Yngstu börnin bíða úti í sparnaðarskyni 8. febrúar 2010 06:30 MArgrét Pála Ólafsdóttir
Sökum árferðis í efnahagsmálum kaupir Reykjavíkurborg ekki öll pláss sem eru í boði fyrir börn á leikskólaaldri. Þjónusta við foreldra er því skert. Svo segir formaður Samtaka sjálfstæðra skóla, Margrét Pála Ólafsdóttir: „Þetta eru döpur tíðindi, þegar sagt er að eigi að verja grunnþjónustu, að yngstu börnin eru látin bíða úti þegar plássin eru fyrir hendi.“ Fréttablaðið hefur greint frá því að yfir 120 börn, eldri en átján mánaða gömul, eru á biðlista hjá leikskólasviði borgarinnar. Margrét Pála segir að hjá Hjallastefnuleikskólunum einum væri hægt að bæta við allt að þrjátíu börnum í vetur. „Og ég veit að sjálfstæðir leikskólar hafa þungar áhyggjur af því að geta ekki innritað börn í vor heldur þurfa að bíða með laus pláss í sumar og fram á haust, vegna sparnaðar borgarinnar,“ segir hún. Þetta komi varla til með að bjarga efnahagsástandi þjóðarinnar. Spara megi með því að nýta einkaskólana. „Við erum til dæmis með nýjan leikskóla í nýbyggðu húsi. Þannig sparaði borgin sér umtalsvert fé með því að þurfa ekki að byggja nýtt heldur borga húsnæðisstyrk með hverju rými. Okkar pláss eru því á engan máta dýrari, ef eitthvað er getur borgin sparað sér fjármagn með því að standa með sjálfstæðum skólum,“ segir hún. Ragnar Sær Ragnarsson er starfandi formaður leikskólaráðs. Hann segist ekki skilja að hverju Margrét Pála sé að ýja eða af hverju hún ekki visti fleiri börn í sinn skóla. Ekki „nema hún sé að svindla á kerfinu eða eitthvað, ég veit það ekki“. Allir samningar við einkarekna skóla í borginni séu fullnýttir og hann viti ekki til þess að þar séu nein ónýtt pláss. Margrét hafi ef til vill byggt við hjá sér eða reiknað sér stærri gólfflöt en áður. „Hún er þá eitthvað að svíkja þennan samning ef hún er að meina að við séum ekki að uppfylla hann,“ segir Ragnar: „Láttu mig vita ef við erum ekki að uppfylla samninga og þá skal ég senda börn.“ Áður hefur komið fram í blaðinu að sviðsstjóri leikskólasviðs útilokar ekki að borgin nýti sér laus pláss í leikskóla Hjallastefnunnar. klemens@frettabladid.is Ragnar Sær Ragnarsson
Mest lesið Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis Innlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Bein útsending: Daði Már gangsetti vindmyllur Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Innlent Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Innlent Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Innlent Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Ekki víst að asbestmengun hafi borist með reyknum Skipuleggjandi smygls handtekinn á Spáni og ákærður hér Fiskikóngurinn og Háskólinn rannsaka skötu Eftir því sem lengra líður eykst óvissan Stór skjálfti í Langjökli fannst víða Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Fangar þurfi að fylgja samþykktri dagskrá í dagsleyfum Segir fækkun útlendinga sýna að stjórnvöld nái tökum á innflytjendamálum Bein útsending: Daði Már gangsetur vindmyllur Stjórnarráðið beini auglýsingafé frá samfélagsmiðlum Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Áfall að sjá dæmdan kynferðisbrotamann fyrir utan heimilið Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Heimilislæknar minna ríkisstjórn á gefin loforð „Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi“ Ásmundur skipaður forseti Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Í forgangi sé að ræða við starfsfólk SÁÁ og tryggja vinnufrið Útlendingum fækkað það sem af er ári Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Sjá meira