Halda stórfé sem var innheimt í leyfisleysi 25. janúar 2010 06:00 Kjartan Eiríksson Framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ætlar að reyna til þrautar að endurheimta 78 milljónir króna sem voru lagðar ólöglega á félagið. Fréttablaðið/GVA
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar var ranglega látið greiða tæpar 83 milljónir króna í skipulagsgjald vegna bygginga sinna á varnarsvæðinu en fær aðeins rúmar 4 milljónir endurgreiddar vegna þess að kærufrestur var að mestu liðinn. „Þarna er um að ræða gjaldtöku sem ekki er heimild fyrir. Við munum ræða við þessa aðila um að fá þetta til baka,“ segir Kjartan Eiríksson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Keflavíkurflugvelli. Þróunarfélagið, sem er í eigu ríkisins, yfirtók á annað hundrað byggingar á Keflavíkurflugvelli eftir brotthvarf Bandaríkjahers frá Íslandi. Með því að margar þessara bygginga voru síðan seldar eða leigðar út voru þær skráðar hjá Fasteignaskrá ríkisins. Í framhaldinu lagði Skipulagsstofnun skipulagsgjaldið á og sýslumaður innheimti það. Þessari álagningu var vísað til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála í október síðastliðnum. Úrskurðarnefndin tók undir með Þróunarfélaginu að ekki hafi verið heimilt að leggja gjaldið á þar sem það eigi að innheimta af nýreistum mannvirkjum. Byggingarnar sem um ræðir voru allar reistar fyrir árið 2000 og margar löngu fyrr. „Verður og að líta til þess að um er að ræða eldri fasteignir á svæði sem löngu hafði verið byggt upp og skipulagt á kostnað framkvæmdaaðila er álagning skipulagsgjaldsins fór fram,“ segir nefndin. Það kemur hins vegar Þróunarfélaginu í koll að kærufrestur vegna langflestra bygginganna var liðinn áður en kæra félagsins var sett fram. Þess vegna ógildir nefndin aðeins 4,2 milljóna króna álagningu af 82,7 milljónum sem voru innheimtar í skipulagsgjald. Þróunarfélagið virðist þannig sitja uppi með að hafa greitt 78,4 milljónir í ólöglegt gjald. Kjartan segir þó að vegna þess hvernig í pottinn hafi verið búið muni félagið freista þessa að fá þetta leiðrétt. „Við sendum inn athugasemd til Skipulagstofnunar í október 2008. Eins og úrskurðarnefndin bendir á þá var okkur ekki leiðbeint þá með það í hvaða ferli málið hefði átt að fara. Ef svo hefði verið hefðum við náttúrlega náð stærsta hlutanum af þessu til baka í gegn um kæru,“ segir Kjartan. „En við munum bara ræða við þá um þetta og heyra tóninn í þeim. Auðvitað er ríkið báðum megin í þessu máli en þetta lýtur að því að hver haldi utan um sitt.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira