Fleiri fréttir

Steingrímur: Sjávarútvegsstefna ESB í klessu

Sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins er í klessu, segir Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna og furðar sig ekki á að sjávarútvegsráðherrar ESB ríkja hafi ákveðið í gær að draga úr miðstýringu fiskveiða innan sambandsins. Það breyti hins vegar í engu afstöðu hans til aðildar Íslands að ESB.

Svindla á kerfinu

20 verkamenn, sem eru á atvinnuleysisbótum en voru að vinna, voru gómaðir af Vinnumálastofnun samkvæmt heimildum fréttastofu. Félagsmálaráðherra ætlast til þess að Vinnumálastofnun tryggi það að þeir sem þiggja atvinnuleysisbætur séu raunverulega atvinnulausir.

Íbúum Kristjaníu gert að borga leigu

Íbúar í Kristjaníu, fríríkinu svonefnda sem danskir hippar stofnuðu í Kaupmannahöfn fyrir nærri fjórum áratugum, verður héðan í frá gert að greiða leigu til ríkisins.

Óbreyttur borgari og þrír hermenn myrtir í Afganistan

Almennur borgari og þrír NATO-hermenn féllu þegar bílsprengja sprakk í austurhluta Afganistans í dag. Til viðbótar særðist einn hermaður. Sprengjan sprakk þegar hryðjuverkamaður keyrði Toyota Corolla bifreið á bílalest hermannanna.

Stúdentar vilja áfram frítt í strætó

Stúdentaráð Háskóla Íslands harmar áform Strætó bs. um niðurfellingu gjaldfrjálsra strætóferða fyrir námsmenn næsta skólaár. Ráðið tekur undir með Jórunni Frímannsdóttur, stjórnarformanni Strætó, og kallar eftir því að ríkið styðji við rekstur félagsins, til að mynda með niðurfellingu opinberra gjalda.

Bílvelta í Ártúnsbrekkunni

Bílvelta varð í Ártúnsbrekkunni laust fyrir klukkan fimm í dag. Ökumaður var einn í bílnum. Samkvæmt upplýsingum frá sjúkraflutningamönnum var ökumaðurinn kominn út úr bílnum þegar að þeir komu á staðinn en sjúkrabifreið flutti hann á slysadeild til skoðunar. Maðurinn var á leið í austurátt þegar slysið varð og var hann að keyra aðein upp á brúna.

Barðastrandaránið: Bæjarstjóra mjög brugðið

„Mér er náttúrlega bara mjög brugðið við þessar fregnir. Þetta er bara skelfilegur atburður. Og það vill svo til að ég þekki þann sem að fyrir þessu varð mjg vel þannig að ég sendi honum auðvitað mínar bestu kveðjurm," segir Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri á Seltjarnarnesi.

Vann dómsmál vegna læknamistaka

Eyjamaður á sjötugsaldrinum vann skaðabótamál gegn ríkinu vegna ófaglegrar meðferðar eftir að hann fór úr axlalið.

Vill vita um skilyrði fyrir áframhaldandi starfi Josefsson

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknaflokksins, hyggst leggja skriflega fyrirspurn fyrir viðskiptaráðherra um það hvaða skilyrði Mats Josefsson setti fyrir áframhaldandi starfi sínu í samræmingarnefnd um endurreisn bankakerfisins. Eins og greint var frá í fjölmiðlum í gær hótaði Josefsson að hætta sem formaður

Umferðarljós aftengd

Umferðarljós á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallarvegar verða aftengd tímabundið í kvöld kl. 19:00 og verða óvirk í nótt og fram eftir degi á morgun, miðvikudag. Á sama tíma verða vinstri beygjur af Flugvallarvegi inn á Bústaðaveg bannaðar. Umferðarhraði er tímabundið lækkaður í 30 km og er brýnt fyrir vegfarendum að virða hraðatakmarkanir.

Reykingamaður kveikti í hurð

Lögreglan og slökkviliðið í Vestmannaeyjum var kallað að heimili við Brimhólabraut um helgina vegna elds sem hafði kviknað við hurð hússins.

Eldur í gámi við Hamraborg

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Hamraborg í Kópavogi rétt eftir hádegið í dag. Þar logaði eldur í gámi. Samkvæmt upplýsingum frá fréttastofu var þó um lítinn eld að ræða og var hann fljótlega slökktur.

Barðastrandaránið: „Ég er bara heppinn að lifa þetta af“

„Mér heilsast bara vel," segir úrsmiðurinn á Seltjarnarnesinu sem lenti í óhugnanlegri árás þegar tveir menn um tvítug brutust inn á úraverkstæði mannsins á Seltjarnarnesi í gærkvöldi. Þegar þeir urðu hans varir yfirbuguðu þeir manninn, svo límdu þeir á honum hendur og fætur. Að lokum fóru þeir ránshendi um úraverkstæðið sem er á heimili hans.

Rannsókn lögreglu á Heiðmerkurárás lokið

Rannsókn lögreglunnnar á fólskulegri árás á unga stúlku í Heiðmörk er lokið og tekin verður ákvörðun um framhald málsins innan skamms, segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík.

Gekk í flasið á þjófunum - var bundinn, laminn og rændur

Úrasmiður á áttræðisaldri gekk í flasið á tveimur þjófum um klukkan átta í gærkvöldi. Mennirnir voru inn á úraverkstæði mannsins þegar hann kom inn. Þegar þeir urðu hans varir yfirbuguðu þeir manninn. Þeir límdu og bundu á honum hendur og fætur.

Alþingi niðurlægt

Guðlaugur Þ. Þórðarson alþingismaður segir að þær fullyrðingar Mats Josefsson, efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar, að það kosti 85% af vergri landsframleiðslu að endurreisa bankana séu allt aðrar upplýsingar en þær sem þingið hafi fengið. Ummælin lét Josefsson falla í sænskum fjölmiðli.

Obama útnefnir Soniu Sotomayor í Hæstarétt

Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur útnefnt Soníu Sotomayor sem nýjan dómara við Hæstarétt Bandaríkjanna. Staðfesti öldungadeild Bandaríkjaþings skipan hennar í embættið verður Sotomayor fyrsti rómansk ættaði Bandaríkjamaðurinn til að taka við sem dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna og þriðja konan.

Uppblásin hrefna fyrir utan sendiráðið í London

Mótmælendur tóku sér stöðu við íslenska sendiráðið í London í dag til þess að mótmæla hvalveiðum Íslendinga en veiðar hefjast að nýju í dag. Þeir tóku með sér stóra uppblásna hrefnu auk þess sem kynnt var ný skoðanakönnun sem sýnir að 82 prósent Breta eru andsnúnir hvalveiðum Íslendinga.

Elliði Vignisson: Guð forði okkur frá pólitískum ráðningum

„Hann karl faðir minn er búinn að starfa hjá bænum síðan árið 1967, eða tveimur árum áður en ég fæddist. Þannig ég kom nú ekki beint að ráðningunni hans," segir bæjarstjóri Vestmannaeyja, Elliði Vignisson, en minnihlutinn hefur gagnrýnt Sjálfstæðisflokkinn fyrir óeðlilegar ráðningar í íþróttamiðstöð bæjarins.

Seðlabankastjóri fær tæpar 1600 þúsund á mánuði

Svein Harald Øygard fær greiddar 1575 þúsund krónur í laun á mánuði. Lára V. Júlíusdóttir, formaður bankaráðs Seðlabankans, segir að þetta séu sömu laun og Davíð Oddsson, fyrrverandi bankastjóri hafði.

Umferðarráð vill meiri löggæslu á vegum úti í sumar

Umferðarráð hvetur stjórnvöld til þess að auka umferðarlöggæslu á komandi sumri þar sem viðbúið er að fleiri ferðist innanlands í ár en oft áður. Þá varar ráðið við niðurskurði á fjármagni til Umferðarstofu. „Vegna breyttra aðstæðna í efnahagsmálum hér á landi má búast við að fólk ferðist meira innanlands en utan á komandi sumri. Fyrir bragðið má búast við aukinni bílaumferð sem hefur mögulega hættu í för með sér,“ segir í ályktun frá Umferðarráði.

Brutu hugsanlega sveitastjórnalög

„Þau viku ekki af fundi bæjarráðs né bæjarstjórnar þegar ráðningarnar voru ræddar og samþykktar," segir Páll Scheving Ingvarsson, oddviti V-listans í Vestmannaeyjum, en hann gagnrýnir verklag við ráðningar meirihlutans harðlega.

Sumaráætlun Strætó tekur gildi

Sumaráætlun Strætó tekur gildi næstkomandi sunnudag. Samkvæmt tilkynningu frá Strætó verða helstu frá vetraráætlun þær að allir vagnar sem óku á 15 min. tíðni í vetur fara yfir á 30 min. tíðni í sumar. Leið 25 ekur ekki í sumar.

Byssan var eftirlíking

Byssan sem 17 ára gamall unglingur var tekinn með í nágrenni við Skeifuna í morgun var eftirlíking að skotvopni, samkvæmt upplýsingum frá Herði Jóhannessyni, aðstoðarlögreglustjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hörður segir að vopnalög fjalli þó jöfnum höndum um skotvopn og eftirlíkingar. Bannað sé að vera með hvorutveggja á almannafæri enda alls óvíst að nærstaddir geti greint muninn.

Réð pabba í vinnu

Hörð átök voru á síðasta bæjarstjórnarfundi Vestmannaeyja fyrir helgi en þar bókaði minnihluti V-listans gegn ráðningu nýs forstöðumanns íþróttamiðstöðvarinnar sem og ráðningu umsjónarmanns sömu miðstöðvar. Ástæðan fyrir mótmælum minnihlutans er sú að ný ráðin forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar er eiginmaður bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Páleyju Borgþórsdóttur sem er formaður bæjarráðs Vestmannaeyja.

