Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjögurra ára fangelsi fyrir líkamsárás sem leiddi til dauða Karlmaður sem ákærður var fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða var sakfelldur og dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. Annar karlmaður og tvær konur voru ákærð fyrir brot gegn lífi og líkama með því að hafa látið fyrir farast að koma hinum látna undir læknishendur er hann hafði slasast lífshættulega vegna árásarinnar. Konurnar voru báðar sýknaðar af ákærunni en maðurinn var sakfelldur og dæmdur í sex mánaða fengelsi. 26.6.2009 13:35
Nýr ritstjóri stúdentablaðsins: Spennandi áskorun „Ég er mjög sátt með þetta og hlakka til að takast á við þetta verkefni," segir Áslaug Baldursdóttir, nýr ritstjóri Stúdentablaðsins. Stjórn Stúdentaráðs Háskóla Íslands hefur ráðið Áslaugu til að gegna þeim starfa skólaárið 2009 til 2010. 26.6.2009 12:22
Sært bjarndýr gengur laust í Noregi Norska lögreglan hefur varað vegfarendur við særðu bjarndýri sem leynist í skóglendi í grennd við Þrándheim. Bjarndýrið varð fyrir bíl seint í gærkvöldi. Bíllinn stórskemmdist en bílstjórinn slapp ómeiddur. Björninn lá góða stund vankaður við vegbrúnina en hvarf svo til skógar. 26.6.2009 12:19
Zimbabve taki upp eigin gjaldmiðil á ný Robert Mugabe forseti Zimbabve segir að landið kunni að taka aftur upp eigin gjaldmiðil þar sem fólk í sveitum landsins hafi ekki aðgang að bandaríkjadollurum. Í janúar síðastliðnum afléttu stjórnvöld í Zimbabwe banni við notkun á erlendum gjaldmiðlum. 26.6.2009 12:16
Bláum bíl Bootcampþjálfara stolið í nótt Inga Þóra Ingadóttir Bootcamþjálfari varð nokkuð hissa þegar hún vaknaði í morgun. Þá áttaði hún sig á því að Electick bláum PT Cruiser bíl hennar hafði verið stolið. Bíllinn hefur skráningarnúmerið SM 050 og var stolið á bilinu 3 til 6 í morgun að hennar sögn. 26.6.2009 11:02
Tryggva Þór ekki snúist hugur „Alls ekki," segir Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, aðspurður hvort honum hafi snúist hugur síðan hann ræddi við BBC í viðtali sem birtist þann 6. október 2008. Í samtali hans við breskan blaðamann féllst Tryggvi á ábyrgð hins íslenska tryggingasjóðs innistæðueigenda á breskum innistæðum í Icesave málinu. 26.6.2009 10:35
Meintur smyglari tapar skaðabótamáli - aftur Sigurjón M. Egilsson fyrrum ritstjóri DV og Erla Hlynsdóttir blaðamaður voru sýknuð í meiðyrðarmáli í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Málið höfðaði Rúnar Þór Róbertsson á þeim forsendum að blaðið hefði kallað hann fíkniefnasmyglara árið 2008. Sjálfur sat Rúnar í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að smyglinu árið 2007. Um var að ræða stófelldan innflutning á kókaíni. Fjögur kíló af efninu voru falin í Benz bifreið sem var á Sundahöfn. 26.6.2009 10:31
Feneyjartvíæringurinn: Kostnaður ríkisins er 23 milljónir Kostnaður ríkisins vegna Feneyjartvíæringsins er 23 milljónir króna. Ríkið greiðir 45% af heildarkostnaðinum við framlag Íslands og sjá styrktaraðilar um afganginn. 26.6.2009 09:28
Styttist í að rafhlöður flugritanna tæmist Tíminn til að finna flugrita farþegaþotu Air France sem fórst fyrir tæpum mánuði fer nú að verða naumur. Áætlað er að flak þotunnar liggi á 4.500 metra dýpi innan um neðansjávarfjöll svo örðugt er að komast að því. 26.6.2009 08:48
Hræddu líftóruna úr frönskum ferðamönnum Tveir menn sem ráku ólöglega leigubílaþjónustu í New York hafa verið handteknir og ákærðir fyrir frelsissviptingu. 26.6.2009 08:22
Merki um vatn á einu tungla Satúrnusar Þýskir vísindamenn telja sig hafa fundið merki um vatn og hugsanlega líf á einu af tunglum Satúrnusar. 26.6.2009 08:15
