Innlent

Árni fann loðnutorfu austur af Langanesi

Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson, sem nú er djúpt austur af Langanesi, fann þar loðnutorfu í gær og eru skipverjar enn að mæla hana. Sjómenn, útvegsmenn og aðrir, sem hafa hagsmuna að gæta af loðnuveiðum, bíða nú átekta eftir niðurstöðum mælinganna, því hingað til hefur ekki mælst nóg til að hægt verði að gefa út veiðikvóta.

Loðnuskipið Súlan, sem leitar loðnu norður af landinu, mun hinsvegar ekki hafa fundið neitt umtalsvert enn sem komið er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×