaflensan getur borist í menn Hestaflensan sem herjað hefur á hross á landinu getur borist í menn. Landlæknisembættið vekur athygli á þessu og hvetur þá sem sinna hestum til að gæta fyllsta hreinlætis. 2.6.2010 12:24
Lögreglan leitar tveggja manna | Myndir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af tveimur mönnum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Lögregla hefur ekki greint nánar frá málavöxtum. 2.6.2010 11:51
Risastór hringlaga hola í Guatemala borg Þriggja hæða hús hvarf ofan í risastóra holu sem myndaðist eftir miklar rigningar í Guatemalaborg, höfuðborg Guatemala. 2.6.2010 11:41
Telur brýnt að skerpa skilin milli borgarstjórnar og borgarráðs Óskar Bergsson, fráfarandi borgarfulltrúi og formaður borgarráðs, telur brýnt að skerpa betur á verkaskiptingu milli borgarstjórnar og borgarráðs. Óskar lagði fram tillögu þess efnis á sínum síðasta borgarstjórnarfundi í gær. 2.6.2010 11:18
Neytendur njóta ekki góðs af styrkingu krónu Neytendasamtökin segja að innflytjendur og/eða smásalar hafi nýtt sér styrkingu krónunnar til að hækka álagningu. 2.6.2010 11:16
Gefa öllum sjö ára börnum reiðhjólahjálma Á næstu vikum mun Kiwanishreyfingin og Eimskipafélag Íslands gefa öllum börnum sem eru að ljúka 1. bekk í grunnskólum landsins reiðhjólahjálma. Um er að ræða árlegt átak Kiwanishreyfingarinnar og Eimskips en að auki nýtur verkefnið aðstoðar Forvarnahússins. Nemendur víðsvegar af höfuðborgarsvæðinu var boðið í heimsókn í höfuðstöðvar Eimskipafélagsins í Reykjavík í dag þar sem þau fengu afhenta reiðhjólahjálmana sína. 2.6.2010 10:46
Læknaráð: Minni fjárframlög þýðir skert þjónusta Ekki verður komist hjá skertri þjónustu á Landspítalanum og fækkun starfsfólks komi til frekari niðurskurðar á fjárframlögum ríkisins til spítalans. Þetta ályktaði aðalfundur læknaráðs Landspítala fyrir skömmu. 2.6.2010 10:39
Flugmenn pólsku forsetavélarinnar undir miklum þrýstingi að lenda Flugmenn pólsku forsetavélarinnar sem fórst í Rússlandi í apríl hunsuðu ítrekaðar aðvaranir bæði frá flugumferðarstjórum og sjálfvirkum búnaði vélarinnar. 2.6.2010 10:24
Læknaráð Landspítala: Nýbygging verði tilbúin 2016 Læknaráð Landspítala skorar á yfirvöld að stefna að verklokum á nýbyggingu Landspítalans við Hringbraut á tilsettum tíma árið 2016. Læknaráðið samþykkti ályktun þess efnis fyrir skömmu. 2.6.2010 10:12
Guðríður: Engar ófrávíkjanlegar kröfur Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, segir flokkinn ekki setja neinar ófrávíkjanlegar kröfur í meirihlutaviðræðunum í bæjarfélaginu. Hún segir að Listi Kópavogsbúa hafi gerst sekur um trúnaðarbrest. 2.6.2010 09:49
Þingfestingar í vændiskaupamálum Mál ellefumenningana sem ákærðir eru fyrir að greiða fyrir vændi á síðasta ári voru þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Alls voru sautján mál af svipuðum toga rannsökuð en ákærur að lokum gefnar út í ellefu tilfellum þar sem sönnunargögn skorti í sex málum. Þinghald er lokað í málunum og nöfn sakborningannna því ekki gerð opinber. Öll tilvikin tengjast vændisstarfssemi á vegum Catalinu Ncogo, sem hefur stundum verið nefnd Miðbaugsmaddaman, en hún hefur áður verið dæmd fyrir að hafa milligöngu um vændi. 2.6.2010 09:47
Konur í Kaupmannahöfn lifa fjölbreyttu kynlífi Samkvæmt nýrri rannsókn í Danmörku lifa konur í Kaupmannahöfn mun fjölbreyttara kynlífi en kynsystur þeirra í öðrum landshlutum Danmerkur. 2.6.2010 07:53
BP tókst að klippa á olíuleiðsluna í Mexíkóflóa Verkfræðingum BP olíufélagsins tókst að klippa á olíuleiðsluna sem lekur úr út í Mexíkóflóan í gærkvöldi en notast var við fjarstýrðan kafbát í þeirri aðgerð. 2.6.2010 07:50