Farsímasmygl með leikfangaþyrlu

Fjórir eru í haldi lögreglu í Sao Paulo í Brasilíu eftir að þeir voru gripnir við að reyna að smygla farsímum til félaga sinna innan múra öryggisfangelsis með fjarstýrðri leikfangaþyrlu.

Norður-Kóreumenn segjast undirbúa stríð

Norður-Kóreumenn skutu í morgun á loft tveimur eldflaugum í viðbót, báðum skammdrægum. Flugþol eldflauganna er um 130 kílómetrar og segir suðurkóreska Yonhap-fréttastofan að önnur eldflaugin sé til notkunar gegn skotmörkum á flugi en hinn gegn skotmörkum á sjó.

Hefðu getað náð Watergate-málinu

Hugsanlegt er að blaðamennirnir Bernstein og Woodward hjá Washington Post hefðu aldrei komist á spjöld sögunnar hefðu tveir keppinautar þeirra fylgt ábendingum sem þeir fengu.

Kveikt í myndbandaleigu í Nyborg

Fimm íbúar við Dronningsvej í Nyborg í Danmörku áttu fótum fjör að launa í nótt þegar kveikt var í myndbandaleigu í húsinu og þeir forðuðu sér út þegar íbúðin tók að fyllast af reyk.

Greiðslur lífeyrissjóðsins ekki skertar

Ekki þarf að skerða greiðslur úr Lífeyrissjóði verslunarmanna þrátt fyrir neikvæða afkomu sjóðsins í fyrra. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að þetta sé vegna góðrar ávöxtunar undanfarin ár.

Umferð um íslenskt flugstjórnarsvæði minnkaði

Flugumferð um íslenska flugstjórnarsvæðið, sem er eitt hið stærsta í heimi, minnkaði um tíu og hálft prósent fyrstu fjóra mánuði ársins, samanborið við sama tímabil í fyrra. Umferð um svæðið jókst hins vegar um fimm prósent í fyrra.

Steinsofnaði í handfærabáti

Óttast var um afdrif sjómanns, sem var einn á handfærabáti á Sandvíkinni við Reykjanes undir morgun, og báturinn datt út úr sjálfvirka tilkynningakerfinu.

Dregið úr miðstýringu fiskveiða ESB

Sjávarútvegsráðherrar Evrópusambandsins ákváðu á fundi sínum í gærkvöldi að draga stórlega úr miðstýringu á fiskveiðum bandalagsþjóðanna.

Með skammbyssu í Skeifunni

Sérsveitarmenn ríkislögreglustjóra voru kallaðir út laust fyrir klukkan fjögur í nótt eftir að tilkynning barst um að maður, vopnaður skambyssu, væri á ferli við Hagkaup í Skeifunni, en þar er opið allan sólarhringinn.

Danski sjóliðinn bíður yfirheyrslu

Tuttugu og eins árs sjóliði af danska varðskipinu Hvítabirninum, sem liggur í Reykjavíkurhöfn, gistir nú fangageymslur og bíður þess að verða yfirheyrður vegna innbrots í Kaupþing við Austurstræti um klukkan hálfníu í gærkvöldi, þar sem hann var yfirbugaður innandyra.

Sveitarstjóra greinir á um fyrningarleið

Sveitarstjóri að vestan spyr sig hvort mótmæli sveitarstjórnarmanna gegn fyrningarleiðinni sé vegna pressu útgerðarmanna. Kvótakerfið lék sveitarfélag hans illa. Fyrningarleiðin veldur þegar tjóni segir bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar.

Norsk flugsveit til gæslustarfa

Utanríkismál Þrjár norskar F16-orrustuþotur ásamt um 40 manna fylgdarliði munu stunda æfingar og sinna loftrýmisgæslu hér við land næstu tvær vikur. Þoturnar komu hingað til lands seinnipart dags í gær, segir Friðrik Jónsson, sviðsstjóri hjá Varnarmálastofnun. Spánverjar hættu nýverið við að senda flugsveit hingað til lands vegna kostnaðar og mun norska flugsveitin koma í þeirra stað.

Ungmenna leitað hátt í þrjú hundruð skipti

253 sinnum hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitað að ungmennum á aldrinum 11 til 18 ára síðan í janúar 2008. Oftast var leitað 13 sinnum að sama einstaklingnum. Miklar sveiflur eru á milli mánaða.

Sýnist tillagan hafa breyst lítið

„Ég sagði við fyrri tillögu að ég myndi ekki styðja hana óbreytta og persónulega sýnist mér hún hafa tekið litlum breytingum,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknar.

Sjá næstu 50 fréttir