Fleiri fréttir

Rannsóknir á þefskyni þorsks

Útibú Hafrannsóknastofnunarinnar á Ísafirði rannsakar um þessar mundir leiðir til að fanga þorsk í gildrur á hagkvæman hátt. Verkefnið hlaut styrk til þriggja ára frá AVS rannsóknasjóði og er samvinnuverkefni útibúsins, Hraðfrystihússins Gunnvarar hf., LÍÚ og Háskólans á Akureyri.

Hústökur skoðaðar í dómsmálaráðuneyti

Í dómsmálaráðuneytinu er verið að kanna hvernig lög um hústökur eru í nágrannalöndunum, segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra. Enn hefur lítið sem ekkert fundist sem gefur tilefni til að endurskoða íslensk lög, en nokkuð hefur borið á hústökum síðan í bankahruninu.

Neita að greiða 94 milljónir

„Við erum mjög, mjög, mjög ósátt við þetta,“ segir Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri Akraness, um innheimtubréf frá Landsbankanum vegna gjaldeyrisláns sem sveitarfélagið tók hjá bankanum.

Hafa heimild til útborgunar

„Það er skilningur minn að slitastjórnin hafi fulla heimild til að greiða út laun," segir Gylfi Magnússon. Um 100 starfsmenn SPRON fengu ekki greidd laun 1. júlí. Taldi slitastjórn að ekki væri hægt að greiða út laun þar sem fyrirtækið hefði aldrei farið í greiðslustöðvun.

Skipa saksóknara í stað Valtýs

Skipaður verður sérstakur ríkissaksóknari sem taka mun við öllum störfum ríkissaksóknara sem tengjast á einhvern hátt bankahruninu, verði frumvarp dómsmálaráðherra sem rætt var á Alþingi í gær að lögum.

Bandaríkjaher færir sig inn í þorpin

Bandarískir hermenn færðu sig inn í bæi í Suður-Afganistan í gær, á öðrum degi mikillar sóknar gegn uppreisnarmönnum. Lítillar mótstöðu hefur gætt frá yfirvöldum í bæjunum eða talíbönum, sem eru mjög sterkir á þessum slóðum.

Fær 29 milljónir í skaðabætur

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Mylluna ehf. til að greiða fyrrverandi starfsmanni tæpar 29 milljónir króna vegna vinnuslyss sem hann varð fyrir árið 2005.

Skuttogari vísaði á ný eldfjöll

Leirkeilur eða eðjueldfjöll hafa líklega fundist í fyrsta skipti hér við land í nýafstöðnum kortlagningarleiðangri rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar. Fundur þessa náttúrufyrirbæris byggir á athyglisgáfu skipstjórans á frystitogaranum Þerney RE-101.

Beltin hefðu bjargað lífi 36

Á tíu ára tímabili, frá 1999 til 2008, hefði mátt forða 36 banaslysum í umferðinni hefðu þeir sem létust notað öryggisbelti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umferðarstofu.

Bruni í Lundúnum: Sex látnir

Þrjú börn og þrír fullorðnir eru látnir eftir að eldur kom upp í tólf hæða fjölbýlishúsi í Camberwell í suður-Lundúnum. Meðal hinna látnu eru þriggja vikna gamalt barn, sjö ára gamalt barn og ein kona.

BSRB búið að semja við ríkið

Undirritað hefur verið samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðildarfélaga BSRB við ríkið. Gildistími er til 30. nóvember 2010. Í samkomulaginu felast leiðréttingar á lægstu launum eins og gert var ráð fyrir í stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar frá 25. júní. Persónu- og orlofsuppbót hækka. Þá er í samningnum sérstakt ákvæði um Starfsendurhæfingarsjóð.Í bókunum er m.a. að finna nýtt ákvæði um aðkomu aðildarfélaga BSRB að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.

Reyna aftur eftir helgi

Fulltrúar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Eflingar hafa gert hlé á samningaviðræðum fram yfir helgi.

Tvö börn létust í stórbruna í Lundúnum

Tvö börn eru látin eftir að eldur kom upp í háhýsi í Camberwell sem staðsett er í suð-austur Lundúnum. Tíu manns eru særðir eftir eldinn sem kom upp í tólf hæða húsi við Havil stræti.

Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna heimsótti Suu Kyi

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kom til Mjanmar, áður Búrma, í dag. (LUM) Hann ætlar í heimsókn sinni að þrýsta mjög á um það við herstjórn landsins að hún láti stjórnarndstöðuleiðtogann Aung San Suu Kyi lausa úr fangelsi.

Segja ómögulegt að stöðva útbreiðslu svínaflensu

Framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar segir ómögulegt að stöðva útbreiðslu svínaflensunnar um allan heim. Bretar spá því að hundrað þúsund ný tilfelli greinist á degi hverjum frá lokum sumars.

Lést í flugslysinu í Vopnafirði

Einn helsti forystumaður íslenskra flugmála á síðari árum, Hafþór Hafsteinsson, lést í flugslysinu í Vopnafirði í gær þegar lítil einshreyfilsvél rakst á rafmagnsstreng og brotlenti. Félagi Hafþórs liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi en þeir voru báðir reyndir atvinnuflugmenn.

