Fleiri fréttir

Úttekt ýfir upp deilu um strandveiðarnar

Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra hefur gott sem tekið af allan vafa um að strandveiðar eru komnar til að vera. Niðurstöður úttektar Háskólaseturs Vestfjarða (HV) á framgangi og áhrifum veiðanna túlkar ráðherra sem svo að reynsla af veiðunum sé góð. Smábátasjómenn hvetja til þess að veiðarnar verði festar í sessi á meðan útgerðir innan LÍÚ finna þeim allt til foráttu.

Einn maður býr í Skeifunni

Einn maður er með lögheimili í Skeifunni, meðan jafn stórt svæði hinum megin Miklubrautar hýsir þrettán hundruð manns, að mestu í einbýlishúsum. Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi bendir á þetta. Skeifan sé gott dæmi um tækifæri til að þétta byggð í borginni.

Veikleiki listans er skortur á endurnýjun

Niðurstaða prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík skilar lista sem lítur ágætlega út, með óumdeildan leiðtoga. Veikleiki listans er helst skortur á endurnýjun, segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.

Fékk viðurkenningu FKA

Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentors, hlaut í gær viðurkenningu Félags kvenna í atvinnurekstri (FKA) fyrir árið 2010. Viðurkenningin var afhent í Perlunni fyrir helgi.

Dæmi um að foreldrar selji lyf frá börnum sínum

Dæmi eru um að foreldrar hafi selt rítalín og fleiri lyf frá börnum sínum í ábataskyni. Aðstoðarlandlæknir veit til þess að söluturn í Reykjavík selji lyfseðilsskyld lyf undir borðið og undrast að lögregla láti sig þetta ekki varða.

Afborganir vegna Icesave litlu meiri en lán til Kaupþings

Afborganir og vextir af erlendum lánum opinberra aðila næstu fjórtán árin eru um 2.260 milljarðar króna. Þar af eru afborganir vegna Icesave um 289 milljarðar, sem er öllu minni upphæð en Seðlabankinn lánaði Kaupþingi meira og minna án veða áður en Seðlabankinn fór á hausinn.

Íslensk börn verða illa úti í kreppunni

Íslenskir sérfræðingar á sviði lýðheilsu telja merki um aukin fjölskylduvandræði eftir fjármálahrunið árið 2008 sem skildi fjölda foreldra eftir í fjárhagsvanda. Fjallað er um málið á vef breska blaðsins Guardian í dag.

Íslensk kona stjórnar hjálparstarfi á Haiti

Íslensk kona, Hlín Baldvinsdóttir, gegnir lykilhlutverki á vegum Alþjóða Rauða krossins á Haiti við að skipuleggja flóttamannabúðir fyrir yfir tvöhundruð þúsund manns sem misstu heimili sín í jarðskjálftanum. Hún segir margra ára hjálparstarf framundan.

Segir erindi Borgarahreyfingarinnar „ævintýralega heimskulegt“

Erindi Borgarahreyfingarinnar til lagadeildar Háskóla Íslands er svo ævintýralega heimskulegt að ósofinn leikskólakrakki með hor í nös og króníska eyrnabólgu hefði ekki getað ropað málinu út úr sér í sandkassanum. Þetta segir Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður.

Segir nýtt vaktakerfi til bóta

Nýtt vaktafyrirkomulag hjá almennum læknum á Landspítalanum verður til bóta fyrir sjúklinga og læknanna sjálfa. Þetta segir Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á spítalanum. Formaður félags almennra lækna segir hins vegar að flestir læknar séu mjög uggandi vegna breytinganna.

Gagnrýnir þátt fjölmiðla í mótmælunum

Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn gagnrýnir frásagnir fjölmiðla af mótmælum á Austurvelli og segir að það sé eins og þeir hafi verið að ýta undir eitthvað. „Ég þurfti að skamma fjölmiðlamann,“ sagði Geir Jón. Hann sagði þó að sumir fjölmiðlamenn hefðu verið ábyrgir.

