Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Styðja félög eins og kostur er Skapist skilyrði til að koma á formlegu ættleiðingarsambandi við Haítí mun dómsmálaráðuneytið styðja við ættleiðingarfélögin eins og kostur er, segir Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindaráðherra. 26.1.2010 02:45
Fimm nýir í boði hjá Samfylkingu Fimm nýir bjóða sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í ár. Nokkrir þeirra hafa áður komið að starfi flokksins, en ekki boðið sig fram í prófkjöri, eða setið á lista, fyrir flokkinn. Netkosning í prófkjörinu hefst í dag og lýkur henni á kjördag, laugardag. 26.1.2010 02:00
Banaslys í Norðurárdal Banaslys varð í Skagafirði í Norðurárdal nyrðri þegar maður missti stjórn á bíl sínum og hafnaði út í Norðurá. Maðurinn, sem er útlendingur, fór úr höfuðborginni í gær áleiðis norður og þegar hann hafði ekki skilað sér var hafin leit að honum. 25.1.2010 18:00
Grunaður um smygl á tugum kílóa af fíkniefnum Umfangsmikið fíkniefnamál sem nú er til rannsóknar Í Portúgal á rætur sínar að rekja til Íslands. Portúgalskur karlmaður sem búið hefur á Íslandi undanfarin ár var handtekinn í landinu í síðasta mánuði með mikið magn fíkniefna í fórum sínum . Hann var á leið til Íslands þegar hann var handtekinn. 25.1.2010 18:51
Stendur ekki til að yfirheyra Bjarna Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, hefur ekki verið yfirheyrður í tengslum við rannsókn embættis sérstaks saksóknara á málefnum Sjóvár og Milestone. Bjarni hafði milligöngu um að félagið Vafningur tæki tíu milljarða króna lán hjá Sjóvá. Lánið var aldrei greitt til baka. 25.1.2010 18:46
Varð nærri úti í Kópavogi Lögreglan rannsakar nú tildrög þess að 35 ára gömul kona varð næstum úti um helgina, en hún fannst illa haldin skammt frá heimili sínu í Kópavogi á laugardagsmorgun. 25.1.2010 18:42
Lára V. settur ríkissaksóknari í máli níumenninganna Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur falið Láru V. Júlíusdóttur hæstaréttarlögmanni að vera settur ríkissaksóknari í máli á hendur fólkinu sem ákært er fyrir að ráðast inn á Alþingi í búsáhaldabyltingunni. 25.1.2010 17:20
Enginn hefur fundist á lífi Búið er að finna 38 lík úr Boeing þotu Ethiopean Airlines sem fórst skömmu eftir flugtak í Líbanon í gærkvöldi. Líbanski herinn stjórnar leitinni undan strönd landsins. Búið er að finna bæði brak úr vélinni og lík. Enginn hefur fundist á lífi og er ekki búist við að það gerist. 25.1.2010 16:46
Vissi um fjölskyldutengslin áður en ákæra var gefin út Ríkissaksóknari, Valtýr Sigurðsson, vissi um fjölskyldutengsl sín við þingvörðinn sem lagði fram bótakröfu í máli gegn níumenningum sem ruddust inn á Alþingi, áður en ákæran var gefin út. 25.1.2010 16:43
Stjórn og stjórnarandstaða standi saman Framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins hvetur stjórn og stjórnarandstöðu til þess að standa saman um skilmála í viðræðum við stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi um skuldbindingar Tryggingasjóðs innistæðueigenda vegna Icesave-reikninga Landsbankans. 25.1.2010 16:22
Framlag ríkis til RÚV var 575 milljónum umfram innheimtar tekjur Framlag ríkissjóðs til RÚV árið 2009 var 575 milljónum króna umfram innheimtar tekjur af útvarpsgjaldi samkvæmt sameiginlegri fréttatilkynningu frá mennta- og menningamálaráðuneyti og fjármálaráðuneyti. 25.1.2010 15:59
Björn Valur: Þjóðin þarf ekki Friðrik Sophusson Björn Valur Gíslason, varaformaður fjárlaganefndar og þingmaður Vinstri grænna, er ósáttur við skipan Friðriks Sophussonar, sem stjórnarformanns Íslandsbanka. Hann vill að stjórnendur bankans endurskoði ákvörðun sína. „Þetta er ekki það sem íslenska þjóðin þarf á að halda núna," segir Björn Valur. 25.1.2010 15:54
Páll Hreinsson: Leiður yfir seinkun skýrslunnar Páll Hreinsson, formaður Rannsóknarnefndar Alþingis, sagði á blaðamannafundi í morgun að nefndin væri ákaflega leið yfir því að útgáfa skýrslunnar um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna frestist að öðru sinni. Skýrslan átti að koma út næstkomandi mánudag, 1. febrúar. 25.1.2010 15:07
Tryggvi Gunnarsson: Sár og svekktur yfir því sem hann hefur séð Formaður Rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið sagði á blaðamannafundi í morgun að til þess að geta tekist á við þann gríðarlega vanda sem endaði með bankahruni þurfi þjóðin að skilja hann. 25.1.2010 15:02
Efnavopna-Ali hengdur Írakinn Ali Hassan al-Majid, eða Efnavopna-Ali eins og hann var yfirleitt kallaður, var tekinn af lífi í dag. Hann var frændi Saddams Hussein fyrrum Íraksforseta. 25.1.2010 14:47
Á fjórða tug látnir í Bagdad Að minnsta kosti 32 eru látnir og 40 eru særðir eftir að þrjár sprengjur sprungu á sama tíma í miðborg Bagdad, höfuðborgar Íraks, fyrr í dag. Breska fréttastofan Sky hefur eftir írösku lögreglunni að um hafi verið að ræða bílsprengjur sem sprungu við þrjú hótel í miðborginni. 25.1.2010 14:01
Ríkissaksóknari: „Hreinlega yfirsást þetta og það er miður“ „Skýringin er sú að ég fór ekki með málið sjálfur heldur var það í höndum saksóknarans sem undirritaði ákæruna,“ segir Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, en hann þurfti að draga ákæru á hendur níu mótmælendum fyrir árás á Alþingi, til baka vegna fjölskyldutengsla við þingvörð sem lagði fram bótakröfu vegna málsins. 25.1.2010 13:44
Þykir fresturinn óþægilegur „Ég hef þá skoðun að svo fremi sem þessi skýrsla hafi eitthvert innihald og innlegg í rannsókn þessa máls, eins og henni er ætlað að verða, þá er mjög slæmt að það skuli dragast að henni sé skilað,“ segir Þráinn Bertelsson, þingmaður utan flokka, um þá ákvörðun rannsóknarnefndar Alþingis að fresta skýrslunni til lok febrúar. 25.1.2010 13:14
Ákæra dregin til baka - þingvörður hálfsystir eiginkonu ríkissaksóknara Ákæra á hendur níu einstaklingum sem voru ákærðir meðal annars fyrir árás á Alþingi í desember 2008 hefur verið dregin til baka þar sem í ljós kom að þingvörður, sem var brotaþoli, er hálfsystir eiginkonu ríkissaksóknara og hann því vanhæfur. 25.1.2010 12:36
Leikskólastjóri segir fullyrðingar formanns leikskólaráðs rangar Leikskólastjóri á ungbarnaleikskólanum Ársól, segir fullyrðingar formanns leikskólaráðs Reykjavíkurborgar rangar um að börn verði tekin inn á leikskólana að öllu óbreyttu fram á haust. Leikskólum sé sniðinn mjög þröngur stakkur og útlit fyrir að fá börn komist inn fyrr en í ágúst. Á annað hundrað börn bíða eftir leikskólaplássi á ungbarnaleikskólum og biðlistar hrannast upp hjá dagforeldrum. 25.1.2010 12:25
Reglusamur borgari í fullri vinnu Maður á fimmtugsaldri sem handtekinn var fyrir að hafa atað málningu á hús Hreiðars Más Sigurðssonar, forstjóra Kaupþings, er í vinnu og ekki þekktur fyrir óreglu. Maðurinn var handtekinn síðastliðið föstudagskvöld og sleppt eftir yfirheyrslur á laugardeginum, en hann er grunaður um að hafa skvett málningu á hús annarra þjóðþekktra auðmanna undanfarna mánuði. 25.1.2010 12:15
Hvergi alvarlegt tjón Þrátt fyrir mörg foktilvik, varð hvergi alvarlegt tjón og engan sakaði í suðaustanstormi, sem brast á sunnan- og suðvestan til á landinu í nótt og morgun. Enn er illviðri á Vestfjörðum. 25.1.2010 12:10
Menningarsjóður Hlaðvarpans úthlutar 14 milljónum Menningarsjóður Hlaðvarpans veitti á fundi sínum fyrir helgi 19 styrki úr sjóðnum og var alls 14 milljónum úthlutað að þessu sinni. Vel á annað hundrað umsóknir bárust en þær hafa aldrei verið fleiri. Við úthlutun er þess gætt að styrkirnir nýtist sem flestum konum og haft er í huga að sem flest svið menningar njóti stuðnings, að fram kemur í tilkynningu. 25.1.2010 11:55
Lagadeild svarar Borgarahreyfingunni Prófessor lagadeildra Háskóla Íslands, Ragnheiður Bragadóttir, hefur svarað fyrirspurn Borgarahreyfingarinnar en hún fór þess á leit við lagadeild HÍ að sérfræðingar hennar gæfu álit sitt á því hvort að ákæra skrifstofustjóra Alþingis á hendur 9 mótmælendum með tilvísun til 100 gr. almennra hegningarlaga frá 1940 væri viðeigandi. 25.1.2010 11:25
Davíð áfram dómari við Mannréttindadómstólinn Davíð Þór Björgvinsson mun gegna embætti dómara við Mannréttindadómstól Evrópu fyrir hönd Íslands til ársins 2013. Kjörtímabil hans lengist um þrjú ár eftir að Rússar fullgiltu viðauka við Mannréttindasáttmálann fyrr í mánuðinum. 25.1.2010 11:12
Hrunskýrslu aftur seinkað Útgáfu skýrslu Rannsóknarnefdar Alþingis um efnahagshrunið hefur verið frestað en til stóð að nefndin myndi skila skýrslunni 1. febrúar. Þetta kom fram á blaðamannafundi nefndarinnar í Alþingishúsinu sem hófst klukkan 11. Skýrslan kemur þess huganlega út í lok febrúar. 25.1.2010 11:00
Hrafnista endurbætt fyrir 300 milljónir Ráðist verður í endurbætur á Hrafnistu í Reykjavík fyrir um 300 milljónir króna en samkvæmt tilkynningu verða endurbæturnar fjármagnaðar með ágóða af Happdrætti DAS og með framlagi úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Elsti hluti hússins er frá árinu 1957 en gagngerar endurbætur á húsnæðinu hófust árið 2007. 25.1.2010 10:59
Þjóðin kjósi um breytingar á kvótakerfinu Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að til greina komi að leggja breytingar á kvótakerfinu í dóm þjóðarinnar í sérstakri þjóðaratkvæðagreiðslu. Ekki sé gott að bullandi ágreiningur sé meðal þjóðarinnar um sjávarútvegskerfið. 25.1.2010 10:57
Aung San sleppt eftir kosningar í Burma Ráðherra í Burma hefur sagt að Aung San Suu Kyi leiðtoga stjórnarandstöðunnar verði sleppt úr stofufangelsi í nóvember næstkomandi. 25.1.2010 10:38
Engin slasaðist í tveimur veltum Lögreglan á Selfossi þurfti að sinna útkalli vegna tveggja bílveltna sem urðu með klukkustundar bili síðastliðið föstudagskvöld. Fyrra óhappið varð á Biskupstungnavegi við Þrastarlund þar sem jepplingur með fimm manns innanborðs valt. 25.1.2010 10:32
Unglingar stöðvaðir á óskráðum torfæruhjólum Lögreglan á Selfossi hafði afskipti af tveimur unglingspiltum í síðustu viku en þeir voru á óskráðum torfæruhjólum í Hveragerði. Akstur þeirra var talinn ógætilegur og hættulegur að auki voru bæði hjólin ótryggð. 25.1.2010 10:24
Rannsóknarnefnd Alþingis tilkynnir um útgáfu og skil á hrunskýrslu Rannsóknarnefnd Alþingis boðar til fréttamannafundar í Alþingishúsinu klukkan 11 í dag en þar verður tilkynnt um útgáfu og skil á skýrslu nefndarinnar um efnahagshrunið. 25.1.2010 10:09
Árni fann loðnutorfu austur af Langanesi Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson, sem nú er djúpt austur af Langanesi, fann þar loðnutorfu í gær og eru skipverjar enn að mæla hana. Sjómenn, útvegsmenn og aðrir, sem hafa hagsmuna að gæta af loðnuveiðum, bíða nú átekta eftir niðurstöðum mælinganna, því hingað til hefur ekki mælst nóg til að hægt verði að gefa út veiðikvóta. 25.1.2010 10:08
Var Da Vinci sjálfur Mona Lisa? Vísindamenn og sagnfræðingar í ítölsku Þjóðminjanefndinni hafa farið framá að fá að opna grafhýsi Leonardos Da Vinci til að komast að því hvort málverkið af Monu Lisu sé sjálfsmynd listamannsins. 25.1.2010 10:05
Kosið verði um álversstækkun í vor Samtökin Sól í Straumi vilja ekki að kosið verði um stækkun álversins í Straumsvík samhliða fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave en vilja þess í stað að kosningin fari fram sama dag og bæjarstjórnarkosningarnar í vor. 25.1.2010 09:30
Aðalmeðferð hafin í mansalsmáli Aðalmeðferð er hafin í dómsmáli gegn sex mönnum sem hafa verið ákærðir fyrir að ætla að selja nítján ára Litháenska stúlku í kynlífsþrældóm. Dómshaldið er lokað almenningi en það hófst í morgun. 25.1.2010 09:15
Köld eru kvenna ráð Þegar Charles Philips ákvað að snúa sér eingöngu að konu sinni eftir átta ára framhjáhald með YaVaughnie Wilkins hefndi hún sín rækilega. 25.1.2010 08:32
Chavez lokar sjónvarpsstöð Húgó Chavez forseti Venesúela hefur látið loka sjónvarpsstöð sem hefur verið gagnrýnin á stjórn hans. 25.1.2010 08:28
Kínverjar afneita Google hakki Google hótaði hinn tólfta þessa mánaðar að hætta allri starfsemi í Kína og loka þar skrifstofum sínum eftir að einhverjir hökkuðu sig inn í rafpóst mannréttindasamtaka bæði kínverskra og erlendra. 25.1.2010 08:20
Vilja kaupa frið af talibönum Utanríkisráðherra Þýskalands vill að Vesturveldin kaupi Talibana frá uppreisnariðju sinni. Bandaríkin eru sögð styðja þá hugmynd. 25.1.2010 08:16
Norðmenn neita hlutverki sáttasemjara fyrir Ísland en... Norðmenn neita því að vera í sáttasemjarahlutverki fyrir Íslendinga í Icesave málinu. Þetta kemur fram í frétt á Reuters í morgun. Haft er eftir talskonu norska utanríkisráðuneytisins að Noregur..."hafi engu hlutiverki að gegna sem sáttasemjari fyrir Ísland í augnablikinu," eins og hún orðar það. 25.1.2010 07:50
Hrapaði eftir fimm mínútna flug Veður var vont þegar Boeing þota Ethiopian Airlines tók á loft frá flugvellinum í Beirut, þrumur og eldingar og úrhellis rigning. Aðeins fimm mínútum síðar rofnaði samband við vélina og hún hvarf af ratsjá. 25.1.2010 06:44
Vilja ættleiða börn frá Haítí til Íslands Ætli alþjóðasamfélagið að bregðast við hörmungum á Haítí með því að ættleiða munaðarlaus börn úr landi bíða yfir 130 fjölskyldur og einstæðar konur þess hér á landi að geta ættleitt börn, segir Hörður Svavarsson, formaður Íslenskar ættleiðingar. 25.1.2010 06:00
Tími samninga að renna út Náist ekki samkomulag við Breta og Hollendinga um að taka upp viðræður vegna Icesave í vikunni gengur það tækifæri mönnum úr greipum. Það er mat þeirra stjórnmálamanna sem Fréttablaðið ræddi við. Fari svo, verði haldið óhikað í þjóðaratkvæðagreiðslu, en undirbúningur hennar hefur haldið áfram samhliða viðræðum við Breta og Hollendinga. 25.1.2010 06:00
Halda stórfé sem var innheimt í leyfisleysi Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar var ranglega látið greiða tæpar 83 milljónir króna í skipulagsgjald vegna bygginga sinna á varnarsvæðinu en fær aðeins rúmar 4 milljónir endurgreiddar vegna þess að kærufrestur var að mestu liðinn. 25.1.2010 06:00