Fleiri fréttir

Fimm mánaða skilorð fyrir að ráðast á kærustuna

Hnefaleikakappinn Skúli Steinn Vilbergsson, sem stundum er kallaður Skúli Tyson, var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að ráðast á þáverandi kærustu sína.

Samdrátturinn meiri vegna tafa á stóriðjuframkvæmdum

Útlit er fyrir að samdráttur verði meiri á árinu en gert var ráð fyrir í haust, samkvæmt endurskoðaðri spá hagdeildar ASÍ. Í spánni er gert ráð fyrir batinn í efnahagslífinu verði hægari en áður var talið.

Rösklega 60% andvígir spilavíti

Um 63,7% landsmanna eru frekar eða mjög andvígir því að rekstur spilavíta verði leyfður á Íslandi. Hins vegar er um 71% karla undir þrítugu fylgjandi því. Þetta sýna niðurstöður könnunar MMR.

Samþykktu frestun á nauðungarsölu

Alþingi samþykkti í dag breytingar á lögum um nauðungarsölu. þannig að ákvörðun um nauðungarsölu á íbúðarhúsnæði verður ekki tekin fyrr en eftir þrjá mánuði.

Eldur í bíl við Ásvallagötu

Eldur kom upp í bifreið á Ásvallagötu rétt fyrir klukkan þrjú. Slökkviliðsbifreið og sjúkrabifreið eru á leiðinni á staðinn, en ekki er vitað hversu umfangsmikill eldurinn er eða hvort einhver hafi hlotið meiðsl af.

Ráku burt argentinskt herskip

Breskur tundurspillir rak argentinskt herskip út úr landhelgi Falklandseyja í síðasta mánuði. Hljótt hefur verið um þetta mál.

Tafir á flugi frá landinu

Eins til tveggja tíma seinkun hefur orðið á flugi frá landinu á Keflavíkurflugvelli í morgun sökum veðurs. Að sögn Friðþórs Eydal upplýsingafulltrúa flugvallarins stafar seinkunin af töfum við afísingu flugvéla en mikið hefur snjóað á Suðurnesjum það sem af er degi.

Vill takmarka heimildir til að beita dráttarvöxtum

Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vill að heimildir lánadrottna til að beita dráttarvöxtum séu takmarkaðar. Þetta sagði Illugi í atkvæðagreiðslu eftir aðra umræðu um frumvarp um frestun á nauðungarsölum íbúða.

Stjórnsýsla landbúnaðarráðuneytisins allt of veik að mati ESB

Afnema verður tolla á landbúnaðarafurðum milli Íslands og aðildarríkja Evrópusambandsins gangi Ísland í sambandið og samræma tolla í viðskiptum við ríki utan sambandsins. Þá þarf að styrkja stjórnsýslu landbúnaðarráðuneytisins verulega sem er allt of veik að mati framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Frjálshyggjan orsakavaldur hrunsins

Meginorsök hrunsins er ekki að finna í aðgerðum eða aðgerðarleysi banka, eftirlitsaðila og stjórnvalda á Íslandi árið 2008. Þetta kemur fram í grein Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í nýjasta tímariti Máls og Menningar. Að hennar mati var það óheft frjálshyggja í tæpa tvo áratugi undir stjórn Sjálfstæðisflokks sem gerði það að verkum að Ísland var berskjaldað þegar alþjóðlega fjármálakreppan reið yfir.

Sigurbjörg ráðin lektor

Dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir hefur verið ráðin lektor í opinberri stefnumótun við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands frá og með 1. júlí 2010.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skipar heiðurssæti

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri og utanríkisráðherra, skipar heiðurssæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Listinn var samþykktur á fundi Fulltrúaráðs Samfylkingarinnar á Grand Hótel í gærkvöld.

Útilokað að hafa tvo karla efsta

Ekki kemur til greina að hafa karla í tveimur efstu sætunum á lista Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ, að mati oddvita flokksins, Jónasar Sigurðssonar.

Grunnskólanemum fækkar næstu árin

Nemendur í grunnskólum á Íslandi voru 42.929 haustið 2009, auk þess sem 89 börn stunduðu nám í 5 ára bekk í 5 skólum. Grunnskólanemendum hefur fækkað um 582 frá síðastliðnu skólaári, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Nemur fækkunin um 1,3%.

