Segir Lipietz misskilja málið 11. janúar 2010 06:00 Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og varaformaður fjárlaganefndar.
Svo virðist sem ekki standi steinn yfir steini í málflutningi franska Evrópuþingmannsins Alains Lipietz, sem tjáði sig um Icesave-málið í Silfri Egils í gær. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, sem segir þann franska fara með rangt mál varðandi þrjú grundvallaratriði. Fyrir það fyrsta hafi Lipietz ekki samið tilskipunina um evrópska innstæðutryggingakerfið, eins og haldið hefur verið fram í fjölda fjölmiðla, enda hafi hann ekki tekið sæti á Evrópuþinginu fyrr en fimm árum eftir að sú tilskipun tók gildi. Þvert á móti virðist sem Lipietz sé að vísa til annarrar tilskipunar um heildarþjónustu fjármálafyrirtækja sem tók gildi árið 2002 og var innleidd hérlendis 2004. Sú tilskipun kveði á um hömlur á starfsemi fjármálafyrirtækja frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) í löndum innan EES. Sú tilskipun tengist Icesave-málinu ekki neitt og auk þess virðist sem Lipietz átti sig ekki á því að Ísland sé í EES, segir Björn Valur. Þá hafi Lipietz ítrekað vísað til þess að Icesave hafi verið dótturfyrirtæki Landsbankans, sem sé alls ekki rétt. Það hafi verið útibú, sem sé einmitt ástæða þess að íslenski innstæðutryggingasjóðurinn beri á því ábyrgð. „Í þessum þremur grundvallaratriðum virðist hann fara með rangt mál," segir Björn Valur. „Því miður fyrir hann." - sh
Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira