Innlent

Prófkjör á Álftanesi: Forseti Bæjarstjórnar efstur

Álftanes.
Álftanes.

Fyrstu tölur úr prófkjöri í Álftanesi eru komnar en þar er Kristinn Guðlaugsson, forseti bæjarstjórnar, efstur á blaði. Þá vekur athygli að Guðmundur G. Gunnarsson, fyrrum bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Álftanesi til margra ára nær ekki einu af sex efstu sætunum.

Búið er að telja 150 atkvæði. 371 flokksmaður er á kjörskrá. Mikið af nýjum félögum eru að bætast við kjörskrána svo endanlega tala á kjörskrá er ekki ljós.

Staðan er þessi samkvæmt fyrstu tölum:

1. Kristinn Guðlaugsson, 60 atkvæði

2. Snorri Finnlaugsson, 54 atkvæði

3. Hjördís Jóna Gísladóttir, 75 atkvæði

4. Kjartan Örn Sigurðsson, 90 atkvæði

5. Guðjón Andri Kárason, 90 atkvæði

6. Elísabet Blöndal, 81 atkvæði




Fleiri fréttir

Sjá meira


×