Iðgjöld á bíla hækkað óeðlilega

Iðgjöld á bíla hafa hækkað óeðlilega undanfarin ár og bótastjóðir tryggingafélaganna hafa verið misnotaðir í gegnum árin segir framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Rökin fyrir hækkun gjaldanna á sínum tíma hafi aldrei staðist.

Kóngulær og slöngur fundust í húsleit lögreglu

Það var heldur óvenjuleg sjón sem blasti við lögreglumönnum þegar þeir komu í íbúð í fjölbýlishúsi á höfuðborgarsvæðinu á dögunum. Innandyra voru fimm snákar, fjórar köngulær, kakkalakki og ýmis önnur skordýr sem við kunnum ekki að nefna.

Hannes tapaði áfrýjuninni

Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð héraðsdóms Reykjavíkur frá 23. júní vegna húsleitar að heimili Hannesar Smárasonar.

Græn orka gæti bjargað Íslandi

„Menn eru farnir að borga aukalega fyrir grænt rafmagn. Það er skortur á grænni orku austan og vestanhafs þannig að það er mikill möguleiki fyrir okkur Íslendinga að nýta auðlindir okkar til útflutnings,“ segir Friðrik Hansen Guðmundsson, verkfræðingur, í viðtali við Vísi en hann telur að ríkið geti haft umtalsverðar tekjur af sölu á rafmagni í samstarfi við einkaaðila í gegnum sæstreng.

Vinnuskólinn fékk umhverfismerkið Grænfánann

Vinnuskóli Reykjavíkur hlaut í dag umhverfismerkið Grænfánann sem er alþjóðlegt verkefni sem ætlað er að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Grænfáninn var dreginn að húni á Miklatúni fyrr í dag og af því tilefni sagði Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, að ekki þurfi að kvíða framtíðinni fyrst hinir ungu starfsmenn vinnuskólans ætli að starfa í anda sjálfbærrar þróunar og gæta þess að öll skref verði græn.

Rændi tölvubanka fyrir sjúkrareikningum sonarins

Ebank bankinn í íslenska tölvuleiknum EVE Online hefur vakið mikla athygli á heimsvísu síðastliðinn mánuð. Ástæðan er sú að spilarinn Ricdic, sem var hátt settur í bankanum, stakk af með innistæður annarra leikmanna og seldi þær á svörtum markaði fyrir alvöru peninga. Grein um málið birtist meðal annars í vefútgáfu New York Times og víðar.

Polo á ofsahraða

Í gær var ökumaður mældur á ferð sinni á Mýrdalssandi, á lítillri VW Polo bifreið, á 162 km hraða. Hann var sviptur ökuleyfi til 2ja mánaða og hlaut háa fjársekt.

Icesave-frumvarpinu vísað til fjárlaganefndar

Stjórnarliðar og þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna hafa tekist á um frumvarp fjármálaráðherra um ríkisábyrgð vegna Icesave-samkomulagsins á Alþingi í dag. Að lokinni umræðu var frumvarpinu vísað til meðferðar í fjárlaganefnd en nefndin kemur saman síðar í dag til að ræða frumvarpið.

Óviðunandi að hægagangur tefji nauðsynlegar framkvæmdir

Bæjarráð Akraness beinir þeirri eindregnu áskorun til ríkisstjórnar Íslands, samgönguráðherra og þingmanna Norð- vesturkjördæmis að fylgja eftir án tafar tillögum og hugmyndum um tvöföldun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi og tvöföldun Hvalfjarðarganga. Ráðið telur óviðunandi að hægagangur á undirbúningi tefji nauðsynlegar framkvæmdir.

Allt kapp lagt á að uppræta svik á vinnumarkaði

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafa ákveðið að auka verulega samstarf Ríkisskattstjóra og Vinnumálastofnunar til þess að sporna gegn svikum á atvinnuleysisbótum og svokallaðri svartri vinnu sem ætla má að fram fari í einhverjum mæli sem stendur, að fram kemur í tilkynningu. Þar segir að allt kapp verði lagt á uppræta slíka starfsemi.

Tók hlé frá Icesave til að spila í Austurstræti

„Ég gekk bara beint úr ræðustól og út í Austurstræti," segir þingmaðurinn Árni Johnsen, en það brá eflaust mörgum gestum miðbæjarins í brún þegar þeir sáu Árna munda gítarinn fyrir framan verslun 10-11 í gærkvöld.

Ánægður með niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins

Hermann Jónasson, forstjóri Tals, er afar ánægður með þá ákvörðun Samkeppniseftirlitsins að sekta fjarskiptafyrirtækið Teymi, eiganda Vodafone, um 70 milljónir króna fyrir brot á samkeppnislögum sem áttu sér stað á árinu 2008. Fyrirtækinu er jafnframt gert að selja eignarhlut sinn Tali.

Pétur Blöndal: Las Jóhanna samninginn?

Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði stjórnarþingmenn hvort þeir hefðu yfir höfuð lesið Icesave samninginn áður en þeir gáfu ríkisstjórninni heimild til að undirrita hann. Þá efaðist hann um að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefði lesið hann.

Parísarklúbburinn skárri en AGS?

„Ég veit ekki betur en að skilmálar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gagnvart okkur séu mjög áþekkir því ef við hefðum farið í Parísarklúbbinn, nema hvað, við þurfum að greiða allt upp í topp," sagði Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, í umræðum um ríkisábyrgð á Icesave samningunum.

Eygló: Steingrímur skýlir sig á bak við samkeppnislög

Þingmaður Framsóknarflokksins telur að fjármálaráðherra skýli sér á bak við samkeppnislög þegar hann neiti að upplýsa um verðmat á verðtryggðum og gengistryggðum lánum nýju bankanna. „Fjármálaráðherra virðist telja að þetta séu upplýsingar sem komi almenning ekki við.“

Friðrik Sophusson hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, hefur ákveðið að láta af störfum í haust. Hann hefur gegnt starfinu í rúm 10 ár. Friðrik var endurrráðinn síðastliðið haust, en þá hafði hann ákveðið að segja starfi sínu lausu.

Fólk hvatt til að leggja tímanlega af stað

Búast má við mikilli umferð um landið í dag þegar ein mesta ferðahelgi sumarsins gengur í garð. Umferðarstofa hvetur fólk til að leggja fyrr af stað hafi það kost á því.

Fékk 29 milljónir fyrir höfuðhögg

Myllan ehf. var í dag dæmd til að greiða fyrrum starfsmanni sínum tæpar 29 milljónir með vöxtum vegna vinnuslyss sem hann varð fyrir í október 2005. Fyrirtækið var á slysdeginum að vinna við lagningu háspennuvírs við Reyðarfjörð þegar planki sem stóð út úr einu vírkeflinu slóst harkalega í höfuð mannsins með þeim afleiðingum að hann rotaðist. Þriðjung tjónsins bar maðurinn sjálfur, því hann bar ekki öryggishjálm við verkið.

Bretar æfir Írönum

Bretar eru æfir Írönum vegna áforma þeirra um að rétta yfir starfsmönnum í breska sendiráðinu í Teheran. Þeir voru handteknir um síðustu helgi og sakaðir um aðild að mótmælum vegna forsetakosninganna í Íran í síðasta mánuði.

Þungt haldinn í öndunarvél

Maðurinn sem slasaðist í flugslysinu í Vopnafirði í gær er þungt haldinn á gjörgæslu. Vakthafandi læknir á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi segir að manninum sé haldið sofandi í öndunarvél. Einn maður lést í slysinu en Rannsóknarnefnd flugslysa rannsakar nú málið.

Skúli Helga: Skýr vilji til að draga úr launakostnaði

„Menn hafa í sjálfu sér ekki sest niður og brugðist við þessum tíðindum," segir Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar. Í vikunni kom fram að meira en 400 ríkisstarfsmenn eru með hærri laun en forsætisráðherra, það er 935.000 krónur á mánuði. Þar af eru 340 heilbrigðisstarfsmenn.

Orkan ódýrust

Vísir kannaði algengasta bensínverð í sjálfsafgreiðslu hjá öllum helstu olíufélögum landsins, enda ein stærsta ferðahelgi landsins framundan og margir sem þurfa að fylla á tankinn.

Þrjár þingnefndir fjalla um Icesave

Formaður fjárlaganefndar vonar að fyrstu umræðu um frumvarp fjármálaráðherra um ríkisábyrgð vegna Icesave-samkomulagsins ljúki síðar í dag og að nefndin fái frumvarpið í kjölfarið til umfjöllunar. Hann segir að fjárlaganefnd muni hafa yfirumsjón með vinnunni en ákveðnir hlutar frumvarpsins fari inn í utanríkismálanefnd og efnahags- og skattanefnd.

Þingmenn ræða Icesave áfram

Þingmenn ræddu frumvarp Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, um ríkisábyrgð vegna Icesave-samkomulagsins langt fram á kvöld í gær og var þingfundi slitið klukkan rúmlega hálf ellefu. Fjárlaganefnd fær frumvarpið væntanlega til umfjöllunar síðar í dag að loknum umræðum í þingsal.

Minningarathöfn um Jackson á þriðjudag

Aðgangur að minningarathöfn um Michael Jackson, sem haldin verður í Staples Center í Los Angeles á þriðjudaginn, verður takmarkaður við 11.000 manns og þurfa þeir, sem hyggjast reyna að næla sér í miða, að skrá sig sérstaklega fyrir fram.

Hádegisverðurinn er aldrei ókeypis

Ítölsk yfirvöld hafa látið loka sögufrægum veitingastað í Róm eftir að japönsk hjón voru rukkuð um tæpar 700 evrur fyrir hádegisverð.

Ómönnuð flugvél felldi tíu talibana

Ómönnuð árásarflugvél Bandaríkjahers skaut þremur flugskeytum að hópi talibana í Suður-Waziristan í Pakistan í morgun og drap tíu þeirra en særði sjö.

Sjá næstu 50 fréttir