Innlent

Bílalánin fjötra fólk sem flytur úr landi

Fjöldi bíla hefur verið fluttur úr landi eftir að bílalánafyrirtæki hafa tekið þá yfir vegna vanskila. Fólk sem flytur úr landi hefur lent í erfiðleikum skuldi það mikið af bílunum sínum. fréttablaðið/vilhelm
Fjöldi bíla hefur verið fluttur úr landi eftir að bílalánafyrirtæki hafa tekið þá yfir vegna vanskila. Fólk sem flytur úr landi hefur lent í erfiðleikum skuldi það mikið af bílunum sínum. fréttablaðið/vilhelm
Fólk sem flyst úr landi getur ekki tekið bílinn með sér hvíli á honum lán. Talsmaður neytenda talar um átthagafjötra. Viðkomandi þurfa annaðhvort að rifta samningi, með tilheyrandi afföllum, eða borga af bíl hérlendis sem þau geta ekki notað.

Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segist reglulega fá ábendingar vegna þessa. Bílalánafyrirtæki hafi stundum synjað sölu með tilheyrandi erfiðleikum. „Þau hafa þá bæði viljað halda kökunni og borða hana,“ segir Gísli.

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir þetta töluvert vandamál. Bíllinn sé fastur hér, enda skráður á lánafyrirtækin, og oft geti verið um töluverðar fjárhæðir að ræða. „Fólk þarf þá að sæta afarkostum á riftun samnings eða hafa bílinn hér og borga af honum.“

Gísli og Runólfur eru sammála um að ekki sé nægilega komið til móts við fólk vegna bílalána. Gísli segir mikilvægt að leysa úr ágreiningi um lögmæti gengislána. Skjótari úrlausnir þurfi en héraðsdóm og best sé að skipa stjórnskipaðan og lögþvingaðan eða samningsbundinn gerðardóm.

„Ráðherra segir fólki hins vegar ítrekað að fara í héraðsdóm. Það er sérkennilegt að sömu stjórnvöld og vilja ekki beina Bretum og Hollendingum í héraðsdóm vísi einstaklingum þangað. Í báðum tilvikum er um réttarágreining að ræða. Hér eru þúsundir mála sem eru, ef ekki samkynja, þá keimlík og væri hægt að leysa úr hratt og örugglega með gerðardómi.“

Runólfur segir ófært að oftar en ekki hverfi eignarmyndun út í veður og vind. Hann nefnir nýlegt dæmi þar sem eigandi sat uppi með skuld en engan bíl.

„Bíllinn var verðmetinn á 1.800 þúsund, en lánið stóð í 3 milljónum. Keyrt var á bílinn á bílastæði og hann gjöreyðilagður. Eftir standa 1.200 þúsund krónur í eftirstöðvar, en enginn bíll.“

Töluverð viðskipti voru í haust með notaða bíla, að sögn Runólfs, en frost sé á innflutningi nýrra bíla. Nú sé svo komið að nýlega notaða bíla skorti.

kolbeinn@frettabladid.is
gísli tryggvason



Fleiri fréttir

Sjá meira


×