Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sendi Svandísi hvatningarbréf Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, hefur sent Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra hvatningarbréf á loftslagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn. Þar er áréttað hversu brýnt ASÍ telji það vera að ná samkomulagi um loftslagsbreytingar fyrir árslok 2009. Í bréfinu eru stjórnvöld hvött til að styðja tillögur Alþjóðasambands verkalýðsfélaga í tengslum við loftslagsráðstefnuna. 17.12.2009 04:15
Meðalferðatími styst um þrjár til fjórar mínútur Meðalferðatími á háannatíma í Reykjavík hefur styst um þrjár til fjórar mínútur fyrir hvern bíl á milli ára. Þetta er niðurstaða nýrra umferðartalninga umhverfis- og samgönguráðs borgarinnar, sem fram fóru í nóvember. 17.12.2009 04:15
Færði boðskap fólksins í salinn Hugo Chavez, forseti Venesúela, hélt ræðu, líkt og fjölmargir þjóðarleiðtogar, í gær. Chavez var ánægður með mótmælendur fyrir utan ráðstefnuhöllina og nýtti ræðutíma sinn að hluta til að koma boðskap þeirra á framfæri. Það voru fyrst og fremst tvö slagorð sem heilluðu forsetann: „Breytið kerfinu, ekki loftslaginu!" og „Ef loftslagið væri banki væri búið að bjarga því." Chavez sagði þetta orð að sönnu. Hann sagði vofu á ferð í Kaupmannahöfn, vofu sem enginn þyrði að nefna en væri alltumlykjandi. Þetta væri vofa kapítalismans sem sósíalisminn einn gæti bjargað. 17.12.2009 04:00
Vill fjölga héraðsdómurum Dómsmálaráðherra, Ragna Árnadóttir, hefur lagt til að heimilt verði að fjölga héraðsdómurum tímabundið. 17.12.2009 04:00
Kennarar vilja ekki sjá leið sveitarfélaga Samband íslenskra sveitarfélaga hefur lagt fram tillögur sem gera myndu sveitarfélögunum kleift að svara hagræðingarkröfu innan grunnskólanna á næstu tveimur skólaárum. Sú leið sem er talin líklegust til árangurs felur í sér skerðingu á kennslu sem nemur þremur til fimm stundum á viku að hámarki. 17.12.2009 03:45
Nýtt hlutafélag leigi ríkinu nýja Landspítalann Alþingi heimilaði í gær undirbúning útboðs vegna leigu ríkisins á nýjum Landspítala við Hringbraut. Einnig veitti þingið ríkinu heimild til að stofna hlutafélag um byggingu nýja spítalans og til að veita félaginu lóðarréttindi við Hringbraut. 17.12.2009 03:30
Telja Árborg stefna í tæknilegt þrot Fulltrúar minnihluta Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Árborgar sögðu sig frá samstarfi við meirihlutann um gerð fjárhagsáætlunar næsta árs og greiddu atkvæði gegn áætluninni þegar hún var samþykkt í gærkvöldi. 17.12.2009 03:00
Efla og styrkja samstarfið Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, og Snorri Olsen tollstjóri undirrituðu í gær samstarfssamning milli Tollstjóraembættisins og Landhelgisgæslu Íslands. Tilgangur samningsins er að efla og styrkja samstarf stofnananna á ýmsum sviðum. 17.12.2009 03:00
Fjárhagsaðstoðin aukin um tíu þúsund krónur Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur uppfært grunnfjárhæðir vegna fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga í samræmi við hækkun á neysluverðsvísitölu með sama hætti og gert var í desember 2007 og desember 2008. Miðað við gengi vísitölu neysluverðs í nóvember 2009 nemur grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til einstaklings 125.540 krónum og hækkar úr 115.567 krónum eða um 8,63 prósent. Aðrar grunnfjárhæðir hækka um sama hlutfall. 17.12.2009 03:00
Kemur í veg fyrir hindranir Samkeppniseftirlitið beinir því til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í nýju áliti að hún beiti sér fyrir því að stjórnvöldum verði gert skylt að framkvæma staðlað samkeppnismat við undirbúning lagasetningar og stjórnvaldsfyrirmæla. 17.12.2009 02:30