Árásum á Bandaríkin hótað

Frekari árásum á Bandaríkin er hótað í myndskeiði ef stjórnvöld þar halda áfram að styðja Ísraelsríki. Myndskeiðið er sagt vera frá Osama Bin Laden.

Vitjuðu rústa Montana hótelsins á Haítí

Ættingjar Bandaríkjamanna sem fórust í jarðskjálftanum á Haítí vitjuðu rústa Montana hótelsins í Port-au Prince höfðuðborg landsins í gær, þar sem talið er að fólkið hvíli enn undir rústum hótelsins.

Guðmundur B Guðmundsson efstur á Akureyri

Guðmundur Baldvin Guðmundsson hlaut 66% gildra atkvæða í fyrsta sæti í prófkjöri Framsóknarmanna á Akureyri. Petrea Ósk Sigurðardóttir varð í öðru sæti. Alls greiddu 1.106 einstaklingar atkvæði í prófkjörinu sem var opið öllum þeim sem kosningarétt hafa í sveitarfélaginu í

Danir finna fyrir agavandamálum

Næstum hvern einasta dag koma upp vandamál vegna hávaða í skólastofum. Þetta sýna niðurstöður sem gerðar voru á meðal danskra nemenda. Niðurstöðurnar sýna einnig að þetta hafi skaðleg áhrif á nám barnanna.

Jórunn Frímannsdóttir: Þetta eru klárlega vonbrigði

„Þetta eru klárlega vonbrigði,“ segir Jórunn Frímannsdóttir borgarfulltrúi sem er í áttunda sæti lista sjálfstæðismanna fyrir næstu borgarstjórnarkosningar, ef marka má stöðuna eins og hún er núna.

Rætt við fleiri en eina ríkisstjórn um að miðla málum

Ríkisstjórnin hefur átt í viðræðum við fleiri en eina ríkisstjórn varðandi milligöngu í að fá Breta og Hollendinga aftur að samningaborðinu um Icesave. Líklegast er að útlendur sáttasemjari komi frá Noregi, verði að nýjum viðræðum.

Áslaug María komin upp fyrir Jórunni

Áslaug M. Friðriksdóttir hefur náð sjöunda sæti af Jórunni Frímannsdóttur þegar talin hafa verið 4797 atkvæði af um það bil 7200 í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar.

Júlíus Vífill: Of snemmt að fagna

„Ég er afskaplega þakklátur fyrir þann stuðning sem fram kemur í þessum fyrstu tölum. Maður vill náttúrlega ekki byrja að fagna neinum niðurstöðum fyrr en þær liggja endanlega fyrir,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson sem er í öðru sæti á lista sjálfstæðismanna eftir að búið er að telja um helming atkvæða.

Hanna Birna efst - Júlíus Vífill annar

Hanna Birna Kristjánsdóttir er efst í prófkjöri sjálfstæðismanna eftir að fyrstu tölur hafa verið lesnar. Júlíus Vífill Ingvarsson er í öðru sæti, en fast á hæla honum fylgir Kjartan Magnússon.

Land Cruiser jeppi Árna Johnsen fór fimm veltur

Árni Johnsen var fluttur á spítala í gær eftir að Land Cruiser bifreið hans fór fimm veltur við Litlu kaffistofuna í gær. Árni segist hafa sloppið óbrotinn úr óhappinu en lemstraður.

Á þriðja hundrað mótmælti á Austurvelli

Á þriðja hundrað manns mættu á kröfu og mótmælafund sem var haldinn á Austurvelli í dag. Jóhannes Björn Lúðvíksson höfundur bókarinnar Falið vald hélt ræðu.

Yfir 3000 manns hafa kosið

Rúmlega 3000 manns höfðu kosið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um tvöleytið í dag, samkvæmt upplýsingum frá Sigurbirni Magnússyni, formanni kjörstjórnar.

Urgur í læknum

Mikill urgur er í fjölda lækna eftir að stjórn Landspítalans ákvað að breyta vaktarfyrirkomulagi þar. Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir, formaður Félags almennra lækna, segir breytinguna geta orðið til þess að vinnan aukist um allt að tuttugu prósent viku.

