Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Starfsfólkið eignast fyrirtækin - ekki fyrrverandi eigendur Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG og formaður viðskiptanefndar, vill að starfsfólki fyrirtækja sem bankarnir hafa leyst til sín verði gefinn kostur á að eignast þau í stað fyrrverandi eigenda sem oftar en ekki komi ekki inn með eigið fé í reksturinn. Hún telur brýnt að settar verði meginreglur um markmið með skuldbreytingum fyrirtækja og heimila. Rætt var við Lilju í þættinum Í bítið á Bylgjunni fyrr í morgun. 8.2.2010 09:52
Sekt fyrir að drepa rottu Breska sjónvarpsstöðin ITV hefur verið sektuð um 3000 dollara vegna rottu sem var drepin og étin í raunveruleikaþætti sem tekinn var upp í Ástralíu. 8.2.2010 09:47
Gaf bresku rannsóknarnefndinni röng svör Hans Blix, fyrrverandi yfirmaður vopnaeftirslits Sameinuðu þjóðanna, segir að Jack Straw, fyrrverandi utanríkisráðherra Breta, hafi gefið röng svör þegar hann bar nýverið vitni fyrir rannsóknarnefnd sem fer ofan í saumana á aðdraganda Írakstríðsins. 8.2.2010 08:31
25 milljónir fyrir ráðgjöf til Alþingis Breska lögmannsstofan Mishcon de Reya hefur sent Alþingi og fjárlaganefnd 25 milljóna króna reikning fyrir lögfræðiráðgjöf vegna Icesave-deilunnar við Breta og Hollendinga. Þá var Jón Daníelsson, prófessur í Lundúnum, gerður út af örkinni til að rukka þingið um reikninginn. 8.2.2010 08:28
Norsku loðnuskipin sigla heim á leið Norsku loðnuskipin sem verið hafa að veiðum á Íslandsmiðum undanfarna daga hafa nú snúið til síns heima enda kvótinn fullnýttur. Norsk skip máttu veiða um 28 þúsund tonn af loðnukvótanum sem gefinn var út nýverið og nýttu þeir sér það til fulls. 8.2.2010 08:24
Leituðu að ungum dreng Björgunarsveit var kölluð út í Reykjanesbæ í gærkvöldi til þess að leita að fjögurra ára gömlum dreng sem horfið hafði af heimilli sínu. Lögreglumenn tóku einnig þátt í leitinni en strákurinn hvarf um hálf átta í gærkvöldi. Hann fannst þó skömmu síðar og hafði hann brugðið sér í heimsókn í næsta hús án þess að foreldrarnir yrðu þess varir. Ósk um aðstoð björgunarsveitar var því afturkölluð. 8.2.2010 08:23
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar sigrar í Úkraínu Allt lítur út fyrir að Viktor Janukovitsj, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Úkraínu og fyrrverandi forsætisráðherra, hafi sigrað í síðari umferð forsetakosninganna sem fram fóru í landinu í gær. 8.2.2010 08:15
Vill herskyldu í Afganistan Hamid Karzai, forseti Afganistans, sagðist á fundi um varnarmál sem fór fram í Þýskalandi um helgina vera að íhuga að taka upp herskyldu í landi sínu. Hann sagði fjölmarga afganska leiðtoga hafa hvatt sig til að grípa til róttækra aðgerða í öryggis- og varnarmálum. Sjálfur vill hann fjölga í afganska hernum og lögregluliði landsins um 300 þúsund fyrir 2012. 8.2.2010 08:10
Fimm létust í sprengingunni í Connecticut Að minnsta kosti fimm létust og 12 slösuðust í kröftugri sprengingu í orkuveri í borginni Middletown í Connecticut í Bandaríkjunum síðdegis í gær. Sprengingin sem rakin er til gasleka var að sögn sjónarvotta afar öflug og heyrðist í meira en 50 kílómetra fjarlægð. Brak þeyttist marga kílómetra frá orkuverinu sem var enn í byggingu. Allt að 60 iðnaðarmenn voru að störfum í verinu þegar sprengingin varð. 8.2.2010 08:05
Kjörin forseti Kosta Ríka fyrst kvenna Laura Chinchilla var í gær kjörin forseti Kosta Ríka fyrst kvenna. Hún var varaforseti Oscar Arias fráfarandi forsetaembætti. 8.2.2010 07:58