Ökumenn í vandræðum á Suðurnesjum

Lögreglan á Suðurnesjum þurfti í nótt að aðstoða þónokkra ökumenn á vanbúnum bílum, sem lent höfðu í vandræðum vegna snjóþyngsla, en töluvert hefur snjóað syðra í nótt og víða hefur skafið í skafla.

Kattauppskrift kemur sjónvarpskokki í koll

Ítalska ríkissjónvarpið hefur rekið vinsælan sjónvarpskokk eftir að hann bauð upp á uppskrift að því hvernig elda eigi ketti, í sjónvarpsþætti sínum. Beppe Brigazzi segist sakna starfsins en þvertekur fyrir að biðjast afsökunar þar sem hann hafi aðeins verið að fræða áhorfendur um matarmenningu Ítala fyrr á öldum.

Yanukovych tekur við embætti

Viktor Yanukovych var í morgun vígður í embætti sem forseti Úkraínu. Hann sigraði mótframbjóðanda sinn Júlíu Tymochenko á dögunum en hún heldur því fram að brögð hafi verið í tafli.

Ráðherrar víki af Alþingi

Gert er ráð fyrir að Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, mæli í dag fyrir frumvarpi þess efnis að ráðherrar víki sæti á Alþingi á meðan þeir gegna ráðherraembætti.

Hætta að framleiða Hummer

Fátt er nú talið geta komið í veg fyrir að jeppinn Hummer heyri brátt sögunni til. Hummer er í grunninn herjeppi sem smíðaður var fyrir Bandaríkjaher en síðar naut hann mikilla vinsælda hjá almenningi, sérstaklega í Bandaríkjunum þó nokkrir hafi til dæmis verið á götunum hér á landi.

Óöldin í Mexíkó heldur áfram

Grímuklæddir byssumenn myrtu þrettán manns í Mexíkó í gær. Mennirnir drápu fjóra menn á búgarði í suðurhluta landsins, bóndann, þrjá syni hans og fjóra aðra. Þegar lögregla kom á vettvang kom til byssubardaga þar sem fimm lögreglumenn létu lífið. Yfir fimmtán þúsund manns hafa látið lífið í átökum tengdum eiturlyfjasölu í Mexíkó síðustu tvö árin.

Stórtækir þjófar á ferð á Nesjavöllum

Lögreglan í Árnessýslu rannsakar nú innbrot í Hótel Ásbúð við Nesjavelli, sem uppgötvaðist í gær, en þar er ekki rekstur í vetur. Þaðan var stolið sófum, rúmum, stólum og borðum, svo það helsta sé nefnt, og er ekki vitað hverjir þar voru á ferð.

Allt á kafi í snjó í Eyjum - skólahaldi aflýst

Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út í Vestmannaeyjum undir morgun til að aðstoða vaktavinnufólk, sem sat fast í bíllum sínum vegna ófærðar. Öllu skólahaldi hefur verið aflýst í bænum í dag og segir lögreglan að kolófært sé víðast hvar. Fólki er því ráðlagt að halda sig heima verði því við komið.

Fleygðu manni fram af svölum í Vogum

Fimm menn á aldrinum 20 til 22 ára hafa verið ákærðir fyrir hrottalega árás á rúmlega þrítugan mann í Vogum á Vatnsleysuströnd fyrir ári.

Litlir fjárfestar geta illa leitað réttar síns

„Eftir að stjórn hluta­félags hefur verið skipuð á hinn einstaki hluthafi nánast enga möguleika á að hreyfa við einu eða neinu,“ segir Guðni Á. Haraldsson lögmaður og telur dæmi um að blokkir stærri eigenda fyrirtækja hafi farið offari í nokkrum tilvikum. „Þannig komu til dæmis upp svona blokkir og eyðilögðu stór félög á borð við Eimskipafélag Íslands og Icelandair.“

Danmörk í hóp tíu ríkustu

Danska stjórnin setur sér háleit markmið í nýrri stefnuyfirlýsingu, sem Lars Løkke Rasmus­sen forsætisráðherra og Lene Espersen, nýr utanríkisráðherra, kynntu í gær. Daginn áður hafði Rasmussen stokkað upp í stjórninni með gjörbreyttri ráðherraskipan.

Stuðnings- og traustsyfirlýsing við Ísland

„Mér finnst þetta jákvætt álit og í því felst viðurkenning á Íslandi sem samstarfsríki innan EFTA og EES og jafnframt á aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að endurreisa íslenskt efnahagslíf. Vissulega kemur fram að margt sé eftir en líka að við séum á réttri leið. Þess vegna finnst mér felast í þessu stuðnings- og traustsyfirlýsing við Ísland.“ Þetta segir Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel og aðalsamningamaður, um álit framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um aðildarumsókn Íslands.

Segist ekki setja skattfé í einkaspítalann

Tekist var á um yfirlýsingar Ögmundar Jónassonar, þingmanns VG, um væntanlegt einkasjúkrahús á gamla varnarsvæðinu á Alþingi í gær. Fram hefur komið að leggja þurfi eitt hundrað milljónir króna til að endurbyggja gamla hersjúkrahúsið á svæðinu. Hefur Ögmundur lýst því yfir að þeir peningar hljóti að koma úr vösum skattgreiðenda og það á sama tíma og skera þurfi niður í heilbrigðiskerfinu.

Fara kettir og hundar í bann?

Íbúar í Hrísey og Grímsey munu kjósa um bann við hunda- og kattahaldi samfara sveitarstjórnarkosningum í maí ef tillaga framkvæmdaráðs Akureyrar verður samþykkt af bæjarráði.

Yfirmenn hjá Google dæmdir

Þrír yfirmenn hjá netfyrirtækinu Google voru í gær dæmdir í allt að sex mánaða skilorðisbundið fangelsi fyrir brot á friðhelgi einkalífsins. Mennirnir voru fundnir sekir um að hafa leyft birtingu myndskeiðs á Netinu fyrir fjórum árum, sem sýndi fjóra unglinga í skóla í Tórínó á Ítalíu ráðast á andlega fatlaðan samnemanda sinn.

Angraður með hávaða í átta ár

Íbúi einn í Kópavogi segist ætla að leggja fram kæru vegna mikils ónæðis frá Sporthúsinu. „Í tæplega sjö ár hef ég kvartað undan þessu við bæjar­yfirvöld, forráðamenn Sporthússins og lögreglu án árangurs og ekkert breytist. Ég get ekki hugsað mér að eyða enn einu sumrinu í garðinum undir látlausum drunum frá Sporthúsinu,“ segir í bréfi íbúans sem sent var undir yfirskriftinni„Endalaus hávaði“ og barst bæjaryfirvöldum í maí í fyrra.

Sjálfstæðisflokkur á meiri eignir en áður

Framlög lögaðila til Sjálfstæðisflokksins árið 2008 námu 8,6 milljónum króna, samkvæmt ársreikningi flokksins. Þessi framlög námu tæpum 57 milljónum árið 2007. Á sama tíma fóru eignir flokksins úr því að vera tæpar 462 milljónir og í rúmar 705 milljónir króna. Eigið fé flokksins fer úr 386,3 milljónum og í 662,7 milljónir, sem er aukning um 71 prósent.

Óvenjuhlýtt á Grænlandi í ár

Óvenjumikil hlýindi hafa verið á Grænlandi í vetur, einkum þó á sunnanverðu landinu. Janúarmánuður hefur verið sá hlýjasti síðan mælingar hófust árið 1958. Ástæðan mun vera þrálát hæð yfir Grænlandi og Baffineyju, sem gerir það að verkum að kalda veðrið fer fram hjá, eins og til dæmis Bandaríkjamenn og Íslendingar hafa fengið að kynnast.

Forstjóri Toyota baðst afsökunar

Akido Toyoda, forstjóri japanska bílaframleiðslufyrirtækisins Toyota, bað í dag bandaríska bílaeigendur og þingnefnd Bandaríkjaþings afsökunar á galla í bílum frá fyrirtækinu sem leiddu til dauða og innköllun milljóna bíla. Hann vottaði aðstandendum þeirra sem látist hafa vegna galla í bílum fyrirtækisins samúð sína.

Flugumsjónamenn sömdu við Icelandair

Stjórn og samningarnefnd Félags Flugumsjónarmanna á Íslandi samdi í dag við Icelandair um nýjan kjarasamning og gildir hann til 31. janúar 2011. Kjarasamningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki félagsmanna, segir Karl Friðriksson, formaður félagsins, í tilkynningu.

Hollensk sendinefnd á leið til London

Hollensk sendinefnd heldur til London á morgun til fundar við íslensku samninganefndina um Icesave. Þetta kemur fram á vef Reuters. Hluti íslensku samninganefndarinnar hélt til London í gær og hefur beðið þar reiðubúinn til að ganga á fund með Bretum og Hollendingum.

Sjá næstu 50 fréttir