Innlent

Menningarsjóður Hlaðvarpans úthlutar 14 milljónum

Drífa Snædal er formaður stjórnar menningarsjóðs Hlaðvarpans.
Drífa Snædal er formaður stjórnar menningarsjóðs Hlaðvarpans.
Menningarsjóður Hlaðvarpans veitti á fundi sínum fyrir helgi 19 styrki úr sjóðnum og var alls 14 milljónum úthlutað að þessu sinni. Vel á annað hundrað umsóknir bárust en þær hafa aldrei verið fleiri. Við úthlutun er þess gætt að styrkirnir nýtist sem flestum konum og haft er í huga að sem flest svið menningar njóti stuðnings, að fram kemur í tilkynningu.

Þar segir að árið 1985 hafi hópur kvenna fest kaup á húsum við Vesturgötu 3 í Reykjavík. Húsin hafi verið í nokkurri niðurníðslu. Hópurinn ákvað var að stofna hlutafélag kvenna sem keypti húsin og gekk undir nafninu Hlaðvarpinn.

Hægt er að sjá töfluna í stærri upplausn með því að smella á myndina.
„Smátt og smátt voru húsin gerð upp og þar blómstraði ýmis konar menningarstarfsemi um árabil. Þar var rekið leikhús, bæði í kjallara og sal, haldinn fjöldi tónleika og funda. Herbergi voru leigð út til félaga og fræðikvenna og þannig mætti áfram telja. Viðgerðir og rekstur voru félaginu þung í skauti og skuldir söfnuðust upp. Þar kom að ákveðið var að hætta rekstrinum og selja húsin. Í samþykktum Hlaðvarpans var kveðið á um að yrði félagið lagt niður skyldi andvirði húsanna varið til að styrkja menningarstarfsemi kvenna," segir í tilkynningunni.

Í framhaldinu var ákveðið að stofna menningarsjóð kvenna og var nú úthlutað úr sjóðnum þriðja árið í röð. „Fjölgun umsókna milli ára sýnir glöggt hve frjó og fjölbreytt menningarstarfsemi kvenna er á Íslandi og að í erfiðu árferði skortir ekki á frumkvæði kvenna."

Stjórn menningarsjóðs Hlaðvarpans skipa:

Drífa Snædal, formaður

Kristín Ástgeirsdóttir, varaformaður

Guðrún Erla Geirsdóttir, gjaldkeri

Ragnhildur Richter, ritari

Þóra Tómasdóttir, meðstjórnandi

Brynhildur G. Flóvenz, varamaður

Hrefna Haraldsdóttir, varamaður






Fleiri fréttir

Sjá meira


×