Norðmenn farnir af loðnumiðum Norsku loðnuskipin sem verið hafa að veiðum á Íslandsmiðum undanfarna daga hafa nú snúið til síns heima enda kvótinn fullnýttur. Norsk skip máttu veiða um 28 þúsund tonn af loðnukvótanum sem gefinn var út nýverið og nýttu þeir sér það til fulls. 8.2.2010 07:11
Enn leitað að Sunnubúðarræningjanum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn að manni sem framdi vopnað rán í Sunnubúð í Hlíðunum á áttunda tímanum í gærkvöldi. Að sögn lögreglu náðust greinargóðar myndir af manninum á öryggismyndavél sem staðsett er í búðinni og er um að ræða karlmann, 18 til 22 ára gamlann og var hann klæddur í dökka úlpu og víðar gallabuxur. 8.2.2010 07:08
Yngstu börnin bíða úti í sparnaðarskyni Sökum árferðis í efnahagsmálum kaupir Reykjavíkurborg ekki öll pláss sem eru í boði fyrir börn á leikskólaaldri. Þjónusta við foreldra er því skert. Svo segir formaður Samtaka sjálfstæðra skóla, Margrét Pála Ólafsdóttir: „Þetta eru döpur tíðindi, þegar sagt er að eigi að verja grunnþjónustu, að yngstu börnin eru látin bíða úti þegar plássin eru fyrir hendi.“ 8.2.2010 06:30
Brutust í gegnum múrinn Vísindamenn í Cambridge í Bretlandi og Liege í Belgíu segjast hafa náð sambandi við nokkra sjúklinga sem taldir hafa verið í skynlausu ástandi, sem er frábrugðið dásvefni að því leyti að sjúklingarnir eru vakandi en sýna engin merki þess að skynja neitt í umhverfi sínu. 8.2.2010 06:00
Vesturveldin uggandi yfir stöðunni Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti hefur farið fram á það við yfirmann kjarnorkumála landsins að framleiðsla á auðguðu úrani verði aukin um 20 prósent. Verkefnið er hluti af áætlun Írana um að flytja auðgað úran úr landi í skiptum fyrir kjarnorkueldsneyti. Ahmadinejad lýsti þessari fyrirætlun í íranska ríkissjónvarpinu. 8.2.2010 06:00
Göngudeild SÁÁ á Akureyri lokað í vor Göngudeild SÁÁ á Akureyri verður lokað í vor samkvæmt ákvörðun framkvæmdastjórnar SÁÁ. Ákvörðunin er liður í sparnaði hjá meðferðarsamtökunum í kjölfar niðurskurðar á framlögum ríkisins til sjúkrareksturs SÁÁ. 8.2.2010 06:00
Er tíu sinnum hraðvirkara Kauphöllin stígur stórt skref í dag þegar það innleiðir nýja kynslóð af viðskiptakerfinu INET. 8.2.2010 04:30
Erfitt að tryggja atvinnuöryggi Erfitt er að tryggja atvinnuöryggi blaðamanna, nema með auknum styrkjum til fjölmiðla, en í nýju frumvarpi til fjölmiðlalaga verður reynt að bæta réttarstöðu þeirra. Meðal annars á þá að verða úr sögunni að blaðamenn séu dæmdir fyrir orð viðmælenda sinna. 8.2.2010 03:30
Fimmta tjón Náttúrufræðistofnunnar - vatnsleki eyðilagði gróðurkort Litlu mátti muna að stórtjón hefði orðið í geymslu Náttúrufræðistofnunnar Íslands í Súðavogi ef ekki hefði verið fyrir Þorvald Björnsson, starfsmanns stofnunarinnar, en þegar hann kom til vinnu var geymslan full af vatni. Vatnið náði honum upp að ökklum og hafði lekið niður af efri hæðinni, sennilega vegna mannlegra mistaka. 7.2.2010 18:22
Búrka-bófar rændu banka í Frakklandi Tveir einstaklingar klæddir í Búrka, sem er trúarlegur klæðnaður múslímskra kvenna, rændu banka í París á dögunum og komust í burtu með tæpa milljón. Ránið átti sér stað um miðjan dag í hverfinu Athis Mons en langflestir íbúar hverfsins eru múslimar frá Norður-Afríku. 7.2.2010 17:29
Loðnan komin óvanalega langt vestur Svo virðist sem loðna sé óvenju snemma á ferð undan Suðurströndinni þetta árið ef marka má staðsetningu fjölveiðiskipa á fiskislóðinni. Ekki er vitað hversu mikið magn er um að ræða, en sú loðna sem þarna er virðst vera á hraðri vesturleið. 7.2.2010 17:07
