Innlent

Stjórnsýsla landbúnaðarráðuneytisins allt of veik að mati ESB

Heimir Már Pétursson skrifar
Styrkja þarf stjórnsýslu landbúnaðarráðuneytisins. Mynd/ Arnþór.
Styrkja þarf stjórnsýslu landbúnaðarráðuneytisins. Mynd/ Arnþór.
Afnema verður tolla á landbúnaðarafurðum milli Íslands og aðildarríkja Evrópusambandsins gangi Ísland í sambandið og samræma tolla í viðskiptum við ríki utan sambandsins. Þá þarf að styrkja stjórnsýslu landbúnaðarráðuneytisins verulega sem er allt of veik að mati framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Sjávarútvegur og landbúnaðaur eru tveir stærstu og erfiðustu málaflokkarnir í aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið. Í skýrslu framkvæmdastjórnarinnar þar sem mælt er með aðildarviðræðum við Ísland og send var leiðtogum sambandsins og Evrópuþinginu í gær, er vakin athygli á afar veikri stöðu landbúnaðarráðuneytisins. Þar vinni einungis 40 manns sem aðallega sjái um stefnumörkun.

Stjórnsýslunni hafi hins vegar meira og minn verið komið í hendur hagsmunasamtaka eins og Bændasamtakanna og ýmissra stofnanna. Styrkja verði landbúnaðarráðuneytið og koma á stofn stjórnsýslueiningu sem sjái um að framfylgja landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins, styrkjakerfi þess og byggðastefnu. En í skýrslunni er einnig bent á að á Íslandi sé ómarkviss byggðastefna sem að auki sé ekki í samræmi við byggðastefnu Evrópusambandsins.

Þótt þessi málaflokkur sé mikilvægur, er í skýrslunni bent á að lándbúnaður standi aðeins undir 1,4 prósentum af landsframleiðslunni og 2,5 prósent vinnuaflsins starfi í landbúnaði. Þá búi 6.5 prósent þjóðarinnar í sveitum landsins. Einnig er bent á að 65 prósent af innfluttum landbúnaðarvörum á Íslandi komi frá Evrópusambandinu og 47 prósent af útfluttum landbúnaðarafurðum héðan fari til Evrópusambandsins.

Hagsmunir Íslands og sambandsins eru því nátengdir. Tollar yrðu aflagðir með aðild, þannig að verð á innfluttum landbúnaðarafurðum myndi lækka töluvert hér á landi. Sömuleiðis myndi verð á íslenskum landbúnaðarafurðum lækka í sambandsríkjunum og þar með yrðu þær samkeppnishæfari þar.

Með aðilid Íslands yrði landið hluti af víðtæku styrkjakerfi Evrópusambandsins. Í skýrslunni er bent á að landið liggi norðan 62. breiddargráðu, hér sé lítið ræktarland og aðstæður til landbúnaðar um margt erfiðar. Hins vegar sé söfnun tölfræðilegra upplýsinga í landbúnaði hér ábótavant og bragarbót verði að gera á henni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×