Bræður í haldi lögreglu í Horsens Tveir bræður eru í haldi lögreglu í Horsens í Danmörku eftir að hafa ráðist á þrjá menn í gær og meðal annars lamið þá með hafnaboltakylfu. 26.6.2009 08:10
Hundur át sprengiefni í Afganistan Betur fór en á horfðist þegar sprengjuleitarhundur á vegum breska hersins í Afganistan át sprengiefni sem hann fann við vegkant í nágrenni Camp Bastion-búðanna í Helmand-héraðinu í síðustu viku. 26.6.2009 07:34
Tíu látnir eftir sprengingu í Baghdad Tíu létust í Baghdad og 25 eru slasaðir eftir að sprengja sprakk á markaði í miðborginni í morgun. 26.6.2009 07:28
Nokkrir eftirskjálftar í gær Nokkrir jarðskjálftar fylgdu í kjölfar skjálftans sem reið yfir norðaustan við Krísuvík um klukkkan hálfsex í gær. 26.6.2009 07:20
Aðdáendur Jacksons fjölmenntu við sjúkrahúsið Mörg hundruð aðdáendur Michaels Jackson söfnuðust saman við UCLA-sjúkrahúsið þar sem poppstjarnan lést í gærkvöldi klukkan tæplega hálftíu að íslenskum tíma. 26.6.2009 07:12
Eldur í 4000 fermetra skemmu á Keilugranda Eldur kom upp í fjögur þúsund fermetra vöruskemmu við Keilugranda 1 í nótt um klukkan hálf fjögur. Allar stöðvar slökkviliðsins voru kallaðar á staðinn enda um stórt hús að ræða. Eldur var á staðnum þegar liðið mætti á svæðið en vel gekk að ráða niðurlögum hans. Húsið var hins vegar fullt af reyk og tók langan tíma að reykræsta. 26.6.2009 07:11
Skrýtið að semja um launahækkanir Þórarinn V. Þórarinsson, sem var framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Íslands þegar þjóðarsáttin var gerð, segir skrýtið að samið sé um launahækkanir í stöðugleikasáttmálanum. 26.6.2009 06:00
Stríðsástand gæti skapast verði Icesave hafnað Samþykki Alþingi ekki ríkisábyrgð á Icesave-lánið gæti skapast stríðsástand í efnahagslífinu hérlendis, Ísland fengi hvergi fyrirgreiðslu, fyrirtæki færu unnvörpum í þrot og við yrðum sett á sama stall í samfélagi þjóðanna og Kúba og Norður-Kórea. Þetta segir Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor sem segist mjög hissa á óábyrgri afstöðu sumra stjórnmálamanna til málsins. 26.6.2009 06:00
Sjötíu prófessorar handteknir Sjötíu háskólaprófessorar hafa verið handteknir í Teheran, höfuðborg Írans, fyrir að hafa hitt og stutt við bakið á stjórnarandstöðuleiðtoganum Mir-Hossein Mousavi. Þetta kom fram á heimasíðu Mousavis í gær. Á sama tíma lofaði hann að halda áfram baráttu sinni, þrátt fyrir tilraunir til að einangra hann. 26.6.2009 05:00
Fingraför í öll vegabréf Fingraför verða í örgjörvum allra nýrra vegabréfa sem koma út eftir 28. júní. Þetta er gert í samræmi við samþykktir Schengen-ríkja á vettvangi ESB. Eldri vegabréf halda gildi sínu út gildistímann, að sögn Þorvarðar Kára Ólafssonar, skilríkja- og öryggissérfræðings hjá Þjóðskrá. 26.6.2009 05:00
Palestína fær aukna stjórn á Vesturbakka Ísraelskar hersveitir munu minnka viðveru sína og fækka hermönnum í borgunum Kalkíla, Ramallah, Betlehem og Jeríkó á Vesturbakkanum. Palestínskar öryggissveitir munu taka við stjórninni. Greint var frá þessu í gær. 26.6.2009 05:00
Tóku fíkniefni, peninga og þýfi Fíkniefni fundust við húsleit lögreglu á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Um var að ræða kókaín, amfetamín og hass. 26.6.2009 04:00
Kríukrísa í Flatey „Áður heyrði maður varla neitt fyrir kríunni en nú heyrir maður varla í henni,“ segir Magnús Jónsson bóndi í Flatey um ástand kríustofnsins þar, sem er afar slakt. 26.6.2009 03:00
Fundu elstu hljóðfæri heims Vísindamenn í Þýskalandi segjast hafa fundið elstu hljóðfæri heims. Hljóðfærin eru þrjár flautur sem eru 35 þúsund ára gamlar. 26.6.2009 03:00
