Innlent

Segja Eið Smára hafa greitt fyrir þagmælsku frönsku fyrirsætunnar

Slúðurblaðið News Of the World greinir frá því í dag að Eiður Smári Guðjohnsen hafi greitt frönsku undirfatafyrirsætunni Vanessu Perroncell tíu þúsund pund þegar meintu ástarsambandi þeirra á að hafa lokið árið 2003.

Greiðsluna á Eiður Smári að hafa innt af hendi til þess að tryggja að hún héldi trúnaði við hann varðandi meint ástarsamband þeirra samkvæmt News of the World.

Það eru hinsvegar smámunir miðað við það sem John Terry, liðsmaður Chelsea, á að hafa greitt henni. Samkvæmt News of the World á hann að hafa borgað henni alls 750 þúsund pund fyrir þagmælskuna.

Breska pressan hefur vakið athygli á því að Vanessa hefur ekki tjáð sig um meint ástarsambönd hennar við 6 núverandi og fyrrverandi liðsmenn Chelsea liðsins í breskum fjölmiðlum.

Aftur á móti hefur upplýsingafulltrúi hennar, Max Clifford, séð um öll samskipti hennar við pressuna. Það hefur styrkt trú breskra blaðamanna og álitsgjafa um að Vanessu hafi verið borgað fúlgur fjár.

Þá má geta þess að upplýsingafulltrúi Terrys er einmitt fyrrverandi ritstjóri News of the World og þykir ansi harðsvíraður í sínu fagi.

Bæði Eiður Smári og Vanessa hafa neitað því að hafa átt í ástarsambandi.

Hægt er að lesa umfjöllun blaðsins hér.






Tengdar fréttir

Capello tekur ákvörðun um John Terry

Enska knattspyrnusambandið hefur gefið það út að það sé í höndum landsliðsþjálfarans, Fabio Capello, hvað verði um John Terry.

Eiður Smári í klóm breskra fjölmiðla

Eiður Smári Guðjohnsen, fyrrverandi fyrirliði íslenska landsliðsins og leikmaður Tottenham, er í kastljósi bresku pressunnar um þessar mundir eftir að breska blaðið The Sun hélt því fram að hann hefði átt í ástarsambandi við undirfatafyrirsætuna Vanessu Perroncel.

Landsliðsfyrirliðinn barnaði kærustu samherja síns

John Terry, fyrirliði enska landsliðsins og Chelsea, gerði Vanessu Perroncel kærustu Wayne Bridge, liðsfélaga síns í Chelsea og landsliðinu, ólétta. Greint er frá málinu á vef News of the World í dag en Terry reyndi að fá lögbann á birtingu fréttar um málið í breskum fjölmiðlum. Á þá beiðni féllust þarlendir dómstólar ekki. Talið er að málið eigi eftir að draga dilk á eftir sér fyrir landsliðsfyrirliðann.

Segir Eið Smára víst hafa átt í ástarsambandi við Vanessu

Leigusali Vanessu Perconell, sem er sökuð um að hafa sængað hjá rúmlega hálfu fótboltaliði Chelsea, segir í viðtali við The Sun í dag að hún hefði margsinnis séð Eið Smára heima hjá Vanessu árið 2003. Bæði Eiður Smári og Vanessa hafa þvertekið fyrir að hafa átt í ástarsambandi.

Eiður Smári neitar ásökunum um framhjáhald

Eiður Smári Guðjohnsen neitar að hafa átt í ástarsambandi við Vanessu Perroncel árið 2003 en enska dagblaðið The Sun fjallar ítarlega um meint framhjáhald hans í dag.

John Terry: Reynir að þagga niður í fleiri hjákonum

Hin franska Vanessa Peroncell er ekki sú eina sem knattspyrnustjarnan John Terry ætlar að borga fyrir að þegja um ástarsamband sitt við hann. Eftir því sem fram kemur í breska sunnudagsblaðinu News of the World þá eru stúlkurnar í það minnsta fjórar í viðbót.

Vanessa neitar að hafa átt í ástarsambandi við Eið Smára

Fótboltafrúin Vanessa Perroncell hefur neitað ásökunum um að hafa sofið hjá Eiði Smára Guðjohnsen í blaðinu The London Evening Standard en það var upplýsingafulltrúinn hennar, Max Clifford sem talaði við blaðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×