Fleiri fréttir

Ungir sjálfstæðismenn á móti sykurskatti

Stjórn ungra sjálfstæðismanna hefur sent frá sér ályktun þar sem hún leggst alfarið gegn hugmyndum Ögmundar Jónassonar um neyslustýringu í formi sykurskatts. Ályktunin er svohljóðandi:

Lækjartorg undir græna torfu

Það brá mörgum í brún sem áttu leið framhjá Lækjartorgi í morgun en þar verið að leggja túnþökur yfir hluta torgsins. Ekki var um táknræn mótmæli umhverfssinna að ræða líkt og margir héldu, heldur voru það borgarfulltrúar Reykjavíkurborgar sem stóðu fyrir gjörningnum.

Stúdentar skora á Katrínu að skrifa ekki undir reglur LÍN

Stúdentaráð Háskóla Íslands afhenti Katrínu Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, áskorun eftir ríkisstjórnarfund í dag þar sem ráðið skorar á hana að skrifa ekki undir nýjar úthlutunarreglur Lánasjóðs íslenskra námsmanna sem samþykktar voru í stjórn LÍN í gær. Stúdentaráð vill að Katrín leiti heldur leiða til að styrkja Lánasjóðinn með tilfærslu fjár innan ríkisins.

Hagræðing kemur niður á Gæslunni - þyrla ekki tiltæk í 10 daga á ári

Björgunargeta Landhelgisgæslunnar skerðist í haust þegar uppsagnir tveggja flugmanna taka gildi og þá má gera ráð fyrir Gæslan hafi enga þyrlu tiltæka allt að 10 daga á ári. Þetta kemur fram í svari Rögnu Árnadóttur, dómsmálaráðherra, við fyrirspurn Róberts Marshall, þingsmanns Samfylkingarinnar.

Járnfrúin flutt á sjúkrahús

Járnfrúin Margaret Thatcher, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, er undir eftirliti á sjúkrahúsi eftir að hún féll á heimili sínu en hún handleggsbrotnaði við fallið.

Vel gengur með 100 daga áætlunina

Á þeim 33 dögum sem liðnir eru frá því að ríkisstjórnin tók við hefur hún lokið við 21 af 48 verkefnum sem skilgreind voru í 100 daga áætlun stjórnarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Meirihluti þingmanna geti knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslur

Lagt verður til í frumvarpi ríkisstjórnarinnar að einfaldan þingmeirihluta þurfi til að fram fari ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslur um tiltekin mál. Frumvarpið var rætt á fundi forystumanna ríkisstjórnarinnar með blaðamönnum í morgun.

Fasteignamat húnæðis hækkar um næstu áramót

Fasteignamat húnæðis á öllu landinu hækkar um 2,5% um næstu áramót. Fasteignamat hækkar um hátt í þriðjung í hluta Þingholtanna í Reykjavík en lækkar um 16% á Völlunum í Hafnarfirði.

Einar Karl segist ekki fá greiðslur sem verktaki

„Ég fæ engar greiðslur á þessu tímabili frá Landsspítalanum á meðan ég er á biðlaunum," segir Einar Karl Haraldsson. Einar hafði samband við Vísi og gerði athugasemdir við frétt sem birtist um launagreiðslur til hans frá ríkinu fyrr í dag.

Leiðrétting Fréttablaðsins: Sigurður á ekki bátinn

Í fréttum sem skrifaðar hafa verið á Vísi í dag og fjalla um Sigurð Ólason og meint fíkniefnamisferli og peningaþvætti hefur verið sagt að hann eigi gúmmíbátinn sem notaður var til þess að sækja mikið magn fíkniefna í Papey. Fréttablaðið greindi frá þessu í morgun en sú frétt mun ekki eiga við rök að styðjast. Hér fyrir neðan má sjá yfirlýsingu frá Jóni Kaldal, ritstjóra Fréttablaðsins.

Alheimsfaraldi lýst yfir vegna kerfisgalla

Kerfisgalli er ástæðan fyrir því að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur orðið að lýsa yfir alheimsfaraldri vegna fremur vægrar flensu. Þetta er mat bandarísks sérfræðings í smitsjúkdómum.

Sjálfstæðismenn funda um meirihlutasamstarfið

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi funda í dag og helgina um framtíð meirihlutasamstarfsins við Framsóknarflokkinn. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, sem myndar meirihluta með sjálfstæðismönnum, vilji að Gunnar Birgisson víki úr embætti bæjarstjóra.

Arnarnesmálið: Ekki tókst að ferja einn sakborninga í héraðsdóm

Arnarnesmálið svokallaða var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Fjórir aðilar eru ákærðir í málinu en einungis þrír mættu fyrir dóm. Einn sakborninga situr í gæsluvarðhaldi vegna málsins en hann hefur verið í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Ekki var mannskapur til þess að ferja hann niður í héraðsdóm við Lækjartorg í morgun.

Ekki borist kvörtun vegna kynvillubókar

„Ég hef ekki heyrt af neinni kvörtun,“ segir Þórir Ólafsson, sérfræðingur á skólaskrifstofu menntamálaráðuneytisins, um kennslubókina Efni og orka. Í bókinni er Leonardo da Vinci kallaður kynvilltur, en það þykir afar móðgandi orðalag um samkynyhneigða.

Gríðarlegur verðmunur á milli verslana

Gríðarlegur verðmunur reyndist á milli verslana þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á 54 vörutegundum í 8 verslunum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri 9. júní. Fjarðarkaup var í flestum tilfellum ódýrari en aðrar þjónustuverslanir.

Einar Karl á tvöföldum launum hjá ríkinu

Einar Karl Haraldsson, nýráðinn almannatengslaráðgjafi Landsspítalans, þiggur biðlaun sem fyrrverandi aðstoðarmaður iðnaðarráðherra auk þess að þiggja verktakagreiðslur frá Landsspítalanum. Þetta staðfestir Einar í samtali við Vísi.

Fyrsta inflúensutilfellið sem smitast á Íslandi greint

Fjórða tilfelli inflúensu A(H1N1) hefur greinst á Íslandi. Þar á í hlut kona á miðjum aldri og allt bendir til þess að hún hafi smitast af hjónum sem komu hingað frá Bandaríkjunum 3. júní síðastliðinn og greindust bæði með veikina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Flæktur í stærstu fíkniefnamál sögunnar

Sigurður Hilmar Ólason sem nú situr í gæsluvarðhaldi í tengslum við umfangsmikið fíkniefnasmygl sem er í rannsókn hefur tengsl við Papeyjarsmyglið svokallaða líkt og Fréttablaðið sagði frá í morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur hann einnig tengsl við Pólstjörnumálið sem kom upp árið 2007. Sigurður hefur verið umfangsmikill í fasteignaviðskiptum hér á landi en hann hlaut þriggja ára dóm fyrir aðild að smygli á þrjátíu kílúm af hassi til landsins árið 2001.

Ekki verður feigum forðað

Ítalska konan Johanna Ganthaler lést í bílslysi í Austurríki fyrir nokkrum dögum. Þetta væri varla í frásögur færandi á Íslandi nema fyrir þá sök að Ganthaler slapp naumlega við að vera á meðal farþega í Air France þotunni sem fórst undan ströndum Brasilíu fyrir skömmu síðan.

„Kynvilla" í íslenskri kennslubók

Í kafla um Leonardo da Vinci í íslensku kennslubókinni Efni og orka frá 2007 er orðið kynvilla notað um snillinginn. Bókin er kennd í áfanganum Náttúrufræði 123 við Verzlunarskóla Íslands.

Stórmarkaður stal fjölskyldumynd og auglýsti með henni

Varasamt getur verið að setja fjölskyldumyndirnar á Netið. Hjónin Jeff og Danielle Smith frá Missouri komust að þessu þegar vinur þeirra, sem staddur var á ferðalagi í Prag í Tékklandi, hringdi og spurði í forundran hvort þau væru farin að leika í auglýsingum þar í landi.

Þyrla gæslunnar sótti tvo sjómenn

Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í gærkvöldi til aðstoðar tveimur skipverjum á línuveiðiskipinu Valdimari GK-195 vegna óhapps sem varð þegar skipverjar hugðust sjósetja léttabát skipsins um 90 sjómílur norðvestur af Öndverðarnesi.

Enn slær í brýnu á Norðurbrú

Rúmlega tvítugur maður er í haldi lögreglu í Kaupmannahöfn eftir enn einn skotbardagann á Nørrebro í gærkvöldi.

Eldur við Þingholtsstræti

Eldur kom upp í húsi við Þingholtsstræti rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi og voru lögregla og slökkvilið kölluð á vettvang.

Flottustu smyglgöngin fram að þessu

Lögregla við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó er agndofa yfir tæplega 30 metra löngum smyglgöngum sem uppgötvuðust í síðustu og liggja undir landamærin.

Forsetakosningar í Íran í dag

Íranar ganga að kjörborðinu í dag og velja sér forseta. Stendur valið á milli sitjandi forseta, Mahmoud Ahmadinejad, og Mir Hossein Moussavi, leiðtoga umbótasinna.

Helfararsafnskyttan ákærð

James von Brunn, sem réðst inn á Helfararsafnið í Washington í fyrradag og skaut öryggisvörð þar til bana, hefur verið ákærður fyrir morð og gæti átt von á dauðarefsingu verði hann sekur fundinn.

Hraðakstur og innbrot í nótt

Lögregla stöðvaði í nótt ökumann sem hafði ekið á 163 kílómetra hraða við Höfðabakkabrúnna. Þegar nánar var að gáð kom í ljós að maðurinn, sem er fæddur 1980, hefur aldrei tekið bílprófið og verður einhver bið á því að það verði í boði fyrir hann í nánustu framtíð.

Gunnar Birgisson býðst til að hætta

Gunnar Birgisson bæjarstjóri í Kópavogi hefur boðist til að hætta og greiða þannig fyrir áframhaldandi meirihlutasamstarfi Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna í bænum.

Hart var lagt að mér að hætta

„Ég staðfesti orð Jóns [Daníelssonar hagfræðings] um að það hafi verið lagt hart að mér að segja af mér," segir Sigríður Benediktsdóttir, nefndarmaður í rannsóknarnefnd Alþingis.

Vera kann að auglýsa þurfi stöðuna

Setja á Björn Bergsson hæstaréttarlögmann sem sérstakan ríkissaksóknara í málum er varða bankahrunið. Ekkert setningarbréf hefur hins vegar verið gefið út en enginn tímarammi verður á skipun hans. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra gerir ekki ráð fyrir að staðan verði auglýst.

Vinna að tillögum Evu Joly

„Hann ákveður sjálfur sitt hæfi og ég hef ekkert um það að segja," segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra um vanhæfi Valtýs Sigurðssonar ríkissaksóknara.

Gáfu 400.000 krónur til góðs málefnis

„Þetta er mjög góð leið til að enda grunnskólagönguna,“ segir Kolfinna Tómasdóttir, varaformaður nemendaráðs Háteigsskóla, sem útskrifaðist úr tíunda bekk skólans á miðvikudag. Við það tilefni færðu útskriftarnemarnir styrktarfélaginu Göngum saman, sem hefur það að markmiði að styrkja grunnrannsóknir á krabbameini í brjóstum, 400.000 krónur sem þeir söfnuðu í vor.

Ráðherra vill skýr fyrirheit frá hinum

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra telur „óhjákvæmilegt að gefin verði skýr fyrirheit um lækkun hæstu launa, stórhert aðhald í yfirstjórn ríkisins, umtalsverðan sparnað í utanríkisþjónustu og verulega aukinn aga í öllum rekstrarútgjöldum ríkisins, til þess að unnt sé að taka ákvörðun um hver hlutur öryrkja og aldraðra eigi að vera í þeirri þjóðarsátt sem fram undan er“.

Þrefalt met í fjölda fanga hér á landi

Vista hefur þurft allt að sjö gæsluvarðhaldsfanga í lögreglustöðinni við Hverfisgötu á undanförnum dögum, þar sem öll fangelsi landsins eru stappfull

Nýting þorsks ríkisleyndarmál

„Vinnubrögðin varðandi þetta mál eru algjörlega forkastanleg. Með þetta bréf er farið eins og mannsmorð og látið eins og það sé ekki til,“ segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, sem gagnrýnir málsmeðferð Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra hart vegna nýrrar nýtingarstefnu stjórnvalda í þorskveiðum sem Fréttablaðið greindi frá á miðvikudag.

Verðið betra nú en fyrir ári

Hugsanlegt er að Actavis sé annað þeirra tveggja fyrirtækja sem þýska samheitalyfjafyrirtækið Stada er að skoða kaup á að öllu leyti eða að hluta standi slíkt til boða.

Enginn Brúðubíll í Kópavogi

„Margar smáar upphæðir gera eina stóra og einhvers staðar verður að spara,“ segir Aðalsteinn Sigfússon, félagsmálastjóri Kópavogsbæjar. Sýningar Brúðubílsins á gæsluvöllum bæjarins, sem hafa verið fastur liður á sumrin í fjölda ára, hafa verið felldar niður í sumar.

Andvígir vísi að skólagjöldum

„Í samkomulagi fræðslusviðs og foreldrafélags Barnaskóla Hjallastefnunnar er gert ráð fyrir fjárframlagi foreldra til þess að brúa það kostnaðarbil sem þarf til þess að skólastarf í fjórða bekk Hjallastefnunnar við Hjallabraut geti farið fram," segir í bókun Jóns Páls Hallgrímssonar, bæjarfulltrúa Vinstri grænna í Hafnarfirði.

Sjá næstu 50 fréttir