Farrah Fawcett látin Leikkonan Farrah Fawcett lést í Los Angeles í gær 62 ára að aldri eftir erfiða baráttu við krabbamein frá árinu 2006. Hún sló í gegn á áttunda áratugnum í þáttunum Charlie‘s Angels. 26.6.2009 02:00
Eldur í bílskúr og bíl Eldur kviknaði í bílskúr og barst í nálægan bíl við Marbakkabraut í Kópavogi fyrr í kvöld. Að sögn lögreglu var einn fluttur á slysadeild með brunasár. Ekki er vitað um upptök eldsins að svo stöddu, en slökkvilið er ennþá á vettvangi. 25.6.2009 22:53
Strandveiðar hefjast Þeir sem hug hafa á byrja að róa til fiskjar í sumar geta nú sótt um leyfi til Fiskistofu. Ný lög um frjálsar strandveiðar hafa tekið gildi og í hádeginu undirritaði Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra reglugerð um veiðarnar. 25.6.2009 19:23
Víðtækt samkomulag á vinnumarkaði Stöðugleikasáttmáli aðila vinnumarkaðrins og ríkisstjórnarinnar nær til 150 þúsund manna á launamarkaði og er ætlað að vera grunnur að endurreisn íslensks atvinnulífs. Laun þeirra sem eru á taxtalaunum hækka um mánaðamótin en aðrir fá ekki launahækkun fyrr en í nóvember. Skattar verða hækkaðir um tugi milljarða og enn hærri fjárhæðir skornar niður. 25.6.2009 18:51
Hótelstjóri á Grundarfirði: Svona er þessi bransi „Það voru einhverjar konur hérna sem settu upp markað og urðu fyrir vonbrigðum með að enginn skyldi verða eftir í bænum. Svona er þessi bransi bara,“ segir Gísli Ólafsson, hótelstjóri á Grundarfirði. 25.6.2009 20:01
240 manns sótt foreldranámskeið eftir bankahrun „Eftir meira en tíu ára starf mitt á þessu sviði, þá er þetta okkar mesti árangur fram að þessu,“ segir Ólafur Grétar Gunnarsson, fjölskylduráðgjafi. 120 pör hafa sótt tíu foreldranámskeið sem ráðgjafarfyrirtæki Ólafs, ÓB-ráðgjöf, setti á fót í kjölfar bankahrunsins í samstarfi við þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar, Kópavogsbæjar og heilsugæslustöðvar. 25.6.2009 20:49
Minnst tíu látist í flóðum í Tékklandi Minnst tíu hafa farist í miklum flóðum í Tékklandi. Þar hefur verið úrhellisrigning síðustu daga. Jan Fischer, forsætisráðherra landsins, segir að fimm hafi drukknað og fimm látist af völdum hjartáfalls eða meiðsla vegna þess að björgunarmenn hafi ekki náð til fólksins í tæka tíð. Mörg hundruð íbúar á flóða svæðunum hafa verið fluttir burt frá heimilinum sínum og þúsund hermenn sendir til að aðstoða við fólksflutninga. 25.6.2009 19:30
Söngvari enn í endurhæfingu eftir fall Duncan McKnight, rúmlega tvítugur söngvari berlínsku hljómsveitarinnar Virgin Tongues hefur verið á sjúkrahúsi í Reykjavík í níu vikur, eftir að hann féll af þriðju hæð húss við Skólavörðustíg hinn fyrsta maí. 25.6.2009 19:08
Bifröst: Deilur um vanskil komnar fyrir dómstóla Rektor háskólans á Bifröst segir fjárhagsstöðu skólans góða, þrátt fyrir 80 milljón króna tap á síðasta ári. Deilur um meint vanskil vegna nýrra nemendagarða eru nú komnar fyrir dómstóla. 25.6.2009 18:55
Grunnur að endurreisn efnahagslífsins Markmið stöðuleikasáttarinnar er að stýrivextir verði komnir í eins stafs tölu í nóvember, verðbólga verði komin í 2,5 prósent í lok næsta árs og unnið verði gegn atvinnuleysi með framkvæmdum með aðkomu lífeyrissjóða og einkaaðila. 25.6.2009 18:48
Snarpur skjálfti fannst víða um Reykjavík Snarpur jarðskjálfti varð rétt í þessu og fannst víða um Reykjavík. Samkvæmt sjálfvirkum skjálftamælingum Veðurstofu var um tvo skjálfta að ræða um tuttugu mínútur yfir fimm. Áttu skjálftarnir upptök sín um fimm og hálfan kílómetra norðaustur af Krýsuvík og voru 2,6 og 3,9 á Richter.Þessar tölur eru ekki yfirfarnar. 25.6.2009 17:20