Ábending Ríkisendurskoðunar hunsuð Ríkisendurskoðun telur að ríkisstjórnin hefði þurft að afla sér lagaheimildar fyrir því að semja við kröfuhafa um yfirtöku þeirra á Arion banka og Íslandsbanka. Slíka heimild skorti. 17.12.2009 02:00
Þykir hafa tryggt aðkomu kvenna Svandís Svavarsdóttir, tók í gær við viðurkenningu fyrir Íslands hönd frá regnhlífarsamtökum kvenna, Women and Gender Constituency.Verðlaunin voru veitt Íslandi og Gana fyrir að tryggja aðkomu kvenna að úrbótum í loftslagsmálum. Svandís hélt í gær erindi á málstofu um konur sem afl til breytinga. 17.12.2009 02:00
Niðurskurður fiskveiðikvóta Evrópusambandið minnkaði veiðikvóta fyrir þorsk og bannaði alveg veiðar á nokkrum tegundum hákarla, en heimilaði hins vegar meiri veiðar á ansjósu. Sjávarútvegsráðherrar Evrópusambandsríkjanna tóku ákvarðanir um þetta í gær, þegar kvótar fyrir næsta ár voru afgreiddir. 17.12.2009 02:00
Tók hass, hvítt efni og peninga Lögreglan á Akureyri fann 120 grömm af hassi og smáræði af hvítum efnum í íbúð í Glerárhverfi í fyrrakvöld. Lögregla lagði að auki hald á peninga sem talið er líklegt að séu ágóði af fíkniefnasölu. Ein kannabisplanta var í ræktun í íbúðinni. 17.12.2009 02:00
Eykur enn á spennuna Íranar gerðu í gær tilraun með endurbætta gerð langdrægs flugskeytis, sem hægt væri að skjóta á Ísrael og hluta Evrópu. 17.12.2009 02:00
Hækka um allt að fimmtung Allt tilbúið fiskafóður hjá Fóðurblöndunni hækkar um tíu til tuttugu prósent, samkvæmt tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér í gær. Hækkunin, sem er mismikil eftir tegundum, tekur gildi í dag, miðvikudaginn 16. desember. 17.12.2009 01:30
Nýir mannbroddar í pakkann Neytendasamtökin hafa á vef sínum, ns.is, tekið saman nokkrar jólagjafir sem þau mæla með. 17.12.2009 01:00
Alþingi samþykkir opna heimild sparisjóðir. Alþingi samþykkti í gær að veita ríkisstjórninni opna heimild til að kaupa og selja hluti í innlendum sparisjóðum í tengslum við endurskipulagningu sparisjóðakerfisins. 17.12.2009 01:00
KPMG styrkir Geðhjálp KPMG á Íslandi og Geðhjálp hafa undirritað styrktarsamning um að KPMG gerist aðalstyrktaraðili Geðhjálpar næstu tvö árin. Styrkur KPMG nemur samtals þrem milljónum króna og vill félagið með því stuðla að eflingu geðheilbrigðis og gera Geðhjálp kleift að auka aðstoð við þá er kljást við geðræn vandamál. Geðhjálp gætir hagsmuna þeirra sem þurfa eða hafa þurft aðstoð vegna geðrænna vandamála, aðstandenda þeirra og annarra sem láta sig geðheilbrigðismál varða.- shá 17.12.2009 00:45
Fólksfækkunin vítahringur í Skaftárhreppi Kreppan fyrir sunnan hefur ekki enn megnað að stöðva fólksflóttann úr sveitunum, ferðaþjónustan er að mestu aðeins sumarvinna og fjölbreyttari störf vantar. Fréttastofa Stöðvar 2 heldur áfram að fjalla um ískyggilega byggðaþróun í Skaftafellssýslum. 16.12.2009 18:45
Ávíttur stjórnarmaður VR ætlar að halda aðra ræðu á kröfufundi Stjórnarmaður VR og fyrrverandi varaformaður félagsins, Bjarki Steingrímsson, hefur verið boðið að halda ræðu á kröfufundi sem haldin verður á Austurvelli næstu helgi - og hefur þegið það boð samkvæmt tilkynningu sem hann hefur sent frá sér. 16.12.2009 17:45
Lóðaúthlutanir hafa raskað samkeppni Samkeppniseftirlitið beinir því til stjórnvalda að huga að samkeppnisjónarmiðum í tengslum við skipulagsmál og úthlutun lóða. Á heimasíðu þeirra segir að dæmi eru um að skipulagsákvarðanir og lóðaúthlutanir hafi raskað samkeppni og það sé nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að sporna við því. 16.12.2009 17:27
Tveggja og hálfsárs fangelsi fyrir smygl á eiturlyfjum Tveir Pólverjar voru í dag dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi hvor um sig, fyrir að smygla tæplega sex þúsund töflum sem innihalda metamphetamín og PCP til landsins. Töflurnar voru faldar í niðursuðudósum en mennirnir voru að koma með flugi frá Póllandi þegar þeir voru gripnir. Annar þeirra sagðist hafa verið neyddur til þess að smygla dósunum en hinn sagðist hafa keypt þær á markaði í Varsjá og að hann hafi staðið í þeirri trú að í þeim væri aðeins kjötbúðingur. 16.12.2009 16:24
Minna heimilissorp eftir hrun Óflokkað heimilissorp í Reykjavík dróst saman um 14% fyrstu níu mánuði ársins 2009 í samanburði við árið 2008. Þá hefur magn í grenndargáma og bláu tunnuna fyrir pappír dregist saman um helming á tveimur árum. Þetta kemur fram í frétt á vef umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar. 16.12.2009 16:24
ASÍ harmar áformuð svik ríkisstjórnarinnar Miðstjórn Alþýðusambands Íslands mótmælir harðlega þeim vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar að virða ekki gerða samninga. Í ályktun miðstjórnar segir að samkvæmt stjórnarfrumvarpi um breytingar tekjuskattskerfinu þá áformi stjórnvöld að afnema verðtryggingu persónuafsláttar sem ASÍ samdi um við þáverandi ríkisstjórn í tengslum við endurskoðun kjarasamninga 2006. 16.12.2009 16:17
Vonir dofna um árangur í Kaupmannahöfn -kylfur á lofti Eins og undanfarið einkenndist dagurinn í dag af slagsmálum í Kaupmannahöfn, bæði utan dyra og innan. Danska lögreglan barði mann og annan og handtók hátt á þriðja hundrað manns. 16.12.2009 16:16
Ítreka beiðni um Icesave skjöl Þingmenn Hreyfingarinnar ítreka fyrri beiðni þeirra um að trúnaði verði aflétt af skjölum vegna Icesave málsins og fara auk þess fram á málefnaleg rök verði færð fyrir leyndinni. 16.12.2009 16:11
Ætlar að sitja áfram í stjórn VR Bjarki Steingrímsson hefur látið af störfum sem varaformaður VR eftir að stjórn félagsins samþykkti tillögu um vantraust á fundi sínum fyrr í dag. Þrátt fyrir það ætlar hann að sitja áfram í stjórn VR. 16.12.2009 16:00
Meindýraeyðir olli misskilningi - fólkinu sleppt Manninum sem handtekinn var fyrr í dag í Bústaðahverfi hefur verið sleppt. Svo virðist sem um miskilning hafi verið að ræða en maðurinn og sambýliskona hans voru handtekinn. 16.12.2009 15:07
Óvæntir morgunverðargestir í Hvíta húsinu Fullorðnum hjónum sem fóru dagavillt í heimsókn í Hvíta húsið í Washington var óvænt boðið í morgunmat með forsetahjónunum. 16.12.2009 15:01
Leit að manninum hætt Leit hefur verið hætt að manni sem saknað er eftir að bátur hans fékk á sig brot og hvolfdi við Skrúð í Fáskrúðsfirði í morgun. Leitað hefur verið á svæðinu þar sem báturinn fórst. Björgunarsveitir af Austurlandi, nærstaddir bátar og þyrla Landhelgisgæslunnar hafa tekið þátt í leitinni auk kafara. 16.12.2009 15:01
Landsbankamaður kveðst vera saklaus Haukur Þór Haraldsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Landsbankans, segist vera saklaus af ákærum um fjárdátt. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Haukur gerir launakröfu upp á 148 milljónir í þrotabú bankans. 16.12.2009 15:00
Með hálft kíló af kókaíni í endaþarminum Rúmenskur karlmaður var tekinn með rúmt hálft kíló af kókaíni við komuna til landsins um helgina. Maðurinn sem talar ungversku var að koma hingað til lands frá Kaupmannahöfn en hann var með efnin innvortis.Þau munu hafa skilað sér tiltölulega hratt niður. 16.12.2009 14:46
Vinningshafar í Lottóinu hafa gefið sig fram Annar þeirra sem var með allar tölur réttar í Lottóinu um síðustu helgi og fékk rúmar 30 milljónir í sinn hlut, hefur gefið sig fram hjá Íslenskri getspá. Um er að ræða hjón með tvö börn og voru þau í sumarbústað á Flúðum, þar sem miðinn góði var keyptur. 16.12.2009 14:44
