Ármann býður sig fram gegn Gunnari 14. janúar 2010 11:35 Ármann hefur setið í bæjarstjórn Kópavogs undanfarin þrjú kjörtímabil og á þeim tíma gegnt formennsku í skipulagsnefnd, skólanefnd og nú í félagsmálaráði. Hann var jafnframt þingmaður á árunum 2007 til 2009.
Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs og fyrrverandi þingmaður, hefur ákveðið að gefa kost sér í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi sem haldið verður 20. febrúar. Áður hefur Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri, lýst yfir framboði í leiðtogasætið. „Mikilvægt er að sjálfstæðismenn setji saman sigurstranglegan lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor skipaðan einstaklingum sem hafa til að bera reynslu og ríka samstarfshæfileika, en að jafnframt fari fram nauðsynleg endurnýjun," segir Ármann í tilkynningu. Hann segir Kópavogsbæ hafa vaxið og dafnað á undanförnum árum og verið í fararbroddi íslenskra sveitarfélaga. Nú ríði á að verja þann árangur sem náðst hafi og standa um leið vörð um grunnþjónustu bæjarins. „Einnig þarf að breyta vinnubrögðum í bæjarstjórn og mun ég leggja áherslu á aukna samvinnu allra flokka með það að markmiði að vinna bæjarfélagið út úr þeim áföllum sem bankahrunið hefur valdið. Ég mun einnig beita mér fyrir skýrari reglum um opna og gegnsæja stjórnsýslu, og eflingu beins lýðræðis með aukinni aðkomu bæjarbúa að einstökum málum með rafrænum kosningum og rafrænum skoðanakönnunum," segir Ármann. Ármann hefur setið í bæjarstjórn Kópavogs undanfarin þrjú kjörtímabil og á þeim tíma gegnt formennsku í skipulagsnefnd, skólanefnd og nú í félagsmálaráði. „Þá sit ég í bæjarráði og gegni embætti forseta bæjarstjórnar. Auk starfa fyrir Kópavog hef ég verið þingmaður kjördæmisins og unnið sem aðstoðarmaður ráðherra í þremur fagráðuneytum."
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Sjá meira