Fundu yfirgefið barn í kapellu

Sjö mánaða gamalt barn fannst yfirgefið í kapellu á Írlandi seinnipartinn í gær. Talið er að barnið sé frá Nottinghamskíri en hvarf barnsins uppgötvaðist á fimmtudag.

Á þriðja hundrað útskrifast úr HR

Alls verða 235 nemendur brautskráðir frá Háskólanum í Reykjavík í dag. Einn verður útskrifaður með doktorsgráðu, 59 með meistaragráðu, 134 með bakkalárgráðu og 41 með diplómagráðu. Flestir útskriftarnemanna eru úr viðskiptadeild eða 91. Þá munu 56 nemendur útskrifast með próf úr tækni- og verkfræðideild, 33 nemendur útskrifast úr kennslufræði- og lýðheilsudeild, 32 úr lagadeild og 23 frá tölvunarfræðideild.

Bretar óttast hryðjuverk

Bretar hafa fært viðbúnaðarstig sitt vegna hryðjuverkaógnar í „alvarlegt ástand" vegna ótta um að al-Qaeda hryðjuverkasamtökin séu að skipuleggja árásarhrinu í Bretlandi eftir að hafa reynt að sprengja upp farþegaþotu á leið til Detroit í Bandaríkjunum um jólin.

Stjörnunar öfluðu fjár fyrir Haítí

Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna óttast um þau þúsundir barna sem urðu munaðarlaus í jarðskjálftanum á Haítí og ráfa jafnvel um án nokkurar umönnunar fullorðins fólks. Unnið er að því að reyna að sameina sem flest þeirra einhverjum ættingjum eða koma þeim í öruggt skjól. Talsmenn Barnahjálparinnar óttast að börnin verði misnotðuð eða þeim rænt.

Tvær bílveltur nærri Selfossi

Tvær bílveltur urðu í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í gærkvöld. Í öðru tilfellinu var ökumaður einn í bílnum en í hinu tilfellinu voru fimm í bifreiðinni. Enginn slasaðist í þessum bílveltum en bílarnir eru taldir ónýtir.

Bílvelta á Sandgerðisvegi

Bílvelta varð á Sandgerðisvegi um hálfsjöleytið í gærkvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum er ekki vitað hve alvarlega fólkið sem var í bifreiðinni slasaðist. Þá hafði lögreglan á Suðurnesjum í nógu að snúast vegna helgarölvunar.

Ráðist að leigubílstjóra

Farþegar veittust að leigubifreiðastjóra í Hamraborg Kópavogi í gær. Eftir að þeir slógu til hans yfirgaf hann bifreiðina og kallaði eftir aðstoð. Þegar lögregla kom á vettvang voru farþegarnir á bak og burt.

Sjálfstæðismenn velja framboðslista í dag

Átján manns eru í framboði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor sem fer fram í dag. Kosning hófst nú klukkan tíu og stendur fram til klukkan sex.

Hjúkrunarfræðingi dæmdar milljónir

Landspítalinn hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur til þess að greiða hjúkrunarfræðingi, sem starfaði þar, tæpar þrjár milljónir króna vegna tekjumissis.

Alþingi ákvað ekki ákæruna

Skrifstofustjóri Alþingis kærði ekki sérstaklega eftir 100. grein hegningarlaga, sem fjallar um það, þegar ráðist er á Alþingi.

Óttast synjun nýrra samninga um Icesave

Hollendingar og Bretar vilja tryggja að verði samningar um Icesave teknir upp að nýju verði niðurstaða þeirra endanleg, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þeir leggja áherslu á að stjórnmálaflokkar hérlendis verði samstiga um að virða niðurstöðu slíkra samninga, verði af þeim. Ekki komi til greina að ferlið endurtaki sig; undirrituðum samningum verði breytt eftir langar umræður á Alþingi.

Sjá næstu 50 fréttir