Tvísýnar kosningar í Úkraínu Forsetakosningar í Úkraínu eru komnar vel á veg og hafa gengið stóráfallalaust fyrir sig samkvæmt fréttavef breska ríkisútvarpsins. Það eru þau Yulia Tymoshenko, núverandi forsætisráðherra, og Viktor Yanukovych sem berjast um embættið eftir að núverandi forseti Úkraínu, Viktor Yushcenko tapaði í fyrri umferð forsetakosninganna. 7.2.2010 16:37
Spilavíti í Heilsuverndarstöðina- Landlæknir skoðar málið „Heilbrigðisráðuneytið leggst gegn hugmyndinni,“ segir Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, en óskað hefur verið eftir óformlegum umsögnum lögreglu og landlæknaembættisins til þess að meta hvort það sé heppilegt að lögleiða fjárhættuspil á Íslandi. 7.2.2010 16:22
Ríflega helmingur þjóðarinnar ónæmur fyrir Svínaflensu Meira en helmingur þjóðarinnar er nú ónæmur fyrir svínainflúensunni A(H1N1). Búið er að bólusetja um 130.000 manns og ætla má að á bilinu 50-60.000 manns hafi fengið veikina í faraldrinum sem gekk yfir landið á síðari hluta árs 2009. Þetta kemur fram í tilkynningu frá landlæknaembættinu. 7.2.2010 13:53
Hollenski seðlabankinn sinnti ekki eftirlitsskyldum sínum Hagfræðingurinn Robert Wade segir að Ísland hefði aldrei sætt sömu meðferð af hálfu Hollendinga og Breta ef Ísland hefði verið stærra land eða hluti af ESB. 7.2.2010 13:27
Tekur ekki sæti í Garðabæ: „Ég segi nei takk og gangi þeim vel" Lögfræðingurinn Ragný Þóra Guðjohnsen, sem sóttist eftir 2-3 sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, ætlar ekki að taka sjötta sætinu þar sem hún endaði í prófkjörinu en hún hefur verið varabæjarfulltrúi flokksins síðan 2002. 7.2.2010 11:41
Óvanaleg steinbítshrygna í Vestmannaeyjum Í nótt hrygndi steinbítshrygna í fiskasafni Vestmannaeyja. Hrygningin er óvanaleg að því leytinu að hrygningartími steinbíts er venjulega í október og nóvember en þessi hrygning á sér stað í febrúar. Hrygnan hefur þegar myndað hrognabolta og hefur vafið sig utan um hann. Þannig ver hún hrognin sem eru á að giska 1000 til 2000 talsins. 7.2.2010 14:16
Mörg hundruð þúsund heimili án rafmagns vegna blindbyls Mörg hundruð þúsund heimili eru án rafmagns í Washington höfuðborg Bandaríkjanna eftir blindbylur gekk yfir svæðið í gær. 7.2.2010 13:08
Framsókn ekki á leiðinni í ríkisstjórn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins segist ekki vita hvaðan orðrómur um að flokkur hans sé að setjast í ríkisstjórn sé kominn. Hann hafi gefið núverandi stjórn tækifæri sem minnihlutastjórn en fengið það strax í bakið. 7.2.2010 12:56
Segja Eið Smára hafa greitt fyrir þagmælsku frönsku fyrirsætunnar Slúðurblaðið News Of the World greinir frá því í dag að Eiður Smári Guðjohnsen hafi greitt frönsku undirfatafyrirsætunni Vanessu Perroncell tíu þúsund pund þegar meintu ástarsambandi þeirra á að hafa lokið árið 2003. Greiðsluna á Eiður Smári að hafa innt af hendi til þess að tryggja að hún héldi trúnaði við hann varðandi meint ástarsambandið samkvæmt News of the World. 7.2.2010 10:18
Karlmaður nefbrotinn í nótt Lögreglunni barst tilkynning um líkamsárás laust eftir klukkan fjögur. Karlmaður hafði verið sleginn í andlitið við skemmtistað á Laugavegi með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði. Lögreglan kom manninum á slysadeild. 7.2.2010 09:36
Hnuplaði jakka og endaði á því að stela bíl Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og verkefnin af öllum toga eins og segir í tilkynningu embættinu. 7.2.2010 09:31
