Innlent

Rústabjörgunarsveitin fær litla hvíld

Fyrsta verk rústabjörgunarsveitarinnar var að afferma Icelandair flugvélina á flugvellinum í höfuðborginni Port au Prince.
Fyrsta verk rústabjörgunarsveitarinnar var að afferma Icelandair flugvélina á flugvellinum í höfuðborginni Port au Prince.
Íslenska björgunarsveitin sem send var til Haítí fær litla hvíld en björgunarstarf hefst innan skamms. Liðsmenn sveitarinnar gátu lagst til hvílu á milli klukkan sex og sjö í morgun en til stóð að þeir myndu hefja undirbúning fyrir björgunarstörf klukkan rúmlega 10. Þetta segir Dagbjartur Brynjarsson, einn af stjórnendum sveitarinnar, sem staddur er í höfuðstöðvum Slysavarnafélagsins Landsbjargar hér á landi. Mikilvægt sé að nýta dagsbirtuna vel en fimm klukkustunda tímamismunur er á milli Haítí og Íslands.

Fyrsta verk rústabjörgunarsveitarinnar var að afferma Icelandair flugvélina á flugvellinum í höfuðborginni Port au Prince. Dagbjartur segir að því næst hafi Íslendingarnir aðstoðað við að koma upp móttöku Sameinuðu þjóðanna sem ætlað er að auðvelda öðrum hjálparsveitum að komast inn í landið. Að því loknu fóru liðsmenn sveitarinnar í leiðangur um borgina til að kanna aðstæður en auk þess var ætlunin að koma upp búðum og samhæfingarmiðstöð á íþróttavelli í höfuðborginni.  Dagbjartur segir að aðstæður þar hafi aftur á móti verið óviðunnandi og því hafi íslenska sveitin farið aftur á flugvöllinn þar sem búðum og samhæfingarmiðstöð fyrir alla þá aðila sem koma að björgunarstarfi í landinu á næstu dögum var komið upp.

Dagbjartur segir mikilvægt að björgunarsveitarmenn nái að nýta dagsbirtuna vel og því hefji íslenska sveitin störf snemma. Í nótt gengu áætlanir út á að Íslendingarnir myndu fara að rústum hótels í suðurhluta borgarinnar. Þar er margra saknað, meðal annars hátt í 60 starfsmanna Sameinuðu þjóðanna. Dagbjartur veit ekki til þess að þær áætlanir hafi breyst en það muni skýrast fljótlega.

Flugvélin sem flutti sveitina út til Haítí hélt áleiðis heim um klukkan eitt í nótt og lenti í Nassau á Bahamaeyjum á þriðja tímanum. Dagbjartur segir að hátt í 80 manns hafi verið um borð í vélinni, þar á meðal Norðurlandabúar og bandarískir kristniboðar. Óvíst sé hversu margir verði eftir þar sem góðar samgöngur séu á milli Nassau og Bandaríkjanna. Dagbjartur telur allt eins líklegt að Norðurlandabúarnir komi með flugvélinni til Íslands eftir að áhöfnin hefur hvílt sig.


Tengdar fréttir

Bíður milli vonar og ótta eftir fréttum

Elda Þórisson Faurelien talaði í síma við frænda sinn í Port-au-Prince klukkustund áður en jarðskjálftinn reið yfir í fyrrakvöld. Síðan hefur hún ekki heyrt af afdrifum hans, annars skyldfólks – þar á meðal bróður og fjölskyldu hans – né vina í borginni. Sama á við um starfsfólk og nemendur barnaskóla sem Elda stofnaði ásamt fleirum fyrir nokkrum árum. Látlausar tilraunir hennar í gær til að fá fréttir af sínu fólki báru ekki árangur.

„Þar sem einu sinni var fínt hótel…“

„Hann lét strax vita. Áður en við vissum af skjálftanum hringdi hann í konuna sína í Bandaríkjunum,“ sagði Alfa Ragnarsdóttir, móðir Halldórs Elíasar Guðmundssonar, sem var á Haítí þegar stóri skjálftinn reið yfir.

Íslenska björgunarsveitin hefst handa

Íslenska björgunarsveitin, sem send var til Haíti, er nú búin að koma sér upp búðum við alþjóðaflugvöllinn, eftir að hafa kannað ýmsa staði til þess inni í borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×