Innlent

Hnuplaði jakka og endaði á því að stela bíl

Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og verkefnin af öllum toga eins og segir í tilkynningu embættinu.

Laust eftir miðnætti stal óprúttin þjófur jakka af veitingastað. Í jakkanum voru bíllyklar að kveikjulási og hafði þjófurinn því ekki aðeins jakkann á brott heldur líka bílinn.

Um er að ræða bláa Toyota Corolla station gerð með númerinu NX 058. Eru vegfarendur hvattir til að hafa samband við lögreglu sjá þeir bílinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×