Brottflutningur skipverja hafinn frá Ísrael Stjórnvöld í Ísrael hafa hafið brottflutning þeirra hundruða skipverja sem voru um borð í skipalestinni með hjálpargögn á leið til Gaza í vikunni. 2.6.2010 07:47
Forsætisráðherra Japans segir af sér Yukio Hatoyama forsætisráðherra Japans hefur sagt af sér embætti eftir aðeins átta mánuði í starfinu. 2.6.2010 07:45
Al Gore og Tipper eru að skilja Íslandsvinurinn Al Gore og eiginkona hans Tipper Gore eru að skilja eftir 40 ára langt hjónaband. 2.6.2010 07:41
Stórbruni í Kaupmannahöfn, hundrað flýja heimili sín Slökkviliðið í Kaupmannahöfn hefur barist við stórbruna í alla nótt í íbúðablokkarsamstæðu við suðurhöfn borgarinnar. 2.6.2010 07:38
Blómfríður fékk trollið í skrúfuna Björgunarskip frá Snæfellsbæ er nú á leið til hafnar með rækjubátinn Blómfríði frá Ólafsvík í togi. Báturinn fékk trollið í skrúfuna og kallaði eftir aðstoð. Björgunarskipið hélt af stað klukkan átta í gærkvöldi og var komið að Blómfríði um klukkan ellefu. Veðrið á svæðinu var ekki gott í nótt en hefur lagast með morgninum að sögn björgunarsveitarmanna. 2.6.2010 07:13
Ari Gísli fornbókasali er nú laus allra mála Þætti Ara Gísla Bragasonar bóksala í ákæru vegna stórfellds þjófnaðar bóka úr dánarbúi Böðvars heitins Kvaran var vísað frá dómi í gær. Böðvar Yngvi Jakobsson játaði hins vegar sök í málinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. 2.6.2010 06:45
Kópavogur: Fullur vilji til að ljúka meirihlutamyndun Fulltrúar S,V,Y og X lista í Kópavogi segja í yfirlýsingu sem send var út í nótt að þeir standi sameiginlega að meirihlutaviðræðum í bænum og að talsmenn framboðanna hafi fullan vilja til að ljúka því verkefni. Í gær bárust þær fregnir að snurða hefði hlaupið á þráðinn í viðræðum á milli Samfylkingar, VG, Næstbesta flokksins og Y - lista Kópavogsbúa. 2.6.2010 06:30
Kona ók á litla hnátu og stakk svo af „Hún var að vakna grátandi í tvær nætur með verki en hún slapp samt ótrúlega vel, greyið litla,“ segir Sandra Hraunfjörð, móðir sjö ára stúlku sem varð fyrir bíl um síðustu helgi. 2.6.2010 06:30
Rektor sleginn yfir rothöggi á lotukerfi „Þetta er heilmikið kjaftshögg,“ segir Már Vilhjálmsson, rektor Menntaskólans við Sund, þar sem hætta verður við áður auglýsta breytingu á kennslu fyrir nýnema í skólanum. 2.6.2010 06:00
Þrettán skólakrakkar reisa torfbæ Þrettán nemendur í 8. bekk í Egilsstaðaskóla vinna þessa dagana að byggingu torfbæjar. Verkefnið er eitt margra sem nemendum býðst að taka þátt í á vordögum skólans. Nemendurnir sjá að mestu leyti sjálfir um verkið og þurfa meðal annars að reka niður staura, hlaða bæinn og mála hann. Framkvæmdirnar fara fram á lóð Safnahússins á Egilsstöðum. 2.6.2010 06:00
Öskufjúk mun verða vandamál allt árið Vandamál vegna öskufjúks eru líkleg til að verða viðvarandi allt þetta ár og jafnvel árum saman. Svifryksmengun vegna öskufjúks var yfir heilsuverndarmörkum á höfuðborgarsvæðinu á mánudag. Öskufjúk hefur gert fólki lífið leitt víða á Suðurlandi undanfarna daga. Lítið hefur rignt og því hafa gosefnin fokið auðveldlega í stífum vindi. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu fengu einnig sinn skammt eins og sást vel á skítugum bílum í gærmorgun og mistri sem lá yfir borginni. Víða v 2.6.2010 06:00
Kaninn þarf að færa sendi sinn Lýðræðishreyfingin hefur ekki afnotarétt af útvarpstíðninni FM 100,5 samkvæmt ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunarinnar (PFS). Í ákvörðun stofnunarinnar er meðal annars komist að þeirri niðurstöðu að réttur Lýðræðishreyfingarinnar til afnota af tíðninni hafi fallið niður um miðjan janúar og stofnuninni hafi því verið heimilt að endurúthluta henni til 2.6.2010 06:00