John Terry: Reynir að þagga niður í fleiri hjákonum Hin franska Vanessa Peroncell er ekki sú eina sem knattspyrnustjarnan John Terry ætlar að borga fyrir að þegja um ástarsamband sitt við hann. Eftir því sem fram kemur í breska sunnudagsblaðinu News of the World þá eru stúlkurnar í það minnsta fjórar í viðbót. 7.2.2010 06:00
Sóley hreppti fyrsta sætið í forvali VG Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi sigraði í forvali VG í Reykjavík sem fram fór í dag. 1062 atkvæði voru greidd í forvalinu og hlaut Sóley 439 atkvæði í fyrsta sæti. Í öðru sæti varð Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi og í því þriðja hafnaði Líf Magneudóttir. 6.2.2010 22:04
Góð þátttaka í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ Mikil þátttaka var í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Garðabæ í dag en alls kusu 1700 manns. 6.2.2010 20:48
Ebay-hrappur krafinn um eins punds endurgreiðslu Breskri Ebay hrappurinn Philip Shortman var dæmdur til þess að greiða eitt pund til baka af þeim hundrað þúsund pundum sem hann hefur haft af fólki með svikum og prettum á uppboðssíðunni Ebay. 6.2.2010 23:00
Nýliði í þriðja sæti VG - Líf er í skýjunum og með báðar fætur á jörðinni „Ég er alveg í skýjunum. Himinlifandi, en auðvitað spyr maður að leikslokum,“ segir Líf Magneudóttir sem er í þriðja sæti í forvali VG í Reykjavík en þess ber að geta að aðeins þrjúhundruð atkvæði af þúsund hafa verið talin. Því getur staðan hæglega breyst. 6.2.2010 21:00
Andrea náði fyrsta sætinu í forvali VG á Akureyri Andrea Hjálmarsdóttir, kennari við Háskólann á Akureyri náði fyrsta sætinu í forvali Vinstri grænna þar í bæ og skaut þar bæjarfulltrúann Baldvin H. Sigurðsson ref fyrir rass en hann sækist einnig eftir fyrsta sætinu. Baldvin er í þriðja sæti þessa stundina en í öðru sæti er Edward Huijbens. 6.2.2010 20:05
Tvær konur í sex efstu sætum Sjálfstæðismanna í Garðabæ Endanlegur listi liggur fyrir í Garðabæ en búið er að telja öll greidd atkvæði. Aðeins tvær konur eru á listanum og þær ná ekki þremur efstu sætunum. Erlingur Ásgeirsson, bæjarfulltrúi, er með fyrsta sætið. 6.2.2010 19:54
Prófkjör á Álftanesi: Forseti Bæjarstjórnar efstur Fyrstu tölur úr prófkjöri í Álftanesi eru komnar en þar er Kristinn Guðlaugsson, forseti bæjarstjórnar, efstur á blaði. Þá vekur athygli að Guðmundur G. Gunnarsson, fyrrum bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Álftanesi til margra ára nær ekki einu af sex efstu sætunum. 6.2.2010 19:49
Prófkjör í Garðabæ: Erling Ásgeirsson efstur Þegar talin hafa verið 1.000 atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Garðabæ þá er listinn svona: 6.2.2010 19:44
VG í Reykjavík með jafn mikla kjörsókn og Sjálfstæðisflokkurinn Af þeim 2800 einstaklingum sem eru skráðir í Vinstri græna í Reykjavík kusu þúsund í forvali flokksins sem haldið var í dag. Það gera tæplega 36 prósent. 6.2.2010 19:34
Sóley í fyrsta sæti VG í Reykjavík - 20 atkvæði skilja sætin að Um þúsund atkvæði hafa verið greidd á kjörstað í forvali VG í Reykjavík og nokkrir tugir utankjörfundaratkvæða með póstkosningu. 6.2.2010 19:05
Leki kom upp um kannabisræktun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Krummahólum í Breiðholti í dag. Þetta er fjórða kannabisræktunin sem lögreglan upprætir á innan við hálfum mánuði. 6.2.2010 18:55
Flestar mæður eyða fóstrum með litningagalla Nær flestar mæður barna sem greinast með litningagalla á meðgöngu fara í fóstureyðingu. Hins vegar fæðast nokkur börn á ári með downs heilkenni eða aðra litningagalla sem ekki greinast í fósturskimun. Þó nokkrar konur kjósa að eyða ekki fóstrinu þrátt fyrir líkur á litningagalla. 6.2.2010 18:51