Innlent

25 milljónir fyrir ráðgjöf til Alþingis

Mynd/Stefán Karlsson
Breska lögmannsstofan Mishcon de Reya hefur sent Alþingi og fjárlaganefnd 25 milljóna króna reikning fyrir lögfræðiráðgjöf vegna Icesave-deilunnar við Breta og Hollendinga. Þá var Jón Daníelsson, prófessur í Lundúnum, gerður út af örkinni til að rukka þingið um reikninginn.

Í sundurliðun 25 milljóna króna reiknings sem Mishcon de Reya hefur sent Alþingi vegna lögfræðiráðgjafar er gert ráð fyrir að 10 milljónir króna renni til Gunnlaugs Erlendssonar, lögfræðings sem búsettur er í Bretlandi, að því er fram kemur í DV í dag. Gunnlaugur sinnti eitt sinn störfum fyrir Novator, fjárfestingarfélag Björgólfs Thors Björgólfssonar og höfðaði sem kunnugt er mál gegn fyrirtækinu á síðasta ári vegna vangreiddrar þóknunar. DV greinir frá því að enginn innan Alþingis kannist við að hafa beðið um þjónustu Gunnlaugs fyrir tíu milljónir króna.

DV greinir jafnframt frá því að það hafi vakið athygli að Jón Daníelsson, prófessor í fjármálum við London School of Economics, hefði haft samband við Alþingi og spurt um greiðslu á reikningi bresku lögmannsstofunnar. Skýringin á því mun vera sú að fyrrum nemandi við London School of Economics sé einn af eigendum lögmannsstofunnar og að Jón hafi hitt hann á styrktarsamkomu og tekið að sér af greiðvikni við hann að rukka þingið.

Mishcon de Reya skilaði fjárlaganefnd Alþingis lögfræðiáliti um miðjan desember síðastliðinn.  Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, taldi ýmsa galla á álitinu og lenti í stuttu orðaskaki í íslenskum fjölmiðlum við eigendur stofunnar í kjölfarið. Skiptar skoðanir eru á vinnu Mishcon de Reya fyrir þingið og er talið líklegt að Alþingi krefji stofuna skýringa og frekari sundurliðunar á hinum 25 milljóna króna reikningi áður en hann verður greiddur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×