Fyrrum seðlabankastjórar hafa verið yfirheyrðir Rannsóknarnefnd Alþingis hefur tekið formlegar skýrslur af 26 einstaklingum. Þar á meðal eru ráðherrar, fyrrverandi og núverandi, fyrrverandi bankastjórar Seðlabanka Íslands og forstjóri Fjármálaeftirlitsins, fyrrverandi bankastjórar, starfsmenn úr stjórnsýslunni og bönkunum og sjálfstæðir sérfræðingar sem unnið hafa á vegum þessara aðila. Þetta kemur fram á vef rannsóknarnefndarinnar. 25.6.2009 16:41
Sigríður Benediktsdóttir ekki vanhæf Þeir Páll Hreinsson og Tryggvi Gunnarsson hafa komist að þeirri niðurstöðu að Sigríður Benediktsdóttir, samstarfskona þeirra í Rannsóknarnefnd Alþingis sé ekki vanhæf vegna ummæla sem hún viðhafði í viðtali við Yale Daily News þann 31. mars síðastliðinn. 25.6.2009 15:24
Sáttmáli um nýja sókn í atvinnumálum Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að með stöðugleikasáttmálanum hafi náðst breið samstaða allra aðila á vinnumarkaði, sveitarfélaga og ríkis um átak til að endurreisa efnahagslífið með fjölþættum aðgerðum. 25.6.2009 15:17
Eiríkur: Sameinumst um það sem við erum sammála um Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir auðvelt að finna atriði í stöðugleikasáttmálanum sem samvari ekki beint við stefnu og áherslur einstakra aðila og samtaka. 25.6.2009 15:05
Tekinn með fullt af grillkjöti Nokkur innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Í Kópavogi var brotist inn í tvo bíla og munir teknir úr öðrum þeirra. Sami maður reyndist hafa verið að verki í báðum tilvikum. Hann er á þrítugsaldri og var færður í fangageymslu lögreglunnar. Maðurinn var mjög vel birgur af grillkjöti þegar hann var handtekinn en fátt var um svör þegar spurt var hvaðan maturinn væri kominn. 25.6.2009 14:43
Neyðast til að fella niður ferðir til Portúgals Þorsteinn Guðjónsson forstjóri Úrvals Útsýnar segir að ferðir til Portúgals hafi verið felldar niður seinni hluta sumars. Hann segir að einfaldlega séu of fáir sem hafi skráð sig í þessar ferðir og því hafi verið ákveðið að fella þær niður. Þeir sem áttu bókað í þessar ferðir fá annaðhvort endurgreitt eða er boðið upp á aðra valkosti. 25.6.2009 14:39
Seldi bíl en hirti peninginn Maður hefur verið ákærður fyrir að draga sér söluandvirði bíls sem hann var að selja fyrir annan mann og jafnframt skrá bíl sem kom upp í söluvirði hins bílsins á sitt eigið nafn. 25.6.2009 14:12
Viðbrögð helstu aðila: Sáttamáli um framfarir en ekki stöðnun Fjölmargir aðilar koma að undirritun stöðugleikasáttmálans sem var undirritaður í Þjóðmenningarhúsinu rétt fyrir klukan tvö í dag. Við það tækifæri tjáðu ýmsir sig um samninginn og sagði Jóhanna Sigurðardóttir að um tímamótaviðburð væri að ræða. Aldrei hefði verið mikilvægara að undirrita slíkan sáttmálan en einmitt nú og hann væri lykilatriði í endurreisninni. 25.6.2009 14:11
Búið að skrifa undir stöðugleikasáttmálann Samningar hafa tekist um stöðugleikasáttmála sem er eitt af meginmarkmiðum ríkisstjórnarinnar við endurreisn efnahagslífsins. Forsvarsmenn ríkisstjórnar, sveitarfélaga, atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar og stéttarfélaga skrifuðu undir samninginn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Stöðugleikasáttmálinn tekur til margra þeirra helstu þátta sem mestri óvissu hafa verið háðir síðustu mánuðina og er sáttmálinn ein þeirra meginstoða sem framtíðar uppbygging efnahagslífsins hvílir á. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðhera segir þetta afara mikilvægan áfanga og veigamikla forsendu fyrir endurreisnarstarfinu á næstu misserum. 25.6.2009 13:54