Ögmundur vill kjósa strax um Icesave Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, segir að það sé staðreynd að flestir, ef ekki allir, þingmenn hafi komist að niðurstöðu í Icesave málinu. Hann vill því kjósa strax um málið því frekari tafir á Alþingi þjóni engum sýnilegum tilgangi. 16.12.2009 14:29
Vinur Jakobs Frímanns fær miklar skaðabætur Barry Georg sem var sakaður um að myrða bresku sjónvarpsþuluna Jill Dando hefur samið um umtalsverðar skaðabætur vegna skrifa breskra slúðurblaða um málið. 16.12.2009 14:15
Stjórn VR lýsir vantrausti á eigin varaformann Stjórn VR samþykkti tillögu um vantraust á Bjarka Steingrímsson sem varaformann stjórnar félagsins á fundi í hádeginu í dag. Ástæðurnar eru trúnaðarbrestur og samstarfsörðugleikar. Ásta Rut Jónasdóttir var kjörin nýr varaformaður á fundinum. 16.12.2009 14:03
Reyndi að komast á sjúkrastofu Berlusconis Tuttugu og sex ára gamall maður var í dag handtekinn þegar hann reyndi að komast inn á sjúkrastofu Silvios Berluscionis, forsætisráðherra Ítalíu. 16.12.2009 13:57
Leitin hefur ekki borið árangur Leit að manni sem er saknað eftir að bát hvolfdi í Fáskrúðsfirði í morgun hefur ekki borið árangur. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu taka sjö björgunarskip og sjö kafarar þátt í leitinni auk þyrlu Landhelgisgæslunnar. 16.12.2009 13:37
Viðbúnaður í Bústaðahverfi: Húsleit framkvæmd Húsleit stendur nú yfir hjá manninum sem handtekinn var fyrr í dag, grunaður um að hafa verið vopnaður. Maðurinn og sambýliskona hans voru handtekinn og hefur hún verið flutt á brott en maðurinn, áður hefur komið við sögu lögreglu, er enn í húsinu á meðan húsleitin er framkvæmd. 16.12.2009 13:20
Kristján Þór: Bankarnir seldir án heimildar Ríkisendurskoðun telur að stjórnvöld séu að láta hlut sinn í Arion banka og Íslandsbanka af hendi án heimildar. Fulltrúi Sjálfstæðisflokks í fjárlaganefnd segir furðulegt að Vinstri grænir standi fyrir þessum vinnubrögðum, í ljósi gagnrýni þeirra á einkavæðingu bankanna á sínum tíma. 16.12.2009 13:19
Viðbúnaður á Bústaðavegi: Par handtekið Lögreglan hefur handtekið tvo einstaklinga í heimahúsi við Byggðarenda í Bústaðahverfi. Tilkynnt var um vopnaðan mann og fór sérsveit lögreglunnar á staðinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu liggur ekki fyrir hvort fólkið, sem er par hafi í raun verið vopnað. Maðurinn veitti nokkra mótspyrnu við handtökuna að sögn lögreglu. Parið, sem býr í húsinu hefur komið við sögu lögreglu áður. Í tilkynningu frá lögreglu segir að lögreglumenn sem voru að vakta húsið eftir að tilkynningin um vopnaðan mann barst hafi talið sig heyra skothvell og því hafi verið ákveðið að handtaka manninn. 16.12.2009 12:01
Manns saknað eftir að bát hvolfdi Manns er saknað eftir að bátur strandaði í Fáskrúðsfirði í morgun. Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Austurlandi voru kallaðar út og Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti kafara á Höfn í Hornafirði. Leit stendur yfir á svæðinu. 16.12.2009 11:31
Blóðugir bardagar í Kaupmannahöfn Danska lögreglan hefur í morgun beitt táragasi og kylfum til þess að koma í veg fyrir að mótmælahópar réðust inn í Bella Center þar sem Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna fer fram. Fjöldi mannna hefur verið handtekinn. 16.12.2009 11:31
Ráðherra óheimilt að framlengja úthlutun byggðakvóta Sjávarútvegsráðherra var óheimilt að framlengja úthlutunartímabil byggðakvóta fiskveiðiársins 2006-2007 til 31. desember 2007 - og þar með inn á nýtt fiskveiðiár - með útgáfu sérstakrar reglugerðar. Ákvörðunin átti sér ekki lagastoð og var því brot á lögmætisreglunni. Þetta kemur fram í nýlegu áliti umboðsmanns Alþingis. 16.12.2009 11:30