Innlent

Íslendingarnir komu til Haítí í gærkvöldi

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Björgunarsveitarliðar Ferðbúast Hér sést rústabjörgunarsveit Landsbjargar búast til farar til Haítí eldsnemma í gærmorgun. Sveitin hélt af stað um klukkan ellefu, en kvöldið áður riðu öflugir jarðskjálftar fyrir í nágrenni Port-au-Prince.
Björgunarsveitarliðar Ferðbúast Hér sést rústabjörgunarsveit Landsbjargar búast til farar til Haítí eldsnemma í gærmorgun. Sveitin hélt af stað um klukkan ellefu, en kvöldið áður riðu öflugir jarðskjálftar fyrir í nágrenni Port-au-Prince. Fréttablaðið/Valli
Íslenska rústabjörgunarsveitin kom til hjálparstarfa á Haítí um klukkan níu í gærkvöld að íslenskum tíma eftir tíu tíma ferðalag frá Íslandi. Millilent var í Boston í Bandaríkjunum til eldsneytistöku.

Íslenska sveitin var með fyrstu alþjóðlegu hjálparsveitum sem komu til Haítí, tæpum sólarhring eftir jarðskjálftana í nágrenni höfuðborgarinnar Port-au-Prince. Sveitin hefur meðferðis um þrjú tonn af vatni, tjaldbúðir fyrir sveitina, fullkominn fjarskiptabúnað og vatnshreinsibúnað. „Hægt er að halda sveitinni úti án utanaðkomandi aðstoðar í allt að sjö daga,“ segir í tilkynningu Landsbjargar.

Samkvæmt upplýsingum utanríkisráðuneytisins síðdegis í gær var þá óljóst hvort flugvöllurinn í Port-au-Prince yrði opinn þegar Íslendingarnar kæmu. Ef völlurinn hefði lokaðist var gert ráð fyrir að lenda í Dóminíska lýðveldinu sem er í um 400 til 500 kílómetra fjarlægð frá skjálftasvæðinu.

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tók í fyrrinótt ákvörðun um að senda sveitina af stað og heimsótti hana í björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð þar sem ferðin var undirbúin.

„Utanríkisþjónustan hefur verið í sambandi við stjórnvöld Haítís sem hafa þakkað fyrir stuðninginn og skjót viðbrögð frá Íslandi. Eins hefur ráðuneytið verið í sambandi við fólk sem þekkir til staðhátta á Haítí. Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins kannar nú hvort Íslendingar séu á svæðinu og reynir að ná sambandi við þá,“ sagði í tilkynningu ráðuneytisins.

Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, fór með utan með rústabjörgunarsveitinni. Hann sagði ráð fyrir því gert að eftir lendingu gengi sveitin frá búnaði sínum og undirbyggi aðgerðir. Björgunarstörf yrðu hafin strax morguninn eftir.

Í íslensku björgunarsveitinni eru 35 menn. Með í för út eru einnig fulltrúar utanríkisráðuneytisins. Flogið var út í þotu Icelandair sem var til reiðu á Keflavíkurflugvelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×