Birkir Jón: Svik Samfylkingarinnar Magnús Már Guðmundsson skrifar 4. nóvember 2009 14:57 Mynd/GVA
Samfylkingin hefur ekki fylgt eftir kosningaloforðum sínum og svikið fjölda fólks á landsbyggðinni. Þetta kom fram í máli Birkis Jóns Jónssonar, varaformanns Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag í umræðum um störf án staðsetningar. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði að það væri eindreginn vilji stjórnvalda að sem flest störf standi fólki til boða, ekki síst á landsbyggðinni. Birkir Jón fullyrti að verið væri að fækka mikilvægum störfum á landsbyggðinni. Hann sagði Samfylkinguna ekki hafa fylgt eftir kosningaloforðum sínum frá 2007 og 2009 um 1200 ný störf án staðsetningar. „Þetta er til skammar. Samfylkingin hefur svikið fjöldan allan af fólki vítt og breitt um landið. Skyldi það verða svo að við næstu kosningar að Samfylkingin muni halda áfram að beita sér fyrir störfum án staðsetningar." Jóhanna sagði ekki rétt ekki hafi verið gert neitt að undanförnu. Ljóst væri að hægt væri að vinna ýmis störf óháð staðsetningu svo framarlega sem góð fjárskipti væru fyrir hendi. „Forsætisráðuneytið mun í samræmi við það leggja áherslu á það við önnur að ávallt verði vakin athygli á því í auglýsingum þegar slíkt á við og að um sé að ræða verkefni sem hægt er að vinna hvers sem er á landinu." Þá sagði forsætisráðherra að menn verði að horfa á heildarmyndina og benti á að kreppan kæmi mun verr niður á suðvesturhorninu. Fleiri þingmenn tóku þátt í umræðunni. Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, fagnaði henni og sagði umræðuna brýna. Hann sagði á ferð sinni um Norðausturkjördæmi nýverið hafi hann skynjað ótta fólks að opinberum störfum muni á næstunni fækka á landsbyggðinni en ekki á höfuðborgarsvæðinu. „Mér finnst mjög mikilvægt að hafa eitt að leiðarljósi í þessu efni. Það er þjóðhagslega hagkvæmt að hafa störf úti á landi. Það hefur verið skoðað og niðurstaðan er afgerandi," sagði þingmaðurinn. Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði núverandi ríkisstjórn hafa tekið upp nýja stefnu um störf með staðsetningu í stað starfa án staðsetningar. Hann sagði ríkisstjórnina veikja stofnanir á landsbyggðinni til hægt væri að flytja verkefni þeirra til Reykjavíkur. Birgir Ármannsson, flokksbróður Einars, gagnrýndi Jóhönnu. Niðurstaðan væri engin. „Þetta er því miður það sem einkennir hennar ágæta flokk Samfylkinguna. Það eru fögur fyrirheit og mikil loforð."
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira