Íslenskir bændur eru heilsuhraustastir allra Karen Kjartansdóttir skrifar 4. nóvember 2009 12:24 Frá fundi Bændasamtaka Íslands í desember sl. Mynd/GVA
Bændur eru heilbrigðastir Íslendinga andlega og líkamlega samkvæmt tveimur rannsóknum sem birtast í nýjasta hefti Læknablaðsins. Starf bænda hefur lengst af verið í námum tengslum við heimili þeirra og fjölskyldu. Í vestrænum heimi hefur starf þeirra þó breyst mikið á síðustu áratugum og jafnvel er talað um byltingu í starfsgreininni. Sprottið hafa upp kenningar um að bændum sé hættar við ýmsum geðsjúkdómum en öðrum í samfélaginu og hafa rannsóknir frá Noregi og Bandaríkjunum rennt stoðum undir þær. Á Íslandi virðist þessu öfugt farið, hér eru bændur hvað sáttastir allra þegna við vinnu sína. Rannsóknir leiddu til dæmis í ljós að kvenkyns bændur voru ánægðari með störf sín í samanburðarhópi. Bændur reyktu líka mun minna en fólk á mölinni og drukku minna áfengi. Þá kom í ljós að bændum þótti vinnan frekar vera krefjandi en samanburðarhópnum en á jákvæðan hátt. Önnur rannsókn sem einnig birtist í Læknablaðinu sýnir svo að bændum er mun minni hætta búin á því að fá krabbamein en öðru fólki. Sú stóð yfir í allt að 45 ár á Norðurlöndunum og leiddi hún í ljós að lífshættir, menntun og aðrar aðstæður vinnandi fólks hafa afgerandi áhrif á krabbameinstíðni. Bændur og garðyrkjumenn reyndust í minnstri hættu. Í mestri hættu var starfsfólk veitingahúsa. Í greininni kemur fram að þeir sem unnu að rannsókninni fyrir hönd Íslands segja áfengisneyslu og reykingar eru afgerandi áhættuþættir en mataræði kom þar næst á eftir. Nú sé tími til að snúa við blaðinu og hefja áróður fyrir heilsusamlegra mataræði þjóðarinnar í stað skyndibitamenningarinnar. Ef árangur næst spari það þjóðarbúinu ómælda peninga og fjöldi fólks bæti góðum árum við líf sitt.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira