Innlent

Auðveldar ríkjum að segja sig úr ESB

Heimir Már Pétursson skrifar
Vacalv Klaus, forseti Tékklands, staðfesti sáttmálann með undirritun sinni í gær.
Vacalv Klaus, forseti Tékklands, staðfesti sáttmálann með undirritun sinni í gær. Mynd/AP
Auðveldara verður fyrir ríki að segja sig úr Evrópusambandinu eftir að Lissbon-sáttmálinn tekur gildi, en síðustu hindrun í vegi gildistökunnar var rutt burt í gær þegar Tékkar staðfestu sáttmálann. Ný embætti forseta framkvæmdastjórnarinnar og utanríkisstjóra verða til með sáttmálanum.

Ný stjórnarskrá fyrir Evrópusambandið hefur verið í mótun í mörg ár en innan sambandsins takast á þau öfl sem vilja styrkja stofnanir sambandsins með skýrari hlutverkum annars vegar og hins vegar þau öfl sem vilja draga úr valdi stofnana þess.

Eftir að Vacalv Klaus, forseti Tékklands, staðfesti sáttmálann með undirritun sinni í gær, hafa öll ríki Evrópusambandsins staðfest sáttmálann. Talið er að hann geti jafnvel tekið gildi í næsta mánuði. Klaus forseti sagði eftir undirritunina að með henni væri Tékkland ekki lengur fullvalda ríki, en hann er í hópi mestu efasemdarmanna um hlutverk og áhrif sambandsins.

Það sem andstæðingar sáttmálans setja helst fyrir sig eru hin nýju embætti forseta framkvæmdastjórnarinnar og utanríkisstjórans. Forsetinn verður kosinn til tveggja og hálfs árs í senn, en í dag hafa forsætisráðherrar eða forsetar aðildarríkjanna verið oddvitar sambandsins þegar ríki þeirra fara með formennsku í sex mánuði í senn.

Þá er mörgum í nöp við að fleiri mál verða nú afgreidd með einföldum atkvæðagreiðslum innan sambandsins en áður. En nú þarf stuðning allra ríkja í flestum málaflokkum til að mál nái fram að ganga. Þetta telja margir skerðingu á fullveldi einstakra aðildarríkja, sem áður gátu stoppað mál. En fyrir ríki sem ekki una hag sínum innan sambandsins, verður auðveldara að segja sig úr sambandinu með gildistöku Lissabonsáttmálans. Þá er líklegt að samþykkt hans muni flýta fyrir viðræðum sambandsins við Ísland og Króatía verður væntanlega meðlimur á allra næstu misserum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×