Fasteignamat húnæðis hækkar um næstu áramót 12. júní 2009 12:38
Fasteignamat húnæðis á öllu landinu hækkar um 2,5% um næstu áramót. Fasteignamat hækkar um hátt í þriðjung í hluta Þingholtanna í Reykjavík en lækkar um 16% á Völlunum í Hafnarfirði. Fasteignaskrá Íslands kynnti í morgun breytingar sem gerðar verða á fasteignamati landsmanna og taka gildi um næstu áramót. Búið er að breyta þeim aðferðum sem notaðar eru í fasteignamati og hefur það þau áhrif að fasteignamat sumra eigna hækkar á meðan mat annarra eigna annað hvort lækkar eða stendur í stað. Þorsteinn Arnalds er aðstoðarframkvæmdastjóri mats og hagsviðs hjá Fasteignaskrá Íslands. „Markmiðið er að fasteignamat endurspegli að fullu gangverð fasteigna þannig að fasteignagjöld endurspegli hvert markaðsvirði eigna er." Húsnæðiseigendur fá á næstunni sent til sín í pósti nýtt fasteignamat og sjá þá sumir þeirrar nokkrar breytingar. Þorsteinn segir að fasteignamat þeirra sem hafi verið of hátt muni hækka og þar með muni gjöld þeirra sem hafi haft of lágt mat hækka og gjöldin að sama skapi. Nokkur munur er á því hvernig fasteignamat breytist á ákveðnum svæðum. Þannig hækkar fasteignamat í sunnanverðum Þingholtunum í Reykjavík um rúm 30% en lækkar á Völlunum í Hafnarfirði um 16%. Alls hækkar fasteignaverð íbúðahúsnæðis um 2,5%. Þá lækkar matið á atvinnuhúsnæði um 6% og á sumarbústöðum um 5%. Sveitarfélögin hafa töluverðar tekjur af fasteignagjöldum. Sigrún Björk Jakobsdóttir er stjórnarmaður í Fasteignaskrá Íslands og fyrrum bæjarstjóri á Akureyri. Hún segir erfitt að segja til um það nú hvaða áhrif breyting á fasteignamatinu hefur á þau fasteignagjöld sem sveitarfélögin innheimta. „Þetta verður að skoðast í samhengi við tekjuþörf sveitarfélaganna og eins að stilla skattheimtu í hóf. En þetta er svo sannarlega mikilvægur skattstofn sem skilar sveitarfélögum eitthvað í kringum 41 milljarði," segir Sigrún Björk.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Fleiri fréttir Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Sjá meira