Um helmingur í sérfræðikostnað Heildarkostnaður við rekstur slitastjórnar og skilanefndar Landsbanka Íslands nam 3.263 milljónum króna á fyrsta fjórðungi þessa árs, eða rúmum milljarði á mánuði. Þar af var kostnaðurinn hér á landi 1.702 milljónir króna. 2.6.2010 06:00
Evran ekki ódýrari í rúmt ár Gengi krónunnar styrktist um 0,8 prósent í gær og endaði gengisvísitalan í 214,59 stigum. Hún hefur ekki verið lægri frá því snemma í apríl í fyrra. Gengi krónunnar hefur styrkst frá í nóvember í fyrra þegar vísitalan stóð í tæpum 240 stigum. 2.6.2010 06:00
Obama forseti hótar málsókn Breska olíufélagið BP er komið nokkuð á veg með enn eina tilraun til að stöðva olíulekann í Mexíkóflóa, en fyrri tilraunir hafi mistekist. 2.6.2010 06:00
Sjúkdómavörnum ábótavant Formenn hestamannafélaga hér á landi krefjast þess að Matvælastofnun leiti þegar allra leiða til að koma í veg fyrir að hrossasjúkdómar berist hingað frá útlöndum. 2.6.2010 05:00
Vantar meira fé til að rannsaka mistök „Rannsóknin á að svara þeirri spurningu hvort tíu prósent þeirra sem leggjast inn á spítala hér á landi verði fyrir einhvers konar skaða af völdum meðferðarinnar sem við erum að veita, eins og erlendar rannsóknir benda eindregið til,“ segir Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. 2.6.2010 05:00
Fjórir piltar grunaðir um yfir 80 innbrot Fjórir unglingspiltar eru í haldi yfirvalda, þrír í gæsluvarðhaldi og einn á meðferðarstofnuninni Stuðlum, grunaðir um að standa að mikilli innbrotaöldu á Suður- og Vesturlandi í maí. 2.6.2010 05:00
Miðstöðin nýtt til vöruþróunar Samkomulag um stofnun og starfsemi Matarsmiðjunnar á Flúðum hefur verið undirritað. Atvinnuþróunar- og Háskólafélag Suðurlands, Háskóli Íslands, Matís og sveitarfélögin á svæðinu koma að verkefninu. 2.6.2010 05:00
Langstærsti hlýri sem veiðst hefur á sjóstöng Þýski sjóstangveiðimaðurinn Frank Petzold veiddi um helgina 130 sentimetra hlýra sem vó 20 kíló. Þetta mun vera stærsti hlýri sem veiðst hefur á sjóstöng við strendur Íslands. Frank hefur ásamt hópi þýskra sjóstangveiðimanna verið við veiðar við Flateyri og Suðureyri undanfarnar vikur. 2.6.2010 04:00
Krakkarnir í sviðsljósinu næstu tvö sumur Fótboltakrakkarnir á Íslandi verða í sviðsljósinu á Stöð 2 Sport næstu tvö sumur eftir að Stöð 2 og KSÍ gerðu með sér samkomulag um samstarf þar sem markmiðið er að stórauka stuðning og umfjöllun um fótboltaiðkun æskunnar. 2.6.2010 04:00
Írar senda skip til Gasa Stuðningsfólk Palestínumanna hefur sent írska skipið Rachel Corrie af stað með hjálpar-gögn og fólk til Gasasvæðisins, daginn eftir að ísraelski herinn réðist á skipalest til að stöðva för hennar þangað. 2.6.2010 03:30
Systkini skipta um hlutverk Kristinn Þór Jakobsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ, náði kjöri sem bæjarfulltrúi í sveitarstjórnarkosningunum síðasta laugardag. 2.6.2010 03:30
Eurovision: Sungið á íslensku á næsta ári Næsta Söngvakeppni Sjónvarpsins verður sungin á íslensku. Páll Magnússon, útvarpsstjóri, sendi bréf þess efnis til Félags tónskálda og textahöfunda. Þar segir hann að um sé að ræða íslenska söngvakeppni fyrir íslenska áhorfendur. Þetta kemur fram á vef Ríkisútvarpsins. 1.6.2010 23:42
Y-listinn: Getum ekki samþykkt Guðríði sem bæjarstjóra „Guðríður vill verða bæjarstjóri, og það viljum við alls ekki," segir Ásdís Ólafsdóttir, Y-lista Kópavogsbúa. Eins og hefur komið fram hafa Samfylkingin, Vinstri grænir, Næst besti flokkurinn og Y-listi Kópavogsbúa, fundað síðustu daga um myndun meirihluta í Kópavogi. Flokkarnir hættu að funda klukkan fimm í dag og segir Ásdís að ekki náist samkomulag um hver fær bæjarstjórastólinn. 1.6.2010 22:27