Innlent

Flestar mæður eyða fóstrum með litningagalla

Helga Arnardóttir skrifar

Nær flestar mæður barna sem greinast með litningagalla á meðgöngu fara í fóstureyðingu. Hins vegar fæðast nokkur börn á ári með downs heilkenni eða aðra litningagalla sem ekki greinast í fósturskimun. Þó nokkrar konur kjósa að eyða ekki fóstrinu þrátt fyrir líkur á litningagalla.

Fæðingum barna með litningagalla hefur fækkað verulega síðustu ár vegna fósturskimunar. Árið 2008 fóru tæplega þrjú þúsund og fimm hundruð verðandi mæður í fósturskimun. Líkur voru á litningagalla hjá rúmlega hundrað og tuttugu konum. 80% þeirra gengust undir litningarannsókn og fengu ástungu þar sem litningagallinn var staðfestur og var öllum fóstrum í þeim tilvikum eytt.

10 tilfelli voru downs heilkenni en önnur voru alvarlegir litningagallar. Yfirlæknir á fæðingardeild Landspítalans segir að fólk sé vel undirbúið áður en tekin er ákvörðun um fóstureyðingu.

Tuttugu prósent kvennanna sem hvorki fóru í ástungu né í litningarannsókn áttu börnin og fæddist eitt þeirra með downsheilkenni.

Fósturskimun greinir eingöngu 90 % tilfella barna með litningagalla. Eitt barn fæddist því með downs heilkenni þar sem ekki töldust líkur á slíkum galla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×